Í þýska fánanum eru þrír litir, svartur, rauður og gylltur. Til eru tvær kenningar um uppruna þeirra. Önnur þeirra segir að litirnir séu komnir frá búningum Lützow Free Corps, sem var hreyfing stúdenta og menntamanna sem hafði það markmið að frelsa Þýskaland undan oki Napóleóns.
Hin kenningin segir að litirnir...
Það eru erfðir sem stýra háralit okkar. Nokkur gen hafa áhrif á húð- og háralit og genin geta komið saman á ýmsa vegu enda er háralitur manna mjög mismunandi.
Það er litarefnið melanín sem gefur hárinu lit. Tvö afbrigði eru til af því, faeómelanín (gult, rautt) og eumelanín (dökkbrúnt, svart). Í dökku hári er a...
Ef skoðaður er tegundalisti yfir skordýr sem lifa að jafnaði á Suðurskautslandinu er ekki að sjá að fiðrildi (Lepidoptera) tilheyri tegundafánu þessa kalda meginlands.
Örfáar fiðrildategundir finnast hins vegar á suðlægum eyjum í grennd við álfuna til að mynda Pringleophaga kerguelensis sem lifir á hinni afsk...
Orðasambandið e-r hefur marga fjöruna sopið er notað um þann sem hefur öðlast mikla reynslu og þroska, oft vegna einhverra erfiðleika. Dæmi um það í þessari mynd eru til í ritmálssafni Orðabókar Háskólans allt frá síðari hluta 18. aldar og er þar bent á að líkingin sé sótt til lífs sela. Heldur eldra eða frá uppha...
Alzheimers-sjúkdómurinn er hrörnunarsjúkdómur sem herjar helst á miðaldra fólk eða aldraða. Hann leiðir til minnistruflana og annarra truflana við hugsun og heilastarfsemi.
Fólk fær Alzheimers-sjúkdóm vegna þess að heili þess hrörnar; taugafrumum fækkar og sömuleiðis taugatengingum á milli þeirra.
Í svari M...
'Að hafa ekki grænan' er stytting á orðtakinu 'að hafa ekki grænan grun'. Merking þess er að hafa ekki hugmynd um eitthvað, að standa algjörlega á gati.
Hér er enn ósvarað af hverju grunurinn er grænn. Guðrún Kvaran segir í svari sínu við spurningunni Hvaðan kemur græni liturinn í "einum grænum hvelli"? að græ...
Eins og flest önnur villt dýr geta mörgæsir bitið frá sér við ákveðnar kringumstæður.
Þó mörgæsir séu tannlausar geta þær skilið eftir sig merki.
Mörgæsir verja hreiður sín fyrir óboðnum gestum með því að bíta frá sér og slá með vængjunum. Á fengitíma eiga karldýrin það líka til að bíta hvert annað. Vísindame...
Það er gömul hefð að halda upp á 1. apríl á einhvern hátt, til dæmis með því að hrekkja og gabba fólk. Á miðöldum var haldið upp á nýtt ár á vorjafndægri 25. mars og 1. apríl var þá síðasti og áttundi dagurinn í þeim hátíðahöldum. Samkvæmt fornri hefð stóðu merkilegar hátíðir í átta daga.
Hægt er að lesa meira ...
Talið er að allar fuglategundir geti borið fuglaflensuveiruna í sér, einnig lóur. Enn er þó ekki vitað til þess að fuglaflensuveira hafi greinst í lóum. Þess vegna er ólíklegt að lóan verði fyrst til þess að bera veikina til Íslands. Það mun að minnsta kosti ekki gerast í ár, því lóurnar eru allar komnar til lands...
Spyrjandi á líklega við það að uppi hafa verið hugmyndir um að súrefni geti bæst við lofthjúpinn á Mars og þannig gæti orðið lífvænlegra þar en nú er. Súrefnið í loftthjúpi jarðar er einmitt komið til á svipaðan hátt, löngu eftir að hún og lofthjúpur hennar urðu til. Það fór að vaxa í lofthjúpnum eftir að plöntur ...
Orðið heimur kemur fyrir í nokkrum orðtökum þar sem fyrir koma tveir heimar. Fyrir utan þau sem nefnd eru í fyrirspurninni eru til dæmis vera milli heims og Heljar, vera milli tveggja heima og vita hvorki í þennan heim né annan.
Hugmyndin er rakin til þeirrar fornu trúar að við dauðann komist menn í eitthvert ...
Þegar farið var af stað með Vísindavefinn 29. janúar árið 2000 óraði engan fyrir hversu vinsæll hann yrði. Búist var við að nokkrar spurningar bærust á viku og þeim yrði svarað svo til jafnóðum. Fljótlega kom hins vegar í ljós að fróðleiksþyrstir Íslendingar voru fjölmargir og spurningaflóðið langtum meira en nokk...
Efnið sem kemur upp í eldgosum er misheitt og ræður þar miklu hver samsetning þess er. Kvikan sem kemur upp er gjarnan flokkuð eftir því hversu mikið kísilsýrumagn hún inniheldur.
Heitasta kvikan er basísk kvika en hún inniheldur minnst af kísilsýru. Basalthraun, algengasta tegund hrauna á Íslandi, eru einmitt...
Talsíminn var fundinn upp um eða eftir miðja 19. öld. Ekki er fullkomið samkomulag um hver eigi heiðurinn að þessari uppfinningu. Þó er ljóst að Alexander Graham Bell (1847-1922) fékk einkaleyfi fyrir símtæki 7. mars árið 1876.
Lesa má nánar um Bell í svari Ulriku Anderson við spurningunni Hver fann upp símann...
Þuríður Þorbjarnardóttir fjallar um neglur í svari við spurningunni Hvað eru neglur? Þar segir um hlutverk þeirra:Neglur gegna því hlutverki að hjálpa til við að grípa utan um hluti og meðhöndla þá. Einnig vernda þær fremstu hluta fingra og táa, sem eru afar næmir, eins og hver sá hefur kynnst sem nagað hefur neg...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!