Nikótín hefur ýmis áhrif á líkamann eins og lesa má í svari Öldu Ásgeirsdóttur við spurningunni: Hvaða hættulegu efni eru í sígarettum? Nikótín losar meðal annars dópamín sem er taugaboðefni í heilanum. Dópamínbrautir heilans hafa verið kallaðar ýmsum nöfnum til dæmis „umbunarkerfið“ eða „fíknikerfið“. Losun á dóp...
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er það haft að leiðarljósi við jarðgangagerð að gatið sem slíkt með styrkingum standi í hundrað ár, og sem dæmi má nefna að í Noregi eru til 100 ára gömul göng í notkun. Þá er líklega hægt að endurstyrkja, setja fleiri bolta og sprauta steypu. Rafmagnsbúnaðurinn í göngum endis...
Í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni: Hvaða munur er á ljósu og dökku hári? kemur eftirfarandi fram:
Hárlitur stafar af litarefninu melaníni sem er myndað af litfrumum í merg hársekks. Eftir myndun færist melanínið í hárrótina, það er að segja þann hluta hárs sem er undir húðþekju og síðan upp í hárs...
Eldgos er náttúrleg aðferð jarðarinnar til að losna við varma sem er annars vegar af völdum geislavirkra efna í jörðinni og hins vegar frá jarðkjarnanum. Hægt er að lesa meira um af hverju eldgos verða í svari Ármanns Höskuldssonar við spurningunni Hvað er eldgos?
Gosaska myndast þegar glóandi kvika eða bergbr...
Í svari HMH við spurningunni: Hvað er Bermúdaþríhyrningurinn? stendur:
Bermúdaþríhyrningurinn svokallaði er svæði á Norður-Atlantshafi sem má afmarka með þríhyrningi sem dreginn er frá Miami í Flórída til Bermúda-eyja og þaðan til Púertó Ríkó. Þar hafa yfir 50 skip og 20 flugvélar horfið frá því um miðja 19. öld,...
Segja má að þróunarkenningin sé til vegna þess að sett hafi verið fram tilgáta um þróun lífsins. Þegar vísindamenn rannsaka ákveðna hluti setja þeir fram tilgátu, því næst þarf að framkvæma tilraunir eða athuganir sem annaðhvort hrekja tilgátuna eða staðfesta hana. Ef tilgátan stenst athuganir nær hún að endingu þ...
Hér er hlaupið fram og til baka.Atviksorðsliðurinn til baka er tvö orð. Við skrifum 'farðu til baka' alveg eins og ritað er 'farðu til vinstri' eða 'farðu til hægri'. Eins er skrifað að eitthvað sé 'baka til'.
Í svari Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Er rétt að Darwin hafi dregið kenningu sína til baka...
Í staðlinum Upplýsingatækni – íslenskar kröfur ÍST 130:2004:12 frá Staðlaráði Íslands stendur um þetta:Íslensku skal að jafnaði rita með íslenskum bókstöfum. Ef tiltækur búnaður leyfir það ekki má hafa þetta til viðmiðunar:
Upprunalegur stafur
Staðgengill
á/Á
a...
Kettir svitna mjög lítið þar sem þeir hafa einungis örfáa svitakirtla en kettir og hundar eiga það sameiginlegt að svitna aðeins neðan á loppunum. Kettir eru hins vegar þannig úr garði gerðir að þeir eiga alls ekki erfitt með að eyða heilum degi úti í sólinni þótt þeir séu einungis með örfáa svitakirtla.
Kettir...
Beringssund er sundið á milli Desnjév-höfða í Rússlandi, sem er austasti hluti meginlands Asíu, og Prince of Wales-höfða í Alaska, en það er vestasti hluti meginlands Norður-Ameríku. Mörkin á milli heimsálfanna tveggja liggja um mitt sundið.
Beringssund er um 85 km breitt og dýpið þar er á bilinu 30-50 m. Sundi...
HTML (HyperText Markup Language) er svonefnt umbrotsmál fyrir tölvur sem lýsir því hvernig innihald vefsíðu birtist. HTML er grunnur allra vefsíðna á Internetinu. Með HTML er hægt að skilgreina texta, myndir, töflur, hlekki og fleira. Ein helsta nýjungin við HTML á sínum tíma var að með því var hægt að tengja sama...
Rannsóknarnefnd sjóslysa starfar samkvæmt lögum nr. 68/2000 með síðari breytingum. Nefndinni er ætlað að kanna orsakir allra sjóslysa er íslensk skip farast en einnig skal nefndin rannsaka öll slys þar sem manntjón verður, svo og önnur þau sjóslys sem hún telur ríkar ástæður til að rannsaka.
Rannsóknarnefnd sjó...
Það eru sýrumyndandi sýklar sem skemma tennurnar í okkur. Sykur auðveldar vöxt sýklanna og þess vegna er meiri hætta á tannskemmdum ef við borðum mikinn sykur. Það hefur sitt að segja í hvaða formi sykurinn er og eins hversu oft við neytum hans.
Sykur auðveldar vöxt sýkla.Sykur í karamellum loðir til dæmis len...
Spurningin í fullri lengd hljóðar svona:
Hvenær mynduðust jöklarnir sem nú eru á Íslandi? Eru þeir leifar af stóra jökulskildinum sem náði yfir allt landið?
Talið er að fyrir sex þúsund árum hafi nær allir jöklar frá síðasta kuldaskeiði verið horfnir af Íslandi. Í meira en þúsund ár hafði verið 2-3 °C hlýrr...
Orðið *vettugur sem slíkt er ekki til. Í fornu máli var eitt óákveðinna fornafna vetki (einnig ritað vætki, vekki) og beygðist svona:Nf. vetkiÞf. vetkiÞgf. vettugiEf. vettugis, vettergis
Fornafnið var samsett úr *ne-vétt-gi þar sem véttur er sama orð og vættur ‘vera, huliðsvera’ og -gi var áhersluliður. Merki...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!