Upplýsingar um kynlífshegðun fólks gefa okkur ekki tilefni til að ætla að konur hafni almennt kynlífi fyrir eða eftir blæðingar. Konur eru með mismunandi þrár og langanir til kynlífs sem tengjast margvíslegum þáttum sem reynt verður að minnast á í þessu svari en fyrst mun ég fjalla um blæðingar og viðhorf til þeir...
Gríska hugtakið evþanasia þýðir einfaldlega góður dauðdagi. Ég tengi þessa hugmynd einna helst við það þegar gamalt fólk fær hæglátan dauða í svefni í heimahúsi. Það er svo heppið að deyja Drottni sínum þjáningalaust og án afskipta heilbrigðisstétta, ef svo má segja.
Tilvik af þessu tagi eru aftur á móti sjald...
Það má líta á BIOS (Basic Input/Output System) eða grunnstýringarkerfi sem mjög einfalt stýrikerfi sem er á öllum PC-tölvum. Það er brennt inn í minni tölvunnar og því er yfirleitt ekki breytt.
Helsta hlutverk BIOS forritsins er að keyra tölvuna upp þegar kveikt er á henni. Þegar örgjörvi fær straum eftir að þa...
Hér er svarað eftirtöldum spurningum:
Hverjir voru sérrómversku guðirnir, þeir sem ekki samsvöruðu grísku guðunum? (Helga Guðrún Óskarsdóttir)Hverjir voru sérrómversku guðirnir og hvað var merkilegt við þá? Hverjar voru Vestumeyjarnar? (Dagný Ívarsdóttir)
Rómversk goðafræði er að langmestu leyti ættuð frá Forn...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Hver er munurinn á krákum og hröfnum? Segðu mér allt um krákur.
Krákur og hrafnar tilheyra ætt hröfnunga (Corvidae) sem er af ættbálki spörfugla. Um 115 tegundir teljast til ættar hröfnunga, þar af tilheyra um eða yfir 40 tegundir ættkvíslinni Corvus en í þeirri ættkvísl eru ...
Fyrirtækin AMD og Intel framleiða bæði nokkuð marga mismunandi örgjörva, þannig að það er líklega réttara að tala um "örgjörvafjölskyldur" AMD og Intel. Þessar örgjörvafjölskyldur hafa samt nokkur sérkenni, þannig að það er hægt að bera þær saman. Á undanförnum árum hafa fyrirtækin skipst á að vera með forystuna...
Orrar (Tetrao tetrix, e. black grouse) eru hænsnfuglar (Galliformes) af orraætt (Tetraonidae) líkt og rjúpan, en dæmi um aðra hænsnfugla eru nytjahænur, fasanar og kalkúnar.
Karlfuglinn er kallaður karri og hann er 49-55 cm að lengd, með svartan fjaðurham fyrir utan rauðleitar augabrúnir, hvítar rendur á vængj...
Snemma á 17. öld kom tékkneskur ferðamaður, Daniel Vetter, til Íslands. Hann ritaði frásögn um ferð sína (sjá tilvitnun að neðan). Þar má finna ýmsan fróðleik um landið. Sumt er með nokkrum ólíkindum en annað mjög upplýsandi.
Nákvæmt ártal heimsóknarinnar virðist fara eitthvað milli mála. Hér er engin afstaða t...
Hraði sameinda er háður hita, massa sameinda sem og formi (ham) efnisins. Hraði sameinda eykst með hita en minnkar með massa. Sameindir í vökva- eða storkuham eru ætíð í grennd við aðrar sameindir (sjá mynd 1) og verða þá fyrir krafthrifum.
Mynd 1. Á myndinni sést dæmigerð sameindabygging fastefnis til vinstri ...
Hröðun (e. acceleration) hluta er skilgreind sem hraðaaukning háð tíma. Þannig er til dæmis hægt að tilgreina hröðun kappakstursbifreiðar með því að tiltaka hve mikilli hraðaaukningu, til dæmis í km/klst, viðkomandi bifreið nái á sekúndu. Hröðunin væri þá gefin upp í einingunni km/(klst∙sek). Samkvæmt alþjó...
Haförninn (Haliaeetus albicilla) var friðaður á Íslandi árið 1913. Á árunum 1905 til 1908 hafði danski fuglafræðingurinn Richard Hörring ferðast um landið og sá á ferðum sínum um þekkt arnarsvæði afar fáa erni. Það var því ljóst að arnarstofninn hér á landi var hruninn og því nauðsynlegt að friða hann svo hann hyr...
Tilkoma ritvélarinnar, líkt og margra annarra uppfinninga, átti sér langa sögu og því hefur til dæmis verið haldið fram að einhvers konar ritvél hafi verið fundin upp 52 sinnum! Eitt helsta markmið ritvélarinnar var að gera fólki kleift að skrifa hraðar en mögulegt var með pennan einan að vopni.
Árið 1714 fékk...
Háskólalestin heimsótti Bolungarvík 10. og 11. maí 2019 og seinni daginn var haldin vísindaveisla í félagsheimili staðarins. Þar gátu gestir og gangandi meðal annars leitað að fornleifum, gert ýmsar tilraunir, leikið sér með ljós og rafmagn og leyst fjölmargar þrautir. Óhætt er að segja að hinn 11 ára Oliwier M. U...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Ég var að koma úr heimsókn þar sem upp kom umræðan um muninn á snákum og slöngum... Mér leið eins og fávita þegar ég hélt að þetta væri sami flokkur dýra og munurinn enginn, einungis orðið "slanga" óformlegara heiti á því sem er réttnefnt "snákur". Er ég fáfróður að þekkja ekki m...
Alls þekja stöðuvötn um 2.757 km2 af yfirborði Íslands eða sem samsvarar 2,68% af flatarmáli landsins. Á heimasíðu Landmælinga Íslands er að finna eftirfarandi lista yfir flatarmál helstu stöðuvatna landsins:
1.Þórisvatn (vatnsmiðlun)83-88 km2
2.Þingvallavatn82 km2
3.Lögurinn53 km2
4.Mývatn37 km2
5.Hvítárva...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!