Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Hver eru einkenni og afleiðingar ofkælingar? Er hún alvarlegri en fólk almennt telur?
Ofkæling er lækkun á líkamshita sem getur valdið alvarlegum einkennum og jafnvel dauða. Um það bil 700 manns deyja árlega í Bandaríkjunum vegna ofkælingar.
Ofkæling verður þega...
Moskítóflugur eru mýflugur.
Tvívængjur (Diptera) skiptast í þrjá undirættbálka, Nematocera (mýflugur), Brachicera (ránflugur) og Cyclorapha (eiginlegar flugur). Nematocera, eða mýflugur, eru margar ættir, og þar á meðal eru hrossaflugur (Tipulidae), rykmý (Chironomidae), bitmý (Simuliidae) og moskítóflugur (Cu...
Segja má að spurningin sé tvíþætt: Er nú þegar bundið meira kolefni í skógum hitabeltisins en í norðlægum skógum? Eru hitabeltisskógarnir mikilvirkari í nýbindingu en skógar á norðurslóðum?
Varðandi geymslu kolefnis er talið að í öllum skógum heimsins séu bundin um 283 gígatonn (Gt) af kolefni (skýrsla FAO 200...
Hér er einnig svarað spurningunum: Er nærsýni ættgeng?
Hvað annað en erfðir valda því að fólk verður nærsýnt?
Eins og aðrir meðfæddir eiginleikar erfist sjón frá foreldrum til barna. Hún er ekki áunninn eiginleiki, þótt hana megi þjálfa að einhverju marki, og hún þroskast að sjálfsögðu frá því sem hún er við fæð...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Er sódavatn óhollt? Hefur koltvísýringurinn slæm áhrif á líkamann?Ekki er vitað til þess að koltvísýringur úr kolsýrðum drykkjum hafi nein alvarleg áhrif á líkamann. Koltvísýringur breytist í kolsýru í lausn og sýrir þannig lausnina eitthvað, en í flesta gosdrykki er einnig ...
Óson getur, jafnvel í litlu magni, verið skaðlegt barka og lungum. Hversu alvarlegur skaðinn verður veltur bæði á styrk ósonsins í loftinu og hversu lengi maður verður fyrir áhrifum þess. Þó getur hlotist alvarlegur og varanlegur skaði á lungum eða dauði af því að anda að sér tiltölulega litlu ósoni í mjög stuttan...
Kæruleysislyf er samheiti yfir nokkur lyf sem hafa róandi og slævandi áhrif og vinna gegn streitu. Þau eru gjarnan gefin fyrir aðgerð áður en sjúklingur er svæfður. Kostur þessara lyfja er að sjúklingur heldur meðvitund og getur fylgt fyrirmælum, svo sem að færa sig úr stað eða rétta út útlim, en þau valda einnig ...
Kúlufiskar (e. pufferfish eða blowfish) eru tegundir af nokkrum ættkvíslum fiska, svo sem Takifugu, Lagocephalus, Sphoeroides og Diodon. Fiskar þessir eru einnig þekktir undir japanska heitinu fugu og sama orð er notað í japanskri matargerð um rétti þar sem þeir koma við sögu.
Kúlufiskar innihalda lífshættuleg...
Nefholið er klætt slímhúð. Slímið eða horið gegnir mikilvægu hreinsi- og varnarstarfi og okkur nauðsynlegt. Þegar fólk kvefast sýkist slímhúðin og bólgnar. Þá verður slímmyndun mun meiri en vanalega. Afleiðingin er aukið nefrennsli og stundum nefstífla. Hægt er að lesa meira um nefslím í svari Hannesar Petersen v...
Þetta er góð spurning og mikilvæg þegar þetta er skrifað og við getum átt von á eldfjallagösum upp úr jörðinni hvenær sem er. Þau eru af ýmsum tegundum og áhrif þeirra á menn og náttúru ráðast einkum af efnafræðilegum eiginleikum þeirra eða kæfandi áhrifum. Þyngd eða eðlismassi (massa á rúmmálseiningu, oft mælt í ...
Athugasemd ritstjórnar: Þegar þetta svar var upphaflega skrifað var Plútó flokkaður sem ein af reikistjörnum sólkerfisins. 24. ágúst árið 2006 samþykkti Alþjóðasamband stjarnfræðinga aftur á móti nýja skilgreiningu á reikistjörnum. Plútó fellur ekki undir hana og telst nú til dvergreikistjarna. Reikistjörnurnar er...
Í tóbaksreyk eru yfir fjögur þúsund mismundandi efnasambönd, bæði lofttegundir, vökvi og örsmáar fastar efnisagnir. Í laufum tóbaksjurtarinnar eru um tvö þúsund efni.
Gera þarf greinamun á:efnasamsetningu laufa tóbaksjurtarinnarefnum sem bætt er í tóbak við vinnsluefnasamböndum í tóbaksreyknum sem myndast við...
Hér er væntanlega spurt um myglusveppi. Myglusveppir og gró þeirra finnast alls staðar í náttúrunni. Myglusveppir tilheyra svokölluðum sundrendum og hafa það hlutverk að brjóta niður og flýta fyrir rotnun á lífrænum leifum. Utandyra eru þeir skaðlausir en ef þeir hreiðra um sig inni í húsum, eins og stundum gerist...
Mænuskaði er skilgreindur sem skaði á mænu eða mænutaugum. Hann leiðir oft til varanlegra breytinga í styrk, skynjun og annarri líkamsstarfsemi fyrir neðan svæðið sem varð fyrir skaðanum. Mænuskaði er oftast afleiðing af höggi eða áverka sem brýtur eða færir hryggjarliði úr stað.
Í fæstum tilvikum rofnar mæna...
Bótúlíneitur (e. botulinum toxin) er taugaeitur sem framleitt er af bakteríunni Clostridium botulinum. Bakterían vex aðeins í súrefnissnauðu umhverfi, en myndar hitaþolin dvalagró við óhagstæðar aðstæður. Bótúlín er eitt af aleitruðustu efnum sem þekkjast, en einungis 1-2 ng/kg sprautað í vöðva eða æð, nægja til a...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!