Nafnorðið bísi 'hnuplari; þjófnaður' er ekki gamalt í málinu. Sama er að segja um hvorugkynsorðið bís 'hnupl' og sögnina að bísa 'hnupla, stela'. Þau eru frá því um miðja 20. öld og teljast til slanguryrða.
Bísi, bís og sögnin að bísa eru tökuorð í íslensku og upphaflega úr sjómannamáli.
Orðasambandið að v...
Orðasambandið að vera í essinu sínu ‘vera mjög vel fyrir kallaður, njóta sín vel’ er erlent að uppruna og þekkist í málinu að minnsta kosti frá síðari hluta 19. aldar. Nafnorðið ess í merkingunni ‘gott ástand’ þekkist hins vegar frá því á 17. öld.
Orðasambandið hefur sennilega borist í íslensku úr dönsku være ...
Orðatiltækið að vera á höttunum eftir e-u er notað í merkingunni að ‘vera á hnotskóg eftir e-u, reyna að ná í e-ð, svipast um eftir e-u’. Dæmi um það eru til í söfnum Orðabókar Háskólans frá því á 19. öld. Samkvæmt elstu dæmum virðist merkingin upphaflega hafa verið að ‘vera á verði, hafa gætur á’.
Ósennilegt ...
Upprunalega spurningin var:
Hvaða þanir eru þetta sem fólk er endalaust á og hvers vegna alltaf fleirtalan?
Orðið þön þekkist allt frá fornu máli. Það hefur fleiri en eina merkingu: ‘spjálk eða teinn til að þenja e-ð út með; tálkn, tálknbogi; beintindur í ugga; fjaðurgeisli eða fön á fjöðurstaf, …’.
Orð...
Orðið heimur kemur fyrir í nokkrum orðtökum þar sem fyrir koma tveir heimar. Fyrir utan þau sem nefnd eru í fyrirspurninni eru til dæmis vera milli heims og Heljar, vera milli tveggja heima og vita hvorki í þennan heim né annan.
Hugmyndin er rakin til þeirrar fornu trúar að við dauðann komist menn í eitthvert ...
Sögnin “að vera” getur haft þrjár mismunandi merkingar sem hljóta mismunandi meðhöndlun í rökfræði. "Að vera" má ýmist nota til að mynda umsögn, tilvistarstaðhæfingu eða staðhæfingu um samsemd. Þessu er best lýst með dæmum:
Umsögn:
"Snælda er köttur."
Hér er sagnorðið notað til að mynda umsögnina “að vera köt...
Orðasambandið að vera af erlendu bergi brotinn er notað um að eiga rætur að rekja til útlanda. Það er til í ýmsum öðrum gerðum, til dæmis vera af góðu bergi brotinn og er merkingin þá að vera af góðu fólki kominn, vera af illu bergi brotinn, það er af vondu fólki og vera af sama bergi brotinn (og einhver annar), þ...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvað er átt við með orðinu ku? Til dæmis það ku vera. Hvaðan kemur þetta?
Ku er samandregin mynd af sögninni að kveða og þekkist allt frá 18. öld. Um er að ræða 3. persónu eintölu og fleirtölu í þátíð: Hann ku vera farinn, hún ku vera lasin, þeir ku vera lagðir af stað, þær ku...
Það felst eiginlega í orðunum af hverju það er gott að vera góður. Ein skýring á orðinu góður er sú að það sé að gera góða hluti, gera það sem er gott. Þess vegna getur það aldrei verið neitt annað en gott að vera góður á sama hátt og það getur ekki verið annað en vont að vera vondur.
Við eigum í raun svör við ...
Orðasambandið að vera á mála hjá einhverjum er haft um það þegar maður er samningsbundinn til að vinna fyrir einhvern með því að vera hluti af liði hans. Í íþróttafréttum er þetta stundum notað um samninga leikmanna. Eiður Smári var á mála hjá Barcelona áður en hann gerði samning við Monaco.
Orðið máli merkir a...
Orðatiltækið að vera gamall í hettunni í merkingunni ‛vera reyndur, hafa fengist lengi við eitthvað’ er ekki gamalt í íslensku máli. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr ritinu „Safn af íslenzkum orðskviðum“ sem Guðmundur Jónsson tók saman og gaf út í Kaupmannahöfn 1830.
Giskað hefur verið...
Hér er einnig svarað spurningunum:
Hver er ætt og latneskt heiti yfir aloe vera plöntuna?
Hvað er svona merkilegt við aloe vera?
Hvað er Aloe barbadensis miller? Hefur hún lækningarmátt?
Plantan aloe vera sem nefnd hefur verið alvera eða alóvera[1] á íslensku, hefur þykk blöð og þyrna og líkist því óneitan...
Orðasambandið að vera/sitja aftarlega á merinni með eitthvað er notað um að vera (of) seinn á sér til að gera eitthvað, vera aftarlega á einhverju sviði. Elsta dæmi Orðabókar Háskólans er frá miðri 20. öld en orðasambandið er algengt í nútímamáli.
Skýringin á orðasambandinu er ekki fulljós. Líklega hefur ekki þó...
Orðasambandið að vera í sjöunda himni ‛vera afar glaður’ þekkist í málinu að minnsta kosti frá síðari hluta 19. aldar. Þótt hugmyndin um sjö himna sé mjög gömul virðist þetta fasta orðasamband hafa borist hingað um það leyti, sennilega frá Danmörku, það er at være i den syvende himmel. Danir hafa líklegast f...
Sé spurningin tekin bókstaflega hlýtur svarið einfaldlega að vera "nei". Sé engin heyrandi vera nálægt trénu sem fellur, hvorki manneskja né annað dýr, heyrist ekkert hljóð því merking orðsins "að heyrast" virðist fela í sér að einhver heyri. Hins vegar má umorða spurninguna og spyrja hvort eitthvert hljóð myndist...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!