Áður óþekktur hafstraumur hefur komið í ljós við straummælingar Hafrannsóknastofnunarinnar, en stofnunin hefur undanfarin ár staðið fyrir mælingum á straumum á Hornbankasniði á 21°35´V.
Straumurinn kom í ljós yfir landgrunnshlíðinni og ber hann með sér þungan djúpsjó sem síðan streymir út um Grænlandssund suður...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Í vændum... enn eitt af þessum torkennilegu „bara í þessu orðasambandi“ orðum, sem við notum og skiljum kannski frasann í heild en vitum (almennt) ekkert um það eitt & sér ... hvað er þetta orð? Vændir?
Kvenkynsorðið vænd merkir ‘von, horfur, líkindi’ og orðasambandið vera í væ...
Meðalaldur tiltekins hóps manna er skilgreindur sem meðaltal af aldri einstaklinganna. Með öðrum orðum eru aldurstölurnar lagðar saman og deilt í með fjöldanum. Meðalævi er hins vegar tala sem lýsir því hversu gamlir menn verða að meðaltali. Meðalaldur getur breyst án þess að meðalævi breytist, til dæmis ef hlutfa...
Þann 1. desember 2007 er áætlað að á Íslandi hafi búið 312.872, en þegar þetta er skrifað (í upphafi árs 2008) liggja endanlegar tölur fyrir árið 2007 ekki fyrir. Íslendingum hefur fjölgað nokkuð hratt á undanförnum árum en árið 2007 dró úr fjölguninni. Þann 1. desember 2006 bjuggu alls 307.261 manns á Íslandi en...
Til að koma í veg fyrir allan misskilning er best að taka fram að flugvél mun aldrei ná að fljúga yfir Ísland á ljóshraða eins og útskýrt er í svari Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Hvers vegna er ekki hægt að ferðast á ljóshraða? Er ekki hægt að reyna að búa til vél sem getur það?
Ljósið ferðas...
Hér er einnig að finna svar við spurningu Harðar Guðjónssonar Hvert er sjaldgæfasta spendýr Íslands?
Alls eru sex tegundir villtra landspendýra á Íslandi auk þess sem tvær tegundir sela kæpa meðfram ströndum landsins.
Tegundirnar eru:Tófa (Alopex lagopus)
Minkur (Mustela vison)
Hreindýr (Rangifer taran...
Trúmál geta á ýmsan hátt haft áhrif á tungumál þjóðar. Helgirit varðveita oft eldri málstig og geta átt þátt í að varðveita orð, orðasambönd og ýmis málfræðileg atriði. Ef litið er til Íslands þá er saga íslenskrar biblíuhefðar orðin ærið löng. Elstu biblíutextar, sem þekktir eru, eru varðveittir í handriti Íslens...
Nei, íslenskir háskólar bjóða ekki upp á nám í álfamálunum Quenya eða Sindarin sem koma fyrir í skáldskap Tolkiens.
Á netinu er hins vegar hægt að nálgast ýmislegt efni um þessi tilbúnu tungumál, til að mynda þessi þrjú orðasöfn: Dictionary of the Elvish LanguagesElvish to English DictionaryQuenya-English Di...
Winston Churchill (1874-1965) gegndi ýmsum ráðherraembættum á langri og viðburðaríkri ævi. Hann var ungur kjörinn á breska þingið og ekki leið á löngu þar til að honum voru falin ábyrgðarstörf. Hér að neðan er listi yfir ráðherrastörf Churchills, ekki eru alltaf til íslensk hugtök yfir embættin en reynt að nálgast...
Skjaldarmerkið er hvorki framan á né aftan á íslensku einnar krónu myntinni. Á framhliðinni er mynd af bergrisa úr landvættamerkinu, en á bakhlið er þorskur.
Á 5, 10, 50 og 100 króna peningum eru allar landvættirnar fjórar á framhliðinni en ekki skjaldarmerkið. Hins vegar var algengt að hafa skjaldarmerkið á ...
Geoduck eða Panope generosa á fræðimáli hefur verið nefnd koddaskel á íslensku. Hún er ein af stærstu samlokum (bivalvia) sem finnast og sú stærsta sem grefur sig niður í jarðveg. Koddaskelin getur vegið allt að 5,4 kg og verið um 20 cm á lengd.
Náttúruleg heimkynni koddaskelja eru í norðanverðu Kyrrahafi, aða...
Í fjárlögum fyrir árið 2004 er gert ráð fyrir að skipting útgjalda ríkissjóðs verði sem hér segir:
MálaflokkarUpphæð í millj. kr.Hlutfall í %Almenn opinber þjónusta 14.8515,4Löggæsla og öryggismál 11.599 4,2Fræðslumál 25.8339,4Heilbrigðismál 73.86826,8Almannatryggingar og velferðarmál 62.36422,7Húsnæðis-, sk...
Í Gegni sem er samskrá um safnakost íslenskra safna eru 69 færslur sem þar sem 'tyrkjaránið' kemur fyrir.
Með því að smella á þennan tengil er hægt að skoða fyrstu tíu færslurnar og með því að smella á örina eða 'næstu' á síðunni er hægt að sjá næstu 10 færslur.
Bækurnar og annað efni sem vísað er til fást ...
Ríki gefa yfirleitt út tvennskonar vegabréf fyrir ríkisborgara sína, annarsvegar almenn vegabréf og hinsvegar "opinber vegabréf". Hin síðarnefndu skiptast í tvo flokka: diplómatísk vegabréf og þjónustuvegabréf. Um almenn vegabréf gilda lög nr. 136/1998.
Í 2. mgr. 1. gr. laganna segir að utanríkisráðuneytið ge...
Blæösp (Populus tremula) finnst einkum í Mið- og Norður-Evrópu og Asíu. Íslenska blæöspin hefur fundist villt á sex stöðum á landinu. Erlendis getur blæöspin orðið 10-25 m há, en hefur hæst mælst 13 metrar hér á landi.
Blæöspin hefur aðeins fundist villt á sex stöðum á Íslandi. Tveimur stöðum á Norðurlandi og fj...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!