Sögnin að jánka merkir 'játa einhverju (dræmt), segja já (með semingi)'. Um hana eru dæmi í seðlasöfnum Orðabókar Háskólans allt frá því á 17. öld. Hún er einnig til í færeysku sem jánka og gjánka 'dragast á, hálflofa einhverju'.
Ekki er vitað með vissu um upprunann. Giskað hefur verið á að sögnin sé blendingsm...
Skammstöfunin ADSL stendur fyrir 'asymmetric digital subscriber line' sem merkir 'ósamhverf stafræn notendalína'. Útlenda skammstöfunin er notuð óbreytt í íslensku máli.
ADSL er háhraða gagnaflutningsþjónusta sem nýtir hefðbundnar símalínur inn á Netið eða fyrirtækjanet. Með ADSL-þjónustu er notandinn sítengdur...
Loðna eru venjulega um 12-20 grömm á þyngd. Í einu tonni eru því sennilega á bilinu 50 þúsund til rúmlega 83 þúsund loðnur.
Ef við höldum áfram að leika okkur að tölum þá má geta þess að á árinu 2002 veiddu Íslendingar alls 1.083.119 tonn af loðnu. Miðað við fjölda einstaklinga í tonni má því gera ráð fyrir ...
Á Vísindavefnum er svar við fyrirspurn um mállýskur á Íslandi: Hvað eru margar mállýskur í íslensku og hverjar eru þær? eftir Guðrúnu Kvaran. Þar eru nefnd sex helstu einkenni á framburði.
Á Suðvesturlandi er linmæli ríkjandi, það er p, t og k eru borin fram ófráblásin eins og b, d og g. Orðin hrapa, láta og r...
Fyrir rúmum tuttugu árum var spurt um orðið silfurstíll í þáttum Orðabókar Háskólans um íslenskt mál en orðið virtist ekki koma fyrir í orðabókum. Allnokkur svör bárust og bar heimildarmönnum saman um að orðið væri notað um ákveðið prentletur. Margir nefndu að afar þeirra og ömmur hefðu lært að lesa á bókum prentu...
Rita má hvort heldur sem er ítarlega eða ýtarlega og hvort heldur sem er ítarlegur eða ýtarlegur, samkvæmt Stafsetningarorðabókinni (2006).
Ritháttur með í byggist á hugmynd um tengsl við íslenska lýsingarorðið ítur sem frá gamalli tíð merkir ‘ágætur, göfugur, fríður, glæsilegur’. Ritháttur með ý samsvarar dön...
Liðmús (e. joint mouse) er aðskotahlutur í liðholi, einkum í hné eða olnboga. Oftast er um að ræða brjósk- eða beinörðu sem hefur losnað við sköddun á liðnum, til dæmis við slys eða vegna slitgigtar. Lesa má um slitgigt í svari Magnúsar Jóhannssonar við spurningunni: Hvað er slitgigt?
Liðmús veldur því oft að...
Svo virðist sem web-integrator hafi ekki fengið íslenskt heiti. Málræktarsvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur heitið ekki í Orðabanka sínum yfir fræðiheiti á fjölmörgum sviðum.
Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands hefur ekki heldur tekið heitið fyrir á fundi en hún hefur séð um að íslenska...
Yfirleitt er ekki talað um þríhljóða í íslensku. Í Hljóðfræði Árna Böðvarssonar (Reykjavík 1979:86) er þó þessi klausa: „Til eru einnig þríhljóð, en þau eru fágæt í íslenskum framburði, þótt þau séu talin koma fyrir í samböndum eins og bági, rógi.”
Með þríhljóðum er átt við sérhljóða þar sem merkjanleg breytin...
Gella er slanguryrði og er notað um (glæsilega) stúlku. Í Orðabók um slangur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál segir um gellu (1982:40): "kona, stelpa, gljátík, tískudrós: sveitagella, snobbgella, plastgella, gellustígvél." Sumir nota orðið í neikvæðri merkingu en algengara virðist þó að nota það sem hrósyrð...
Íslenski hesturinn er ekki eini hesturinn í heiminum sem hefur tölt. Haustið 1998 for undirritaður ásamt Bjarna Eiríki Sigurðssyni til Nordnorsk Hestesenter í Troms með það í hugað að prófa hvort tölt fyndist í norðurnorska hestinum (Nordland/Lyngen hest).
Í Troms prófaði Bjarni níu norðurnorsk hross til að vi...
Í Orðabanka Íslenskrar málstöðvar, sem er í umsjón málræktarsviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, er íslenska orðið yfir web site ‛vefsetur’ en yfir web page ‛vefsíða’. Heimildirnar eru fengnar úr fleiri en einu orðasafni. Ef litið er í Tölvuorðasafn, sem gefið var út 2005, þá stendur vi...
Í íslenskum lögum nr. 6/2002 stendur: „Bannað er að flytja inn, framleiða og selja fínkornótt neftóbak og allt munntóbak, að undanskildu skrotóbaki.“
Munntóbak er vanalega grófkornóttara en neftóbak og er því komið fyrir í munnvikum, annaðhvort sem muldu tóbaki eða í grisjum (pokum). Skrotóbak er skilgreint sem...
Orðið mötuneyti er sett saman af orðunum mata ‛fæða, matur, nesti (í verið)’ og -neyti sem leitt er af sögninni neyta ‛njóta, eta, drekka’. Orðið þekkist þegar í fornu máli í merkingunni ‛hafa sameiginlegt ferðanesti, njóta matar með öðrum’. Mötunautur var þá sá sem var í mötuneyti með einhverjum...
Of stór til að falla er hugtak sem er oft notað í bankaheiminum til að lýsa bönkum sem talið er að miklar líkur séu á að hið opinbera muni koma til bjargar ef þeir lenda í vandræðum. Skýringin er að fall þeirra myndi valda svo mikilli röskun á efnahagslífinu og ýmiss konar tjóni að nær óhugsandi sé að það verði lá...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!