Vogurinn heitir Elliðaárvogur að réttu lagi. Í Landnámabók er nefndur Elliðaárós fyrir neðan heiði (það er Mosfellsheiði) (Íslenzk fornrit I, bls. 384). Í sóknarlýsingu frá 1855 eftir sr. Stefán Þorvaldsson er ýmist nefndur Elliðaárvogur eða Elliðaárvogar (Gullbringu- og Kjósarsýsla. Sýslu- og sóknalýsingar. Rvk....
Nafnið Eyjafjörður er í Íslendingabók og Landnámabók. Í hinni síðarnefndu segir að Helgi magri og félagar „kölluðu Eyjafjörð af eyjum þeim, er þar lágu úti fyrir“ (Íslenzk fornrit I:250). Þeir voru þá líklega staddir á Hámundarstaðafjalli sunnan Dalvíkur.
Álitið hefur verið að þarna sé átt við Hrólfssker og Hr...
Í heild hljóðaði spurningin svona:
Langar að vita merkingu nafnsins Másvatn, er það af því að þar er oft vindur eða kennt við einhvern Má?
Líklega er nafnið kennt við mannsnafnið Már; þó nefna Árni Magnússon og Páll Vídalín Mársvatn í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu einnig Mósvatn í Jarðabókinni (XI:188).
...
Orri Vésteinsson er prófessor í fornleifafræði við Sagnfræði- og heimspekideild Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Hann fæst einkum við rannsóknir á fornleifafræði Norður Atlantshafs – Íslands og Grænlands – á víkingaöld og miðöldum.
Orri hefur stjórnað uppgröftum víða um land, sérílagi á Norðausturlandi, til d...
Já, íslenska er notuð í geimnum! Ekki þó í þeim skilningi að þar tali menn almennt íslensku heldur eru til nokkrir staðir í sólkerfinu sem bera íslensk heiti. Frá árinu 1919 hefur það verið í verkahring nafnanefndar Alþjóðasambands stjarnfræðinga (e. International Astronomical Union) að nefna fyrirbæri á hnöttum s...
Hellisheiði er í vestanverðri Árnessýslu. Vestarlega á henni er Hellisskarð, kallað Öxnaskarð að fornu, nálægt Kolviðarhól. Í Árbók Ferðafélags Íslands árið 2003: Í Árnesþingi vestanverðu, eftir Þór Vigfússon er fjallað um nafnið Hellisheiði með eftirfarandi orðum:Ekki er vitað hví Hellisheiði heitir svo, enginn e...
Spurningin öll hljóðaði svona: Það er til enskt orð sem er „Eskir“. Það er notað um fjöll sem eru flöt á toppnum eins og þau sem umkringja Eskifjörð. Ég hef á tilfinninguni að enskir sjómenn fyrr á öldum hafi því gefið firðinum nafnið Eskirfjord. Eski = Askja. Askja er gömul eldstöð í enda fjarðarins og erfitt að ...
Bærinn er vafalítið kenndur við mann að nafni Kleppjárn. Mannsnafnið kemur fyrir í Landnámabók, Kleppjárn Einarsson (Íslenzk fornrit I, 140) og Kleppjárn inn gamli Þórólfsson (Ísl. fornrit I, 57). Auk þess er nefndur Hyrningur Kleppjárnsson (Ísl. fornrit I, 86nm). Kleppjárnsreykir eru ekki nefndir í Landnámabók, e...
Upphaflega spurningin hljóðaði svona: Ég hef séð á mörgum kortum af landinu að Langjökull er nefndur Baldjökull. Hvenær og af hverju átti þessi nafnabreyting sér stað?
Nafnmyndin Baldjökull er eldra nafn á Eiríksjökli eða norðvesturhluta Langjökuls og er upphaflega nafnmyndin Balljökull (nefndur til dæmis í Harða...
Upphaflega hét fossinn í Hvítá í Borgarfirði Bjarnafoss (Heiðarvíga saga, Íslenzk fornrit III:297) en ekki er vitað hvenær nafnið breyttist í Barnafoss.
Bjarnafoss er enn til á sömu slóðum í Borgarfirði, í Norðlingafljóti í landi Kalmanstungu ofan við Núpdælavað, nærri alfaraleið, Núpdælagötum, upp til Arnarva...
Algengt er að tala um Borgarfjörð eystri og er þeirri venju til dæmis haldið í ferðaauglýsingum frá héraðinu. Sjaldan er talað um Borgarfjörð vestri eða vestari. Þeir sem tala um Borgarfjörð eystra eru með í huga Borgarfjörð fyrir austan. Sé leitað að nöfnunum Borgarfjörður eystri og Borgarfjörður eystra í leitarv...
Í heild hljóðar spurningin svona:
Hvort er réttara að skrifa Krýsuvík eða Krísuvík? Báðar útgáfur af þessu orði koma fyrir í fræðiritum og bókum.
Í Landnámu (Íslensk fornrit I:392 og víðar) og fornbréfum er nafnið ritað Krýsuvík. Uppruni þess er óviss. Alexander Jóhannesson taldi að forliður nafnsins gæti verið...
Óþoli er mjög hátt fjall norðan til við dalsmynnið á Gerðhamradal við Dýrafjörð. Þórhallur Vilmundarson telur að merking nafnsins sé ‚hinn óþolinmóði, sá sem bíður ekki‘ og virðist höfða til snjóflóðahættu (Grímnir 2, 116-118).
Undir fjallinu stendur bærinn Arnarnes, og segir í Jarðabók Árna Magnússonar og Pál...
Hafnarfjall er nefnt eftir bænum Höfn í Melasveit sem stendur við sunnanverðan Borgarfjörð. Bærinn er nefndur í Landnámabók (Ísl. fornrit I, bls. 66) þar sem landnámsmaðurinn Hafnar-Ormr bjó.
Ekki eru heimildir um sérstaklega góða höfn þar en í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín 1707 er nefnt að lending...
Um 1940 voru dásamlegir tímar í íslenskri miðaldasagnfræði, fræðimenn trúðu flestum Íslendingasögunum eins og nýju neti um menn og málefni 10. aldar en þeirri dýrð lauk um 1950. Því olli líklega einkum að bókfestukenningin svonefnda hafði skotið rótum. Hún nefndist öðru nafni íslenski skólinn og samkvæmt henni vor...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!