Stórar og mjög skreyttar tertur eru stundum nefndar hnallþórur eftir persónunni Hnallþóru í bókinni Kristnihald undir Jökli eftir Halldór Laxness. Annað orð yfir kökur af þessu tagi er stríðstertur. Orðið hnallur er haft um barefli, kylfu eða lurk og einnig um tréáhald til að merja hráefni í matargerð. Hnallurinn ...
Antares er mjög stór af reginrisa að vera. Hún er um 700 sinnum stærri en okkar sól í þvermál en er "aðeins" 10-15 sinnum þyngri. Antares er fimmtánda skærasta stjarnan á himninum. Þó að Antares hafi um langa hríð verið talin vera bjartasta sólin í heimi (að raunbirtu, það er að segja miðað við fjarlægð) er hú...
Myndin hér að ofan sýnir stjörnuferil (e. astroid). Þessi ferill er innhjólferill (e. hypocycloid) því hann er teiknaður af punkti sem er fastur á hring sem rúllar innan í öðrum stærri hring. Hreyfimyndin sýnir hvernig ferillinn er teiknaður.
Það fer eftir afstæðum stærðum hringanna hvernig innhjólferillinn...
Gasblöðrur, eins og þær sem seldar eru 17. júní, eru fylltar með helíni (He). Helín er létt gastegund, mun léttari en loftið í andrúmsloftinu. Í svari við spurningunni Hvers vegna sökkva ekki þung skip þegar þau eru komin út í sjó? er fjallað um uppdrif:Sú staðreynd að þung skip geta flotið á vatni byggist á lögmá...
Menn hafði lengi grunað að á Títan, stærsta tungli Satúrnusar, væri að finna höf eða að minnsta kosti stöðuvötn. Strax við komuna til Satúrnusar sýndu ratsjármyndir Cassini-geimfarsins og loftmyndir Huygens-lendingarfarsins, greinileg merki um að einhvers konar vökvi hefði runnið um ísilagt yfirborð Títans. Aftur...
Við þessari spurningu er til einfalt svar: Nei, það er hún ekki.
Jörðin er mjög nálægt því að vera hnöttótt, en vegna snúnings hennar um möndul sinn og ónógs miðsóknarkrafts er hún eins og miðaldra karl með vömb; örlítið flatari við pólana og með bungu um miðbauginn. Þetta frávik frá kúlulögun veldur því að þve...
Hér er einnig svarað spurningunni:Hvað getið þið sagt mér um blómið gleym-mér-ei?
Latneska heiti plöntunnar gleym-mér-ei er Myosotis arvensis. Á tungumálum nágranna okkar er heitið ekki ósvipað því íslenska því á ensku kallast plantan field forget-me-not, á dönsku er heitið mark-forglemmigej og Acker-Vergißmei...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvað má gatið vera stórt eða lítið svo starinn komist í gegn til að gera sér til hreiður?
Of mikið nábýli við starann (Sturnus vulgaris) þykir lítt eftirsóknarvert því hann ber með sér fuglafló sem getur lagst á fólk og valdið óþægindum. Þess vegna fylgir því sjaldnast...
Hraungúll (e. lava dome) myndast þegar ólseig og tölulega köld andesít-, dasít- eða ríólítkvika ýtist upp úr gosrás á hallalitlu landi eða inni í vel afmarkaðri gígskál. Ef hallinn er nægilegur til þess að hraunið skríði fram undan eigin þunga, myndast hins vegar stokkahraun. Stundum storknar hraunkvikan í gosopin...
Einfalda svarið er að rjómi er búinn til úr mjólk, með því að skilja mjólkurfitu frá mjólkinni.
Uppistaðan í mjólk er vatnsfasi (um 87% af mjólkinni) sem inniheldur aðallega prótín, fituefni/lípíð og kolvetni á formi mjólkursykurs/laktósa. Mjólkin inniheldur einnig vítamín og steinefni. Þegar mjólkin kemur bein...
Í þessu samhengi ber fyrst að nefna rafstöðukrafta. Flestir hafa séð hvað gerist ef blöðru er nuddað upp við hár manns. Þá er hægt að festa blöðruna upp í loft og hárin sem blöðrunni var nuddað upp að standa upp í loft og hvert út frá öðru. Núningurinn hefur þá framkallað krafta sem láta hárin fjarlægjast hvert an...
Talan π (pí) er hlutfallið milli ummáls og þvermáls hrings. Mönnum hefur snemma orðið ljóst að þetta hlutfall er hið sama fyrir alla hringi. Í ritum Evklíðs frá því um 300 fyrir Krist er þessi staðreynd sett fram án sönnunar. Í Biblíunni er talan 3 notuð sem gildi á π: „Og Híram gjörði hafið, og var þa...
Úranus er sjöunda reikistjarnan frá sólu og braut hennar liggur að meðaltali í um 2,9 milljarða kílómetra fjarlægð frá sólinni eða 19,22 AU. Að þvermáli er Úranus 51.800 km um miðbaug og er því þriðja stærsta reikistjarna sólkerfisins, fjórum sinnum stærri og 14,5 sinnum massameiri en jörðin. Þvermál Úranusar er...
Upphafleg spurning var sem hér segir:Getið þið sagt mér eitthvað um loftsteinabeltið sem er á milli Mars og Júpíter og talið er hafa verið reikistjarna einu sinni?
Árið 1772 kynnti þýski stjörnufræðingurinn Johann Elert Bode (1747-1826) reglu sem virtist gilda um fjarlægðir frá sólu til þeirra sex reikistjarna ...
Hér er einnig svarað spurningunni:Getið þið lýst líffræði augans?
Eins og önnur líffæri er augað gert úr mörgum mismunandi vefjum. Augað sjálft er knöttur úr þremur lögum og er um 2,5 cm í þvermál.
Ysta lagið er trefjahjúpur (e. fibrous tunic) sem er gerður úr glæru (e. cornea) að framan og hvítu (e. sclera...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!