Heitið mölur er stundum notað sem samheiti yfir fiðrildi sem lifa í húsum en þó er oftast átt við fatamöl eða stundum ullarmöl, tvær tegundir mölfiðrildaættar (Tineidae) hér á landi.
Fatamölur getur valdið miklum skaða á fatnaði og öðru í híbýlum manna sem gert er úr ull eða skinnum. Slíkt er þó ekki nærri ein...
Í stuttu máli er svarið við þessari spurningu það að alnæmi (Aquired Immunodeficiency Syndrome – AIDS) er sjúkdómurinn sem HIV veiran (Human Immunodeficiency Virus) veldur. Á heimasíðu Mannréttindaskrifstofu Íslands er að finna góða útskýringu á hugtökunum HIV og alnæmi. Þar segir:HIV er sú veira sem valdið getur...
Með hugtakinu tóntegund er átt við tónlist þar sem einn tónn er mikilvægari en aðrir tónar tónverksins, hann er því grunntónn tónstigans í verkinu. Í klassískri og rómantískri tónlist byggðist tóntegund á ákveðnum tónstiga í dúr eða moll.
Tóntegundaleysi (e. atonality) er einfaldlega andstæða þessa: tónlist sem...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Þegar maður er að skoða staðsetningu jarðskjálfta á vef Veðurstofunnar þá eru þeir staðsettir með tölum í lengdar- og breiddargráðum. Nú langar mig að vita hvað ein lengdargráða er löng í metrum á breiddargráðu, t.d. 63,88° þannig að maður geti áttað sig á hve mikil fjarlægð er á ...
Í þessum texta er eingöngu fjallað um mælingar á mönnuðum veðurstöðvum. Sjálfvirkum mælingum fjölgar nú ört og er úrvinnsla þeirra hafin. Hærri gildi en nefnd eru hér að neðan hafa ekki fundist enn, en þar sem mælum er nú að fjölga í fjalllendi má búast við því að met af ýmsu tagi fari að bætast við. Sérstaklega v...
Spurt er um áhrif hlustunar á tónlist og því miðast svörin einungis við áhrif tónlistarhlustunar en ekki tónlistarnáms eða virkrar þátttöku í tónlist. Mikilvægt er að gera greinarmun þarna á milli því almennt benda niðurstöður rannsókna til þess að tónlistarhlustun hafi lítil sem engin varanleg áhrif á vitsmuni en...
Þessari spurningu er erfitt að svara.
Enn sem komið er vita vísindamenn ekki um líf annars staðar í alheiminum en á jörðinni. Lífið á jörðinni gæti þó vel hafa borist til jarðarinnar utan úr geimnum og þá er nokkuð víst að fyrsta lífveran varð til annars staðar en á jörðinni og einnig á undan lífinu hér. En um...
Gæsir (Anser spp.) líkt og fjölmargar aðrar tegundir fugla koma hingað til lands sem og á aðra staði á kaldtempruðum svæðum og heimskautasvæðum jarðar þegar vorar og hlýnar í lofti. Þegar kólnar á haustin yfirgefa þær svo svæðin og leita suður á bóginn.
Af hverju leggja þessar fuglategundir þetta ferðalag á sig...
Þegar haft er í huga að heimspeki vestrænnar menningar hefur verið sögð lítið annað en “neðanmálsgreinar við heimspeki Platons” (A. N. Whitehead) er ekki að undra að hugmyndir Platons um kynin hafi í ríkum mæli mótað skilning okkar á hlutverkum kynjanna. Í heimspeki Platons er að finna tvíhyggju hins karllega og h...
Borgarleikhúsið var opnað haustið 1989 þegar Leikfélag Reykjavíkur flutti starfsemi sína þangað úr Iðnaðarmannafélagshúsinu við Vonarstræti sem er betur þekkt undir nafninu Iðnó.
Leikfélag Reykjavíkur var stofnað 11. janúar 1897 og er eitt elsta starfandi menningarfélag á Íslandi.
Heimild: Borgarleikhúsið ...
Tildra (Arenaria interpres) er svokallaður umferðarfugl hér á landi, með öðrum orðum, heimsókn tegundarinnar til Íslands er nokkurs konar millilending. Á vorin er hún á leið á varpsvæðin og á haustin til vetrarstöðvanna. Tildrur koma hingað í tugþúsunda tali og halda til í fáeina daga eða vikur og byggja upp orku...
Orðasambandið „á tali“, sem notað er um síma sem er upptekinn, má rekja til orðasambandsins að vera (sitja eða sjást) á tali við einhvern. „Þeir sátu á tali langa stund,“ eða „hann sást á tali við stúlkuna“ og önnur álíka sambönd eru vel þekkt.
Í símasöfnunum er mikilvægt að margir sitji við símann svo að aldrei...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Að vera á skjön við eitthvað, t.d. stefnu eða stjórnvöld. Ég veit hvað það merkir en hvaðan kemur orðið "skjön"?
Orðið skjön merkir ‘skakki, skái’. Orðasambandið á skjön merkir ‘á ská, út á hlið’. Það er þekkt í málinu frá 18. öld og er líklega tökuorð úr dönsku på skjøns ...
Tærnar gegna mikilvægu hlutverki þegar við göngum eða hlaupum og einnig við að halda jafnvægi. Í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Til hvers þurfum við tær? segir til dæmis:
Stóratá tekur þátt í að halda jafnvægi og hinar tærnar virka sem stökkbretti. Allar tærnar taka þátt í gang- og hlaupahreyfing...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!