Manneskjur urðu til við þróun rétt eins og allar aðrar lífverur á jörðinni. Yfirlit yfir spurningar og svör um þróun, þá sérstaklega þróun mannsins, má finna í svari Páls Emils Emilssonar við spurningunni Hvar á netinu get ég nálgast upplýsingar um þróun manna?
Það er samt eiginlega ekki hægt að segja að neinn ...
Í orðasambandinu að fara undan í flæmingi er flæmingur nafnorð sem annars vegar merkir ‘flakkari’ og hins vegar ‘flakk, flækingur’. Það er síðari merkingin sem á við hér.
Þetta er flæmingi, en fer hann undan í flæmingi?
Að fara undan í flæmingi merkir annars vegar ‘að þvælast fyrir á undanhaldi, hopa á hæli...
Werdnig-Hoffman veiki (e. Werdnig Hoffman disease, infantile spinal muscular atrophy) er arfbundinn vöðvarýrnunarsjúkdómur. Hann orsakast af hrörnun hreyfitaugafrumna í mænu og heilastofni.
Veikin kemur yfirleitt í ljós í móðurkviði eða fyrstu mánuðina eftir fæðingu. Á síðustu mánuðum meðgöngu gætu fósturhreyfi...
Það hættir að snjóa í Reykjavík þegar ekki er lengur nógu kalt og rakt í háloftunum yfir okkur til að snjór geti fallið.
Ástæðan fyrir því að það snjóar á veturna í Reykjavík en ekki á sumrin er sú að á veturna er loftið kalt og rakt. Stundum getur þó verið nógu kalt og rakt á sumrin til að snjói, einkum á fjöl...
Alls hafa tólf menn komið til tunglsins og tíu til viðbótar komist á braut um það. Allir fóru þeir á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA.
Menn stigu í fyrsta skipti á tunglið þann 20. júlí 1969 en það voru þeir Neil Armstrong og Edwin „Buzz“ Aldrin. Þeir voru í um 2 ½ klukkustund á tunglinu.
Næstu...
Svonefndar kúskeljar (Arctica islandica) ná hæstum aldri allra dýra. Vísindamenn frá Bangor-háskóla fundu nýlega lifandi kúskel fyrir norðan Ísland sem þeir telja að sé rétt rúmlega 400 ára gömul.
Svona lítur kúskel út.
Kúskelin sem þeir fundu var þess vegna á sínu bernskuskeiði um það leyti sem enska leikritask...
Fílar drekka ekki með rananum heldur sækja þeir vatn með honum og dæla síðan upp í munninn á sér.
Fílar drekka ekki með rananum en þeir nota hann til að dæla vatni upp í munninn.
En af hverju gera þeir það? Þeirri spurningu verður vart svarað með öðrum hætti en að slíkt er hentugt fyrir þá þar sem þeir eru afar ...
Hvirfilbyljir eða skýstrókar eru ógnarhvassar en smáar hringiður í neðsta hluta gufuhvolfsins, sumir hafa kannski séð hvirfilbylji í bíómyndum. Fellibyljir eru hins vegar víðáttumikil óveður sem ná frá yfirborði jarðar upp að veðrahvörfum. Það er algengt að skýstrókar myndist í fellibyljum.
Skýstrókar og fellib...
Ljósir hlutir endurkasta yfirleitt sólarljósinu sem fellur á þá. Hvítt blað endurkastar til dæmis nær öllu sólarljósinu og það er einmitt ástæðan fyrir því að blaðið er hvítt. Hvítt sólarljós er nefnilega blanda af öllum litum. Ef við litum blaðið grænt þá gleypir það í sig aðra liti úr sólarljósinu en einmitt þan...
Allt vatn á yfirborði jarðar og í andrúmsloftinu hefur upprunalega borist þangað sem eldfjallagufur úr eldgosum. Um hringrás vatnsins má lesa nánar í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurningunni Hvaðan kemur vatnið?
Í svari við spurningunni Hve margir lítrar af vatni eru í sjónum? eftir Ulriku Andersson er fj...
Fiseindir (e. neutrinos) teljast til öreinda, en allt efni í alheiminum er samsett úr litlum einingum sem vísindamenn nefna öreindir. Í minnstu hlutum er aragrúi öreinda. Fiseindir hafa lengi þótt mjög dularfullar. Þær víxlverka mjög lítið við annað efni og hafa löngum verið taldar hafa nær engan kyrrstöðumassa
...
Sambandið að detta í það er ekki gamalt í málinu um að neyta áfengis ríkulega oftast samfara einhverri skemmtun en þó ekki alltaf. Margur dettur í það einn með sjálfum sér.
Elstu dæmi Orðabókar Háskólans eru frá síðari hluta 20. aldar en sambandið getur vel verið eitthvað eldra. Í Íslenskri orðabók (2002: 213)...
Kínín er það sem nefnist lýtingur (e. alkaloid) á íslensku. Önnur orð yfir sama hugtak eru alkalóíði, beiskjuefni og plöntubasi. Í svari við spurningunni Hvað er alkaloid og hvernig er það íslenskað? segir þetta um lýting:Lýtingur er flokkur basískra, lífrænna köfnunarefnissambanda sem myndast í plöntum. Lýtingar ...
Það gæti vel verið að til sé annar alheimur en við höfum engan möguleika á því að komast að því hvort svo sé eða ekki! Hugtakið annar alheimur felur nefnilega í sér að handan þess alheims sem við búum í sé annar alheimur sem er algjörlega aðgreindur frá okkar eigin alheimi. Ef hann væri ekki aðgreindur frá okkar e...
Örgjörvi (e. processor/CPU) notar tíðnigjafa til að búa til púlsað klukkumerki. Þessi tíðnigjafi kallast oscillator crystal og er oftast gerður úr kristal. Örgjörvinn notar þetta klukkumerki til að stýra allri sinni innri vinnslu.
Bakhlið (til vinstri) og framhlið (til hægri) örgjörva.
Örgjörvar eru seldir for...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!