Íslensk þjóðtrú hefur ekki margt af tjaldinum að segja, að því er virðist. Það helsta er af sunnanverðu landinu.
Í Árnessýslu þótti til dæmis öruggt rigningamerki ef þeir fuglar settust á tún með kvaki og hávaða. Jón Gíslason segir til að mynda þetta í bók sinni Úr farvegi aldanna, 2. bindi (1974, bls. 174):Tj...
Þegar sagt er til dæmis að úrkoma á tilteknum stað hafi mælst 10 mm á tilteknum tíma er átt við að hún hefði myndað 10 mm eða 1 cm þykkt vatnslag ef hún mundi staðnæmast til dæmis í polli eða keri með sléttum, láréttum botni. Rigning sem félli inn í lóðrétt rör sem hefði alls staðar sama þverskurðarflatarmál mundi...
Oft er tilkynnt um atvik þar sem högl eru á stærð við sítrónur í verstu stormunum. Stærsta haglélið sem hefur fundist var 14,2 sentímetrar í þvermál og 45 sentímetrar í ummál! Það var samansett úr 20 minni höglum sem voru frosin saman. Haglið vó 758 grömm. Það féll í Coffeyville í Kansas í Bandaríkjunum 3. septemb...
Ef loftþrýstingur er breytilegur frá einum stað til annars verður vindur.
Dæmi: Inni í uppblásinni blöðru er meiri loftþrýstingur en utan hennar. Ef stungið er gat á blöðruna streymir loftið út og úr verður vindur sem leitar frá meiri þrýstingi í átt að minni. Vindinn lægir þegar loftþrýstingur er orðinn sá sa...
Á Hawaii er hitabeltisloftslag. Mildur hiti er mest allt árið og nokkuð rakt. Litlar hitasveiflur eru yfir árið, eins og sést á því að í höfuðstaðnum Honolúlú er meðalhiti í kaldasta mánuði ársins 22° C og 26° C gráður í þeim heitasta. Á hálendi Hawaii getur orðið mun kaldara, jafnvel farið niður fyrir frostmark. ...
Í aðalatriðum er svarið já: Ef lofthjúpur er á tiltekinni reikistjörnu eða tungli í sólkerfi þá er þar líka nær alltaf "veður" í þeim skilningi sem eðlilegt er að leggja í það orð.
Það sem við köllum veður er í rauninni hreyfingar og aðrar breytingar í lofthjúpnum kringum okkur. Vindurinn er í rauninni loftstr...
Hugsum okkur að við búum við strönd sem liggur frá suðri til norðurs og sjórinn sé vestan við landið. Dæmi um slíka strandlengju er á Vesturlandi í Noregi kringum Bergen og er einmitt líklegt að þar sé upphaf málvenjunnar sem er hér til umræðu. Hún er sem sé ekki bara íslensk heldur líka norsk og væntanlega eldri ...
Bardagalistir ninja byggjast á samansafni aðferða og fræða sem nefnast einu nafni ninjutsu (忍術).
Iðkendur ninjutsu voru svokallaðir shinobi eða ninja. Þeir fengu leiðsögn í meðferð vopna ásamt því að fá þjálfun í bardagatækni og herkænsku. Þeir lærðu hvernig mætti leynast og fara um eins og skugg...
Ef allir jöklar, þar með talinn Grænlandsjökull og Suðurheimskautsjökullinn bráðnuðu má reikna með að yfirborð sjávar mundi hækka um tæpa 69 metra. Framlag Suðurheimskautsjökulsins er þar langmest, eða um 61 metri, en Grænland legði til rúma 7 metra. Framlag allra annarra jökla yrði vel innan við einn metri. Á nor...
Hafa persónulegar dagbækur verið nýttar í rannsóknum á Íslandi í öðrum fræðigreinum en sagnfræði?
Já, dagbækur hafa verið notaðar sem heimildir í margvíslegum rannsóknum innan ólíkra fræðigreina og nýtast þar vel. Þær hafa meðal annars verið notaðar til rannsókna á veðurfarssögu, bæði í landafræði og veðurfræði...
Alfred Wegener fæddist í Berlín 1880 og nam stjörnufræði og veðurfræði við háskóla þar í borg. Doktorsritgerð hans var um stjörnufræði, en af ýmsum ástæðum kaus hann að helga sig veðurfræðinni frekar, meðal annars vegna áhuga síns á líkamsrækt, útivist og ferðalögum, einkum á norðlægum slóðum. Hann kannaði lofthjú...
Þessi pistill er sá síðasti af sex þar sem birt er efni um hafís úr blöðum og tímaritum árið 1918 án útskýringa. Hér á eftir er grein eftir Þorkel Þorkelsson eðlisfræðing (1876-1961) sem birtist í Íslendingi 25. janúar 1918. Það kom í hlut Þorkels að verða fyrsti fors...
Nei, Íranar hafa ekki smíðað tímavél en sagt er frá því í ýmsum fréttamiðlum að Íraninn Ali Razeghi hafi nýlega búið til eins konar spádómsvél.
Fram kemur í fréttunum að Razeghi sé vísindamaður í Íran, hann stundi einnig viðskipti og sé uppfinningamaður. Vísindavefurinn hefur ekki fundið heimildir um menntun Ra...
Ekkert virtist vera óviðkomandi hinum breska landkönnuði og fjölfræðingi Frances Galton (1822-1911). Hann fékkst við ótal ólík fræðasvið, þar á meðal tölfræði, aðferðafræði, sálfræði, mannfræði, læknisfræði, veðurfræði, erfðarannsóknir og jafnvel kynbótafræði manna.
Frances Galton (1822-1911).
Galton var sonur ...
Í lægðum og hæðum nærri að jafnvægi ríki milli tveggja krafta, þrýstikrafts og svigkrafts jarðar sem er oft kenndur við franska verkfræðinginn og stærðfræðinginn Coriolis.
Þrýstikraftur togar loftið inn að lægð. Sem dæmi um loftstraum af völdum þrýstikrafts má nefna vind úr uppblásinni blöðru, en loftið streymi...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!