Í heild hljóðaði spurningin svona:
Hvert er meðaltal snjóflóða í Álftafirði, sérstaklega Súðavíkurhlíð? Er til kort af Íslandi með grafi sem sýnir á hvaða vegum snjóflóð og mögulega önnur algeng slys á umferðasamgöngum af náttúrunnar hendi gerast?
Á árabilinu frá 1996 til 2013 voru skráð 452 snjóflóð á veginn ...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvers vegna eru airsoft-byssur (loftbyssur) bannaðar á Íslandi en leyfðar í öðrum löndum í Evrópu? Væri ekki hægt að vera með airsoft-íþróttafélag?
Svonefndar airsoft-byssur eru í sumum löndum notaðar í „skotvopnaleikjum“ sem svipar til litboltaleikja (e. paintball). Þessar by...
Já það er rétt að nær öll loðna drepst að hrygningu lokinni.
Helstu hrygningarsvæði loðnunnar hér við land eru með suður- og vesturströndinni, allt frá Hornafirði að Ísafjarðardjúpi. Hrygningin hefst í febrúar og stendur fram í apríl og maí en dæmi er um hrygningu hjá loðnunni eitthvað inn í sumarmánuðina. Loðn...
Ánamaðkar fjölga sér með tvíkynja æxlun eins og mörg dýr gera. Hitt er merkilegra að hvert dýr er tvíkynja þannig að egg og sæði myndast í sama dýrinu. Yfirleitt makast ánamaðkar niðri í moldinni þannig að mökunarferlið er sjaldnast sýnilegt mönnum. Ein algeng tegund hérlendis, stóráni, heldur sig þó við yfirborði...
Flestir sem eru heyrnarlausir tala táknmál og líta á það sem sitt móðurmál. Táknmál er myndað með hreyfingum handa, höfuðs og líkama, með svipbrigðum, munn- og augnhreyfingum. Í táknmáli fær augnsambandið aukið mikilvægi því að í samskiptum á táknmáli verður alltaf að halda augnsambandi við viðmælandann. Svipbrigð...
Í svari sama höfundar við spurningunni Hvað ræður fæðuvali sauðfjár? kemur fram að lömb læra fyrst og fremst af mæðrum sínum hvaða plöntutegundir eru fýsilegar til átu. Rannsóknir hafa leitt í ljós að fæðuval sauðfjár er mjög breytilegt, bæði í tíma og rúmi og á milli einstaklinga.
Gerð hefur verið rannsókn á ...
Íslenskt sauðfé mun hafa komið til Íslands frá Noregi um landnám. Það er náskylt gamla norska stuttrófufénu sem var upprunalega hyrnt en er nú mikið til orðið kollótt vegna ræktunar á kollóttu umfram hyrnt á síðustu áratugum. Sumir af íslensku sauðalitunum finnast í norska stuttrófufénu en litum mun hafa fækkað þe...
Þetta er góð og umhugsunarverð spurning sem varðar ýmsar greinar vísinda, til dæmis bæði eðlisfræði og líffræði. Hér verður reynt eftir föngum að fjalla um nokkrar hliðar hennar.
Fleygir fuglar hafa vængi og fiður úr sérstöku efni sem er mjög létt í sér, hrindir frá sér vatni og veldur litlum núningi við loftið...
Í mörgum ritum er upphafs- og frumlífsöld nefnd í einu lagi forkambríum og nær það tímabil yfir 90% af jarðsögunni. Frumlífsöldin (proterozoic) er seinni hluti forkambríum og er talin hefjast fyrir um 2,5 milljörðum ára en vera lokið fyrir um 544 milljónum ára þegar fornlífsöld gekk í garð.
Jarðfræðingar miða ...
Flestir skrifanlegir geisladiskar eru þannig að aðeins er hægt að skrifa þá einu sinni, svokallaðir CD-R diskar (e. CD-recordable discs). Það sem hér kemur á eftir á eingöngu við um þá diska.
Tómir skrifanlegir geisladiskar hafa engin gögn. Spíralbrautin á disknum hefur því engar holur fyrir leysigeislann til ...
Internetið byggir á því að senda gögn á milli nettengdra tækja en til að geta gert það þurfa tækin að hafa heimilisfang. IP-tala (e. Internet Protocol address) gegnir hlutverki heimilisfangs á Internetinu fyrir tölvur, netbúnað og önnur nettengd tæki.
IP-tölur geta verið af tvennum toga, annars vegar svokallaða...
Júpíter er fimmta reikistjarnan frá sólu og jafnframt sú stærsta í okkar sólkerfi. Eins og á við um aðrar plánetur hefur Júpíter tungl. Nú er vitað um 67 slík. Stærst þeirra er Ganýmedes, það er stærra en reikistjarnan Merkúr.
Júpíter er einn af fjórum gasrisum sólkerfisins en hinir gasrisarnir eru Satúrnus, Ú...
Hvítabjarnar-örnefni er að finna á að minnsta kosti þremur stöðum á landinu. Ekkert af þeim virðist vera nefnt í fornum textum.
Hvítabjarnarey er út af Stykkishólmi. Í sóknarlýsingu er hún nefnd Hvítubjarnarey í aukafalli (í Hvítubjarnarey, bls. 196). Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir frá því að hún dragi nafn a...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hvað er fracking? Hvaða áhrif hefur það á berg og jarðlög? Getur þetta haft slæmar afleiðingar?
Fracking er stytting á "hydraulic fracturing" sem er aðferð sem beitt hefur verið í orkuiðnaðinum um margra áratuga skeið til að örva vökvarennsli inn í borholur, stundu...
Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir er rannsóknasérfræðingur og forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
Guðbjörg Ásta hefur brennandi áhuga á því hvernig líffræðilegur fjölbreytileiki verður til og hvernig líffræðilegur breytileiki til dæmis í atferli, vistnýtingu og arfgerðum skiptist á milli tegund...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!