Orðið banani fallbeygist svona:
Eintala
nf banani
þf banana
þgf banana
ef banana
Fleirtala
nf bananar
þf banana
þgf banönum
ef banana
Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð ...
Orðið fylliliður er í setningafræði notað um það sem á ensku er kallað complement. Þetta hugtak er notað um þá liði sem fylgja aðalorði setningarliðs. Fylliliður getur verið fallorð og stjórnar aðalorðið þá falli hans. Sama gildir um andlög sagna. Atviksliðir og forsetningarliðir teljast oft fylliliðir ef þeir fyl...
Þetta er byggt á því að margar stjörnur eru svo gríðarlega langt í burtu að langur tími er liðinn síðan ljósið sem við sjáum frá þeim lagði af stað hingað til okkar. Þessi tími getur hæglega verið lengri en ævi viðkomandi stjörnu samkvæmt þeim hugmyndum sem menn hafa um þróun og ævilengd stjarna. Þær hugmyndir er...
Íslenska er germanskt mál af svokallaðri indóevrópskri málaætt. Talið er að áherslan hafi upprunalega verið frjáls innan indóevrópskra mála en með tímanum fest eftir ákveðnum reglum einstakra mála. Eitt einkenni germanskra mála í árdaga var að áhersla lá á fyrsta atkvæði. Þessu einkenni heldur íslenska enn.
Fi...
Já, sum börn fæðast með fæðingarbletti. Til eru tvær gerðir af fæðingarblettum, bæði stórir fæðingarblettir sem myndast annað hvort strax og barnið kemur í ljós eða áður en það fæðist, og svo litlir fæðingarblettir sem myndast nokkrum dögum, mánuðum eða jafnvel árum eftir að barnið fæðist. Sum börn fá bara litla þ...
Gjaldmiðillinn heitir pesó og þegar þetta er skrifað, 18. júní 2003, fást um 0,37 pesó fyrir hverja íslenska krónu.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Hver er algengasti gjaldmiðill heims? eftir Gylfa Magnússon
Hvað myndi gerast ef gjaldmiðill eins og peningar yrði að öllu leyti lagður niður? eftir Gylfa Mag...
Úganda er í Austur-Afríku, og á landamæri að Súdan, Kongó, Kenía, Tansaníu og Rúanda. Enska er opinbert mál Uganda en meira en 30 tungumál og mállýskur eru talaðar í landinu. Enska er þó útbreiddasta tungumálið í landinu heldur eru luganda sem tilheyrir níger-kongó málum og Swahili þau algengustu. Meðal annarra t...
Þegar talað er um stafalogn er alger vindleysa, ekki bærist hár á höfði. Orðið stafur hefur margs konar merkingu í íslensku en ein af þeim er ‘geisli, sólargeisli’.
Þegar stafalogn er sjást oft ljósrákir á yfirborði vatns eða sjávar frá sólinni, það er stafir, geislastafir, þar sem lítil sem engin hreyfing er ...
Sögnin að bursta er fengin að láni úr dönsku børste og merkir 'hreinsa með bursta'. Nafnorðið bursti (áhaldið) var sömuleiðis fengið að láni úr dönsku børste þegar á 17. öld. Á 20. öld var tekin að láni, einnig úr dönsku, sagnmerkingin 'sigra með yfirburðum'. Upphaflega merkingin hefur þarna víkkað og má vel hugsa...
Hugtakið rím er ekki til í klassískri latínu. Rómverjar höfðu engan áhuga á rími og hugtakið varð sennilega ekki til fyrr en á miðöldum enda þótt lengi hefði tíðkast í mælskufræði að vekja athygli á orðum með svipaðar endingar. Það nefndu Grikkir homoiotelevton. Þá hefur sennilega ekki verið til neitt eitt orð fyr...
Í svari við Gylfa Magnússonar við spurningunni Er hægt að nota allar evrur í öllum ríkjum Evrópusambandsins? segir:Þegar þetta er skrifað, í júní 2003, hafa tólf lönd af fimmtán í Evrópusambandinu tekið upp evrur en Danir og Svíar halda enn í krónurnar sínar og Bretar í pundin. Löndin sem gefa út evrur eru því Fin...
Fuengirola er mikill ferðamannabær á Costa del Sol á suður Spáni. Samkvæmt upplýsingum frá hagstofu Spánar búa rétt tæplega 63.000 manns í Fuengirola. Um fjórðungur íbúanna eru frá öðrum löndum en Spáni, aðallega öðrum Evrópulöndum.
Fuengirola er mikill ferðamannabær eins og margir aðrir staðir á sömu slóðum.
...
Við höldum að fyrir þessu séu tvær ástæður sem verka saman. Í fyrsta lagi er fuglalíf mikið í Drangey og áburður því nógur. Í öðru lagi eru grasbítar yfirleitt ekki í eynni.
Drangey í Skagafirði.
Við getum stundum séð hliðstæð fyrirbæri í hólmum eða eyjum í ám eða vötnum, þar sem grasbítar komast ekki að en fugl...
Orðið einteymingur merkir ‛einfaldur taumur á hesti’. Sá sem ríður við einteyming hefur því aðeins taum öðrum megin við hnakka hestsins. Þetta þóttu ekki merkileg beisli miðað við venjuleg beisli og einföld að gerð.
Orðasambandið að ríða ekki við einteyming er þangað sótt og vísar líkingin til þess að þa...
Kvenkynsorðið herkja merkir í eintölu ‘harka’. Það er oftast notað í fleirtölu herkjur og merkir orðið þá ‘hörkubrögð, erfiðismunir’. Hann hafði háan hita og komst með herkjum fram úr rúminu. Hann gat með herkjum lyft höfði frá kodda. Í báðum dæmunum er átt við að sá sem talað er um hafi getað gert eitthvað með er...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!