Vilmundur Jónsson landlæknir stakk upp á heitinu veira snemma á sjötta áratug 20. aldar í stað tökuorðsins vírus sem notað hafði verið um skeið. Elstu dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans um veiru eru frá um 1955.
Sigurður Pétursson gerlafræðingur, sem kaus frekar orðið vírus, skrifaði grein í Náttúrufræðin...
Í heild var spurningin svona:Mig langar að spyrja hvernig mynduðust Knútstaðaborgir í Aðaldalshraun í S-Þingeyjarsýslu. Þetta eru einhverskonar hraunhólf sem sum eru opin að ofan.
Knútstaðaborg mun vera hraundrýli (alþj. hornito) en mörg slík eru í Aðaldalshrauni sem er hluti af Laxárdalshrauni yngra. Hraunið e...
Í Íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blöndal frá 1924 er „almannafje“ þýtt á dönsku sem „offentlige Midler“ og hugtakið almannasjóður hefur tvær þýðingar:„offentlig Kasse“ og(ríkissjóður) „Statskasse, Landskasse“.[1]
Dæmi úr Ritmálssafni Orðabókar Háskólans[2] hníga öll í þá átt að með almannafé sé átt við ráðstö...
Rithöfundurinn sem kallaði sig Þorgils gjallanda hét réttu nafni Jón Stefánsson (1851-1915) og var þingeyskur bóndi. Hann spratt úr því menningarumhverfi sem þróaðist á heimaslóðum hans í Suður-Þingeyjarsýslu undir lok 19. aldar þar sem ungt fólk sameinaðist um að kaupa og lesa nýjar og róttækar norrænar bókmennti...
Í mörgum tilvikum hefur sú hefð myndast að staðfæra nöfn á löndum og borgum. Má þar nefna sem dæmi að við tölum um Þýskaland en ekki Deutschland, Svíþjóð en ekki Sverige, Kaupmannahöfn en ekki København.
Myndast hefur hefð að staðfæra nöfn á löndum og borgum. Hér má sjá Strusta-vatn í Hvíta-Rússlandi.
Nafnið ...
Mozart (1756-1791) var tvímælalaust eitt helsta óperutónskáld sögunnar. Hæfileikar hans fólust ekki síst í óvenjulegu næmi á innra líf sögupersónanna, sem gerði honum kleift að semja tónlist sem speglar hræringar sálarinnar hverju sinni. Hann greinir persónur sínar að hvað stíl snertir og gefur þannig persónusköpu...
Upprunalegu spurningarnar hljóðuðu svona:Hvernig virkar endurheimt votlendis og er það besta leiðin til að berjast gegn loftslagsvánni?
Af hverju að breyta ræktuðu landi í mýrlendi aftur? Hvernig getur mýrlendi "mengað" minna en graslendi sem er þurrt?
Er endurheimt votlendis inni í Parísarsamkomulaginu? Er hún ...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svo:Er hægt að mjólka hval? Eru einhverjir sem selja hvalamjólk?
Áður en þessari spurningu er svarað er rétt að útskýra fyrst hvalaspenann. Eins og aðrar spendýramæður hafa hvalamæður spena. Speninn er að vísu ekki sýnilegur nema þegar hann er örvaður. Spenarnir eru tveir og st...
Felix Mendelssohn (1809-47) var eitt mesta undrabarn tónlistarsögunnar. Hann samdi ótrúlegt magn tónverka á unga aldri, sextán ára hafði hann til dæmis samið fjórtán sinfóníur fyrir strengi og eina fyrir fullskipaða sinfóníuhljómsveit. Mendelssohn var af einni auðugustu gyðingaætt Berlínar. Moses afi hans var meða...
Fyrst er nauðsynlegt að segja nokkur orð um vetni, einföldustu frumeindina.
Algengasta form vetnis hefur eina rafeind sem sveimar um eina róteind í kjarna. Í loftkenndu ástandi myndar vetni tvíatóma sameind, H2. Vetni er mjög hvarfgjarnt við súrefni og það brennur með mikilli varmamyndun og umbreytist í vatnsg...
Stjörnuþyrping er hópur stjarna sem haldast saman á litlu svæði vegna þyngdaraflsins. Stjörnuþyrpingum má skipta í kúluþyrpingar og lausþyrpingar. Stjörnuþyrpingum má þó ekki rugla saman við vetrarbrautir sem eru miklu stærri og stjörnur þeirra laustengdari. Í flestum vetrarbrautum er bæði að finna kúluþyrpingar o...
Um Karl von Frisch er einnig fjallað í svari eftir sama höfund við spurningunni: Hvað getið þið sagt mér um ævi Karls von Frisch?
Karl von Frisch (1886-1982) er þekktastur fyrir rannsóknir sínar á atferli evrópsku hunangsbýflugunnar, Apus mellifera carnica. Á búgarði fjölskyldu hans í Brunnwinkl við Wolfgangsee...
Edward Jenner hefur yfirleitt verið álitinn brautryðjandi bólusetninga gegn bólusótt og stundum kallaður faðir ónæmisfræðinnar. Rannsóknir Jenners á ónæmisaðgerðum með kúabóluvessa gegn bólusótt árið 1798 gáfu mönnum í fyrsta sinn von um að loks væri hægt að ná tökum á þessum hræðilega sjúkdómi.
Edward Jenner f...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hver er munurinn á köku með hvítum sykri og köku með döðlum, ef sykurinnihaldið er það sama? Er döðlukakan hollari? Hvernig lýsir það sér? Tekur líkaminn upp sykurinn á mismunandi hátt?
Ég býst við að hér sé verið að bera saman annars vegar hefðbundna köku sem innih...
Næstum allt sem vitað er um Haugsnesbardaga er í Sturlunga sögu, í þeim hluta hennar sem talið er að hafi upphaflega verið saminn sem Þórðar saga kakala en síðan tekinn inn í safnritið Sturlungu. Bardaginn var háður 19. apríl 1246 við Djúpadalsá í Skagafirði þar sem hún rennur að austan niður í Skagafjörð. Bardagi...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!