Orðið skráveifa er gamalt í málinu. Það er kunnugt allt frá því á 14. öld sem viðurnefni Jóns nokkurs Guttormssonar skráveifu en hann var lögmaður norðan og vestan 1361. Um hann var ort og skráð í Flateyjarannál:Jón skreiddist skjótt
skráveifa hljótt
kamarsaugað út
við ærna sút.Upprunaleg merking orðsins er óvi...
Ef við trúum því að Guð hafi skapað alla hluti, hvern um sig og í þeirri mynd sem þeir eru núna, þá hefur hann bara gert það þannig og við getum ekki spurt nánar út í það.
Hins vegar er vel hægt að trúa á Guð án þess að gera ráð fyrir að hann hafi skapað hvern hlut sérstaklega. Hann hafi þá kannski bara sett he...
Kvistur merkir í raun grein og kvistir í viði eru för eftir greinar sem bolurinn hefur vaxið utan um. Flestar greinar byrja að vaxa um leið og toppsprotar. Á barrtrjám og ungum lauftrjám er oftast einn toppsproti, sem vex á hverju ári og leggur grunninn að bol trésins. Á eldri lauftrjám með breiða krónu geta topps...
Till Ugluspegill eða Till Eulenspiegel eins og hann nefnist á frummálinu, er söguhetja í þýskri arfsögn frá miðöldum. Hann var hrekkjalómur og prakkari sem átti að hafa verið uppi á fyrri hluta 14. aldar.
Elsta varðveitta prentaða bókin um Ugluspegil er á þýsku frá árinu 1515 og nefnist hún Skemmtileg saga um T...
Svarthol verða til þegar kjarnar stjarna falla saman undan eigin þunga. Allur massi stjörnunnar er þá samankominn á örlitlu svæði. Í kringum þetta svæði er þyngdarsviðið svo öflugt að ekkert sleppur þaðan, ekki einu sinni ljós.
Þyngdarsvið svarthola er svo gífurlegt að það sýgur allt efni í sig sem fer of nálæg...
Það er rétt hjá spyrjanda að orðið þjóðernisvitund er ekki í 3. útgáfu Íslenskrar orðabókar Eddu sem kom út árið 2002, né í 2. útgáfu Bókaútgáfu Menningarsjóðs frá 1983.
Reyndar er það þannig að samsett orð finnast ekki alltaf í orðabókum enda eru ótal margar leiðir til að setja saman orð. Sumar slíkar samsetni...
Sólin er núna um 4,6 milljarða ára gömul. Áætlað er að heildarlíftími hennar sé um 10 milljarðar ára og er sólin okkar því tæplega hálfnuð með líftíma sinn.
Til eru fjölmörg svör á Vísindavefnum um sólina, til dæmis:
Af hverju er sólin til?
Hvernig varð sólin til?
Hvenær mun sólin deyja út?
Af hverju er só...
Ef ég skil spurninguna rétt á spyrjandi við af hverju okkur finnst oft að ský séu í laginu eins og manneskjur, sérstaklega andlit. Líklegasta ástæðan er að aðrar manneskjur skipta okkur miklu máli. Það er til dæmis mikilvægt að við getum hratt og vel lesið í andlitsdrætti fólks til að vita hvernig því liður og hva...
Orðið purka, sem er síðari liðurinn í orðinu svefnpurka, hefur fleiri en eina merkingu. Það getur merkt ‘gylta’ og ‘nirfill’, ‘eitthvað smávaxið’, til dæmis um smásilung, og er þá merkingu að finna í danska orðinu purk ‘smástrákur’ og í sænskum mállýskum í orðinu purka ‘stutt og digur kona’. En purka getur einnig...
Margir hafa örugglega fundið fyrir verk þegar þeir borða ís. Verkurinn kemur yfirleitt fram nokkrum sekúndum eftir að maður hefur borðað mjög hratt eitthvað kalt. Oftast finnum við fyrir verknum í miðenninu, en hann getur þó einnig verið í gagnaugum og augntóftum.
Þegar eitthvað mjög kalt kemst í snertingu við ...
Uppleyst efni í mýravatni eru einkum af þrennum toga:lífræn kolefnasambönd úr rotnandi gróðurleifum,
uppleyst efni úr berggrunni, öskulögum og áfoki (til dæmis járn, magnesín, kalsín, kísill), og loks
efni úr andrúmslofti og regni (súrefni, koltvísýringur, nitur).
Undir yfirborði mýrarinnar er vatnið súrefnissn...
Vákar (Buteo) eru ættkvísl ránfugla sem telur tæplega 30 tegundir og er innan haukaættar (Accipitridae). Vákar eru ekki hluti af íslensku fuglafánunni en tvær tegundir, fjallvákurinn, (Buteo lagopus) og músvákur eða (Buteo buteo) hafa flækst hingað til lands.
Fjallvákur er meðalstór ránfugl, oftast á bilinu 5...
Vogurinn heitir Elliðaárvogur að réttu lagi. Í Landnámabók er nefndur Elliðaárós fyrir neðan heiði (það er Mosfellsheiði) (Íslenzk fornrit I, bls. 384). Í sóknarlýsingu frá 1855 eftir sr. Stefán Þorvaldsson er ýmist nefndur Elliðaárvogur eða Elliðaárvogar (Gullbringu- og Kjósarsýsla. Sýslu- og sóknalýsingar. Rvk....
Þegar í upphafi Íslands byggðar voru höfuðáttirnar fjórar: suður, vestur, norður og austur. Í fornu máli merkti orðið út meðal annars ‛í vestur frá Noregi’. Á milli höfuðáttanna voru því einnig notaðar áttatáknanirnar útsuður, það er suðvestur, og útnorður, það er norðvestur, til að tákna áttina nákvæmar. Á ...
Aðalfartími heiðlóunnar (Pluvialis apricaria) er frá septemberlokum til byrjun nóvember. Því er ekki óeðlilegt að sjá lóur á Íslandi fram í nóvember. Það er einnig vel þekkt að heiðlóur hafi hér vetrardvöl. Til dæmis voru nokkrar lóur sem dvöldu á Seltjarnarnesi veturinn 2008 til 2009. Það er ekki ólíklegt sökum h...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!