Eins og kunnugt er snjóar þegar kalt er í veðri. En til þess að snjór verði til í háloftunum þarf annars vegar kulda og hins vegar raka. Hitastig niðri við jörð skiptir einnig máli. Úrkoma myndast við rakaþéttingu í skýjum en þegar neðar dregur fer það eftir hitastigi hvort úrkoman falli í formi rigningar, slyddu ...
Orðasambandið þvers og kruss merkir ‛í allar áttir; út um allt, fram og aftur’. Orðið þvers er notað á sama hátt og þvert og þversum.
Kruss er dregið af sögninni krusa eða krussa sem í sjómannamáli er notuð um að sigla skáhallt gegn vindi (á vígsl á báða bóga) en er einnig notuð um að fara krákustíg, ste...
Þeir tveir hlutir sem eru hvað algengastir á vinnustöðum landsins eru kaffibollar og pennar. Því er eftirfarandi þraut tilvalin til að brjóta upp vinnuna í amstri dagsins.
Á myndinni hér að neðan má sjá hvernig uppstillingin er. Markmiðið er að koma bollanum út fyrir formið sem pennarnir mynda án þess að færa ...
Sodium hydroxide kallast natríumhýdroxíð eða natrínhýdroxíð á íslensku og er jónaefni (eða jónískt efni) myndað úr jónunum Na+ og OH-. Það er hvítt, fast efni með hátt bræðslumark (318°C), sem er eitt af einkennum jónaefna, og er auk þess rammur basi. Flestir þekkja efnið eflaust betur undir nafninu vítissódi.
...
Á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga teljast sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Seltjarnarnes, Garðabær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Mosfellsbær og Kjósarhreppur til höfuðborgarsvæðisins. Í þessu svari er gengið út frá því að sömu sveitarfélög myndi hið svokallaða Stór-Reykjavíkursvæði.
Samkvæmt upplý...
Orðið genastjórnun gæti átt við stjórn gena á eiginleikum eða einkennum lífvera. Hvernig stjórna gen til dæmis því að sumir menn eru brúneygðir en aðrir bláeygðir og sumir svarthærðir en aðrir rauðhærðir?
Genastjórnun gæti líka átt við stjórnun á starfsemi einstakra gena eða genahópa. Miklar rannsóknir hafa fa...
Sögnin að jánka merkir 'játa einhverju (dræmt), segja já (með semingi)'. Um hana eru dæmi í seðlasöfnum Orðabókar Háskólans allt frá því á 17. öld. Hún er einnig til í færeysku sem jánka og gjánka 'dragast á, hálflofa einhverju'.
Ekki er vitað með vissu um upprunann. Giskað hefur verið á að sögnin sé blendingsm...
Strúturinn (Struthio camelus) er stærsti núlifandi fugl í heimi. Hann geta náð allt að 250 cm hæð og vegið yfir 130 kg. Í dag lifir strúturinn einungis í Afríku en áður var hann einnig algengur í Miðausturlöndum.
Strútar eru gríðalega sprettharðir og geta samkvæmt rannsóknum náð um 65 km hraða á klukkustund...
Upphafsstafir voru fátíðir í upphafi setninga í elstu handritum. Þeir voru þó oft notaðir í upphafi málsgreina og í byrjun kafla voru þeir iðulega stórir og skreyttir. Í eiginnöfnum eða örnefnum voru þeir nánast aldrei notaðir. Þessi ritvenja hélst fram um 1500 eða fram á 16. öld.
Þegar kom fram á 16. öld voru...
Þyngstu ræktunarafbrigði hunda (Canis familiaris) eru enskir mastiffhundar og bernharðshundar. Meðalþyngd fullvaxinna karlhunda af þessum afbrigðum eru um 77-91 kg.
Að öllum líkindum er þyngsti hundur sem sögur fara af mastiffhundur sem reyndist vera rúm 144 kg og mældist 88,7 cm á herðakamb. Þyngsti bernharðs...
Mörgæsir eru af flokki fugla sem nefnist á latínu Sphenisciformes, og tilheyra ættinni Spheniscidae. Ættin telur alls 17 tegundir og lifa þær allar á suðurhveli jarðar. Þær eiga það allar sameiginlegt að hafa tapað hæfileikanum til að fljúga, en flestar tegundirnar lifa á mjög afskekktum eyjum í suðurhöfum þar sem...
Upphafið var sennilega um 1940, en þá tók fólk upp á því að blanda malt með gosdrykkjum til að drýgja það, því að maltið var mjög dýr drykkur. Egils appelsín var ekki til á þessum tíma, að minnsta kosti ekki í núverandi mynd, en ýmsir aðrir drykkir voru notaðir. Þetta virðist hafa verið nokkuð algengt.
Þegar Eg...
Vatnsafl og jarðhiti eru helstu orkulindir Íslendinga. Í svari Braga Árnasonar við spurningunni Hvað er að segja um vetni sem orkugjafa framtíðarinnar? er meðal annars fjallað stuttlega um orkubúskap Íslendinga í dag. Þar segir:Vatnsorka sem talið er hagkvæmt að virkja er um 30 TWh á ári. Þar af voru í árslok 1999...
Karafla er borðflaska undir vín eða vatn. Fleirtöluorðið er karöflur.
Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók er það tökuorð úr dönsku, 'karaffel'. Á ensku og frönsku heitir þetta 'carafe', á ítölsku 'caraffa' og á spænsku 'garrafa'. Orðsifjabókin og aðrar heimildir á Netinu telja að orðið sé upprunalega komið úr arabí...
Eins og fram kemur í svari Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni "Eru til staðfest dæmi þess að geimverur séu til?" hafa menn ekki enn fundið nein dæmi um líf annars staðar í geimnum en á jörðinni. Vísindamenn gera hins vegar fyllilega ráð fyrir því að það sé líf utan jarðar, en galdurinn er bara að finna það....
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!