Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hvað er hægt að hlaða miklu efni niður af Netinu? þá er Internetið samsett úr litlum einingum sem mynda eins konar tölvunet. Í þessu tölvuneti eru vefþjónar (e. server) og venjulegar tölvur sem sækja efni á vefþjónana, svo sem vefsíður. Minnið á Netinu er sem sagt tölvur...
Húðlitur okkar, og reyndar háralitur líka, ræðst af litarefni sem kallast melanín. Því meira litarefni sem er í húðinni því dekkra er fólk á hörund. Magn melaníns í húðinni fer einkum eftir erfðum, en hörunds- og háralitur er fyrst og fremst háður genasamsetningu okkar. Ástæðan fyrir því að einstaklingur er „svart...
Orðasambandið sitja á hakanum merkir að ‛verða út undan, mæta afgangi’. Það þekkist frá 18. öld. Annað svipað frá sama tíma kemur fyrir í íslensk-latnesk-danskri orðabók Björns Halldórssonar sem gefin var út 1814. Það er að verða á hakanum sem Björn segir notað um það að fá ysta eða versta sætið. Fleiri afbr...
Eitt af hlutverkum peninga er að vera mælieining á verðmæti. Þessi mælieining hefur þó þann galla, ólíkt til dæmis mælieiningum metrakerfisins, að vera síbreytileg. Stundum er hægt að kaupa minna fyrir ákveðinn fjölda króna nú en áður. Þetta þýðir að mælieiningin hefur breyst og það er almennt kallað verðbólga. Ei...
Í dag er fyrsti dagurinn þinn sem strætóbílstjóri. Þú byrjar á Hlemmi en þar eru 12 inni í vagninum. Á fyrstu stöð fara 3 út og 5 inn. Á annarri stöð fara 7 inn og 3 út. Á þriðju og síðustu stöðinni fara 5 inn og 2 út.
Hvað er strætóbílstjórinn gamall? Og hvernig kemstu að þeirri niðurstöðu?
Hvað ætli þessi...
Ekki virðist samkomulag um eitt orð yfir „nonprofit organisation“. Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins hefur þýtt þetta með orðasambandinu „stofnun sem er ekki rekin í hagnaðarskyni“.
Alþjóðasjóður villtra dýra (World Wildlife Fund, WWF) er stofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni. Hún tilheyrir því þriðja...
Hjúkk eða hjúkket er algeng upphrópun á vefmiðlum þótt ekki sé hana að finna í íslenskum orðabókum. Ég hef víða spurst fyrir um upprunann og virðist hann vefjast fyrir mönnum. Ég spurði meðal annars enska og norræna málfræðinga á málþingi nýlega og enginn kannaðist við þetta úr sínu máli. Ein tillaga sem ég fékk v...
Svarið við spurningunni er: Eyjólfur og menn hans voru fimmtán alls. Í Íslenskri orðabók (2002:951) er þetta dæmi tekið undir flettunni maður:
við þriðja (tólfta ...) mann þ.e. þrír (tólf ...) saman
Eyjólfur og menn hans voru fimmtán alls.
Heimild:
Íslensk orðabók. 2002. Þriðja útgáfa, aukin og endurbæt...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Nýlega rakst ég á orð sem ég er ekki kunnugur úr sóknarlýsingu prests á Norðausturlandi um ca. 1780. Þar stóð: „Fyrir prestinn var borið nýbakað ærláfubrauð". Ekki getið þið útskýrt þetta orð 'ærláfubrauð'?
Í Íslenskri orðabók Eddu (2002:873) er við flettiorðið láfa ...
Munur er á fyrrverandi og þáverandi. Fyrrverandi merkir ‘sem áður var’, til dæmis fyrrverandi ráðherra, fyrrverandi rektor, fyrrverandi prófessor, fyrrverandi leikhússtjóri, fyrrverandi fóstra, fyrrverandi kennari og svo framvegis. Þetta fólk gegndi ákveðnu embætti áður fyrr en ekki lengur, oft vegna aldurs, en þe...
Skafti spurði sérstaklega um gúrku:
Af hverju er gúrka ýmist kölluð gúrka eða agúrka? Hvort er rétt að segja eða er þetta ekki sama tegund?
Orðið agúrka barst hingað úr dönsku agurk sem fengið er úr lágþýsku agurke sem aftur fékk orðið um pólsku ogórek, úr nýgrísku angouri. Í eldri grísku hét grænmetið ango...
Áður óþekktur hafstraumur hefur komið í ljós við straummælingar Hafrannsóknastofnunarinnar, en stofnunin hefur undanfarin ár staðið fyrir mælingum á straumum á Hornbankasniði á 21°35´V.
Straumurinn kom í ljós yfir landgrunnshlíðinni og ber hann með sér þungan djúpsjó sem síðan streymir út um Grænlandssund suður...
Upprunalega spurningin var:
Hvað er og hvaðan kemur þetta „skjanna“ í til dæmis orðinu skjannahvítur?
Nafnorðið skjanni merkir ‘hátt, hvítt enni, kinn, vangi’. Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:839) á orðið ekki samsvaranir í grannmálunum. Hann telur það þó hugsanlegt skylt na...
Já, það er ekkert sem bannar að hjón séu deili duftkeri og það hefur verið gert í nokkur skipti. Ef þetta er ákveðið þá þarf að velja stærstu gerð af duftkeri. Duftker þess sem fyrr deyr er geymt í bálstofunni í Fossvogi. Þegar seinni aðilinn er brenndur, er aska hans sett í duftkerið sem síðan er jarðsett með ös...
Já, þegar aðfangadagur lendir á sunnudegi er hann síðasti sunnudagurinn í aðventu.
Fyrsti sunnudagur í aðventu árið 2023 er 3. desember, annar 10. desember, þriðji 17. desember og fjórði 24. desember.
Þegar aðfangadagur lendir á sunnudegi er hann síðasti sunnudagurinn í aðventu.
Dæmi um ár þar sem síðasti...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!