Erfitt er að greina skordýr útfrá skrifaði lýsingu einni saman, en líklega er þarna um að ræða húsamaur (Hypoponera punctatissima). Hann tilheyrir ættbálki æðvængja (Hymenoptera).
Húsamaur er tiltölulega nýlegt meindýr hér á landi. Hans varð fyrst vart í gróðurhúsi árið 1956 og sást síðan ekki fyrr en 1974 þega...
Ísöld nefnist það þegar loftslag kólnar svo mjög um alla jörðina að jöklar þekja stór svæði sem ella væru auð, bæði á norður- og suðurhveli. Miðað er við að síðasta ísöld hafi hafist fyrir um 2,6 milljón árum (þó jöklar á norðlægum slóðum hafi tekið að vaxa fyrr), og þegar hún var í hámarki náðu heimskautajöklar l...
Vatnajökull hvílir á hásléttu í 600 til 800 m hæð. Hæstu fjöll ná 1,900 m en neðst nær botninn 200-300 m niður fyrir sjávarmál undir Breiðarmerkurjökli og Skeiðarárjökli. Mikill dalur er upp af Skeiðarárjökli yfir til Brúarjökuls og nær hann hvergi 700 m hæð yfir sjó. Aðeins um tíundi hluti af botninum rís yfir 1....
Stutta svarið er:
Rafeldsneyti er heiti á nothæfu eldsneyti sem búið er til úr vetni (H2), við rafgreiningu á vatni (H2O), og koltvíildi (einnig nefnt koldíoxíð á íslensku; e. carbondioxide, CO2).[1]
Dæmi um slíkt er framleiðsla á metanóli (CH3OH), sem er eldsneytisvökvi sem meðal annars er framleiddur hjá C...
Því miður er svarið við báðum spurningum neitandi – hér á landi finnast hvorki gimsteinar né dýrir málmar. Eiginlegir gimsteinar (eðalsteinar), sem eru svo harðir að þeir rispast ekki við daglega notkun, skera sig með hörkunni frá hversdagslegri skrautsteinum eins og til dæmis kvarsi, jaspis eða hrafntinnu. Deman...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Við fengum þessa spurningu, Hvað er mikið af koltvísýringi í loftinu?, og því ákvað ég að kíkja á Vísindavefinn. Sá þá svar við þessari spurningu Hve mikið er af koltvísýringi kringum jörðina?
Þarna eru tölur fyrir árið 2000. Ég velti fyrir mér hvort hægt sé að uppf...
Hekla er megineldstöð, en það merkir meðal annars að þar gýs aftur og aftur. Eldstöðvakerfi Heklu er um 40 km langt og sjö km breitt, eins og lesa má um í svari við spurningunni Hvers konar eldstöð er Hekla og hversu stórt er eldstöðvakerfi hennar?
Gos í Heklukerfinu eru flokkuð í þrennt:öflug þeytigosblönduð g...
Vöxtur umferðar um sæstrengi frá íslenskum markaði, það er að segja frá fjarskiptafyrirtækjum, hefur verið um 25-30% á ári undanfarin 10 ár. Svonefnd gagnaver (e. data center) fóru fyrst að skapa umferð árið 2010 og hafa vaxið hraðar en íslenski markaðurinn síðasta áratug. Umferðin nú frá íslenska markaðnum er nán...
Nýjir smitsjúkdómar sem reglulega koma fram í mönnum orsakast flestir af veirum sem berast úr dýrum í menn. Slíkar veirur hafa sérstakt fræðiheiti og kallast súnuveirur (e. zoonotic viruses). Mesta hættan á súnuveirusmiti er talin vera frá leðurblökum, þar á eftir koma prímatar, hófdýr og síðan nagdýr.[1]
Nokkr...
Hér er einnig svarað spurningunum:Hvenær byrjuðu menn að súrsa mat?
Hvað gerist við súrsun á mat?
Hvað er það efnafræðilega séð við súrsun sem verkar sem rotvörn í matvælum?
Að súrsa matvæli með sýrðri mysu, er ævagömul aðferð til að auka geymsluþol matvæla. Alþekkt er að grænmeti sé sýrt í ediksýru, en hér á...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvað eru til margar bjöllutegundir á Íslandi og hvar er þær helst að finna?
Í heiminum öllum eru þekktar um 400 þúsund bjöllutegundir (Coleoptera) en bjöllur eru tegundaríkasti ættbálkur lífvera. Á Íslandi hafa fundist tæplega 200 tegundir af bjöllum. Auk þess hafa verið nafngrei...
Hægt er að láta útreikningana
5 + 5 + 5 = 550
standast á að minnsta kosti tvennan hátt með því að bæta við einu striki.
Í fyrsta lagi má setja strik þvert á "jafnt og" merkið til að fá út "ekki jafn og" merkið og þá stendur 5 + 5 + 5 er ekki jafnt og 550 sem er alveg rétt.
Skemmtilegri aðferð er þó sú ...
Talið er að vikudagarnir hafi borið eftirfarandi nöfn á Íslandi fram á 12. öld.
sunnudagur
mánadagur
týsdagur
óðinsdagur
þórsdagur
frjádagur
þvottdagur/laugardagur
Þessi nöfn eru í samræmi við daganöfn annars staðar í Norður-Evrópu. Uppruna þessara nafna er að finna hjá Rómverjum sem töldu að ...
Spyrjandi vísar til þess að við höfðum í byrjun sérstakan tengil sem gerði gestum okkar kleift að lesa allar spurningar sem höfðu komið inn og voru í vinnslu. Þetta var vinsælt á fyrstu mánuðum vefsins meðan svör voru fá. Nú eru hins vegar svörin að nálgast þúsund. Lesandi sem vill kynna sér sérstaklega um hvað fó...
Hér er einnig svarað spurningunni 'Hvað veldur aukinni tíðni gosa í Heklu?' frá Ara Páli Pálssyni.
Þegar Hekla gaus árið 1947 virtist mönnum sem hegðun hennar væri orðin fyrirsjáanleg, hún gysi á 100 ára fresti og mundi næst gjósa kringum árið 2045. Þetta gekk þó sem kunnugt er ekki eftir fremur en sá spádómur ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!