Við vitum ekki til þess að þetta hafi verið rannsakað neitt sérstaklega. Þó er nokkuð líklegt að þetta séu varnarviðbrögð. Þegar hætta steðjar að getur gefist vel að skýla höfðinu, til dæmis með því að bera hendurnar fyrir sig, enda er höfuðið mikilvægur líkamspartur sem ekki má verða fyrir miklu hnjaski.
Ekki...
Ekkert mælir gegn því að barn sé ættleitt öðru sinni eða jafnvel oftar. Ekki er í lögum nr. 130/1999 um ættleiðingar að finna nein ákvæði um hámarksaldur þess sem ættleiddur er. Þó þyrfti barn sem ættleitt er öðru sinni eða oftar að sjálfsögðu að uppfylla almenn skilyrði ættleiðingarlaga sem og ættleiðandi.
Í ...
Þegar velja á stjörnusjónauka er mikilvægt að vanda valið. Stjörnusjónaukar eru af öllum stærðum og gerðum og því þarf hver og einna að finna út hvaða tegund hentar honum eða henni best.
Góður sjónauki þarf að uppfylla tvö skilyrði. Hann verður að vera á góðri undirstöðu og hafa góð sjóntæki.
Besti stjörnu...
Nei, Plútó er enn á sínum stað í Vetrarbrautinni. Upphaflega var Plútó flokkaður sem ein af reikistjörnum sólkerfisins. Þann 24. ágúst árið 2006 samþykkti Alþjóðasamband stjarnfræðinga aftur á móti nýja skilgreiningu á reikistjörnum. Plútó fellur ekki undir hana og telst nú til dvergreikistjarna.
Dvergreikistja...
Það er misjafnt eftir líffærum hversu langur tími má líða frá því að líffærið er tekið úr gjafanum og þar til það er komið í líffæraþegann. Hjarta deyr aðeins fjórum klukkustundum eftir að það er tekið úr líkama gjafans en önnur líffæri geta haldist lifandi í allt að sólarhring eftir að þau eru fjarlægð úr líkama ...
Það er alls ekki eins einfalt að skilgreina hugtakið andlegt heilbrigði og ætla mætti. Við gefum því ekki gaum hversdagslega hvað í því felst og finnst kannski að slíkt megi sjá í hendi sér. En þegar málið er athugað nánar hefur það á sér margar hliðar og vill vefjast fyrir okkur.
Við eigum jafnvel auðveldara ...
Mikill meirihluti íslenskra starfsheita er karlkyns. Mörg þeirra hafa -maður sem seinni lið, svo sem vísindamaður, alþingismaður, námsmaður, verslunarmaður, verkamaður, lögreglumaður, stýrimaður, iðnaðarmaður, leiðsögumaður, formaður og fjölmörg fleiri. Ýmis önnur karlkynsorð eru líka seinni liður í mörgum starfsh...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Ég er að velta því fyrir mér hvernig faðernispróf fer fram, hvað það kostar og hvað það hefur í för með sér.
Ferlið sem fylgir faðernisprófi hefst oft á meðgöngu þar sem hin verðandi móðir getur fyllt út umsókn þess efnis að hún vilji að tekið verði blóð úr naflastreng barnsi...
Hér er gert ráð fyrir að spyrjandi eigi við börn, en ekki hversu stór hluti jarðarbúa eru karlar og hversu stór hluti eru konur. Um kynjaskiptingu mannkyns er fjallað í svari við spurningunni Hvað eru til margir menn og konur í heiminum?
Til þess að svara spurningunni um fjölda stelpna og stráka í heiminum þar...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Hvað er það við kísilinn í íslensku vatni sem veldur því að það er svona erfitt að ná honum af?
Erlendis er kalksteinn og annað kalkríkt berg algengt, sem aftur veldur því að vatnið er „hart“, það er í því er uppleyst kalk (CaCO3). Kalk er þeirrar náttúru að leysni þess ey...
Við skiljum spurninguna svo að hér sé átt við að maðurinn borði blautt gras en einnig væri hægt að skilja hana á þann veg að spyrjandi vilji fá að vita hversu lengi maður geti legið eða staðið á blautu grasi. Það væri væntanlega hægt að lifa ansi lengi þannig, alveg jafn lengi og ef menn stæðu inni í skrifstofu eð...
Í flestum tilfellum höfum við engin sérstök ráð til að framkvæma stökkbreytingar á sjálfum okkur, enda ekki víst að margir vildu að erfðaefnið í þeim stökkbreyttist! Stökkbreytingar á erfðaefninu eru nefnilega flestar til skaða. Sumar stökkbreytingar gera þó gagn, til dæmis þær sem breyta prótínum þannig að þau st...
Einfaldasta skýringin á þessu er að Alþingi, og væntanlega einnig almenningi, hefur ekki þótt nægilega rík ástæða til þess að binda það í stjórnarskrá að íslenska sé opinbert tungumál lýðveldisins.
Þetta kann að vera að breytast, til að mynda með tilkomu Internetsins, nýrri máltækni í stafrænum heimi og auknum ...
Aldur hrauna miðast við þann tíma sem liðinn er frá því hraunin runnu á yfirborði jarðar.[1] Gosið í Geldingadölum hófst 19. mars 2021 og því lauk um sex mánuðum síðar. Hraunið er því aðeins um eins árs gamalt þegar þetta svar er skrifað.
Ekki þarf að beita neinum sérstökum aðferðum til að aldursgreina hraun se...
Þessari spurningu má svara á margan hátt eftir því hvað spyrjandi og lesendur hafa í huga, meðal annars hvort eða hvernig þeir trúa á Biblíuna eða fyrstu Mósebók þar sem sagt er frá Eden. Þannig er til dæmis ljóst að sá sem trúir alls ekki á Biblíuna telur spurninguna óþarfa og hið sama gildir líklega einnig um ma...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!