Orðið gáll er notað um skaplyndi almennt en einnig um ofsakæti. Í föstum samböndum er gáll yfirleitt haft með greini, til dæmis „það er góði gállinn á honum núna“, það er ‛hann er í góðu skapi’. Þegar (eða ef ...) sá gállinn er á einhverjum merkir ‛þegar einhver er í því skapi’, til dæmis „Hann er óút...
Það er eðlilegt að svo sé spurt því að það gerist ekki á hverjum degi um þessar mundir að sjórinn frjósi hér hjá okkur. En sannleikurinn er samt sá að sjórinn getur frosið og gerir það ef nógu kalt er í nógu langan tíma. Þetta gerist til dæmis á hverju ári í Norður-Íshafinu fyrir norðan Ísland og annars staðar, og...
Almennt er talað um að skilningarvitin séu fimm talsins:
Sjón.
Heyrn.
Snerting.
Bragð.
Lykt.
Stundum eru fleiri nefnd til sögunar, svo sem jafnvægisskyn, varmaskyn og sársaukaskyn.
Almennt er talað um að skilningarvitin séu fimm talsins. Flestir eru sammála um að sjónin sé okkur hvað mikilvægust.
Öll g...
Í ævintýrinu um Gosa, eftir ítalska rithöfundinn Carlo Collodi, segir frá trébrúðu sem vaknar til lífsins og er gædd þeim eiginleika að þegar hún lýgur þá stækkar á henni nefið.
Þegar spurt er hvað mundi gerast fyrir nefið á Gosa ef hann segði „nú mun nef mitt stækka“, verður til svokölluð þverstæða, þar sem hu...
Upprunalega spurningin var:
Ef tengdamamma mín deyr og maki minn er dáinn, erfi ég þá tengdamömmu eða bara eftirlifandi börn hennar?
Að því gefnu að hin látna hafi ekki gert erfðaskrá skiptist arfurinn á lögbundinn hátt samkvæmt erfðalögunum frá 1962.
Ef arfleifandi (hin látna) er í hjúskap fellur 1/3 hl...
Fjórmenningar eru þeir sem eiga sama langalangafa og/eða langalangömmu. Þeir eru semsagt skyldir í fjórða lið. Um skyldleika hjónaefna gildir það eitt samkvæmt hjúskaparlögum að ekki má "vígja skyldmenni í beinan legg né systkin." Með orðalaginu 'beinan legg' er átt við að annar einstaklingurinn sé afkomandi hins....
Verkfræðideild Háskóla Íslands veitir inngöngu öllum þeim sem lokið hafa stúdentsprófi. Reynslan hefur þó sýnt að nemendur geti helst gert sér vonir um viðunandi námsárangur í verkfræðideild ef þeir hafa að minnsta kosti lært þá stærðfræði og eðlisfræði sem kennd er á náttúrufræðibrautum.
Á undanförnum árum he...
Samkvæmt vefmælingu Modernusar voru tíu vinsælustu svör maímánaðar á Vísindavefnum árið 2013 þessi hér:
Hvað ef Þjóðverjar hefðu verið á undan að hernema Ísland, væri þá menning okkar og kannski mál öðruvísi í dag?
Hvenær hófst kaffidrykkja í heiminum og hvernig breiddist hún út?
Ungt fólk sem ég hef átt í sa...
Ferningstala er heiltala sem er jöfn annarri heiltölu eða sjálfri sér í öðru veldi. Með öðrum orðum er heiltala $a$ ferningstala ef skrifa má $b^2=b\cdot b=a$, þar sem $b$ er heiltala. Eins má segja að heiltala $a$ sé ferningstala ef kvaðratrótin af $a$, $\sqrt{a}$, er heiltala. Lesa má um veldi og rætur á vef ísl...
Í svari Birgis Urbancics Ásgeirssonar við spurningunni Hvað er eigintíðni? segir:Allir hlutir hafa eigintíðni (e. natural frequency). Eigintíðni hlutar er sú sveiflutíðni sem honum er eiginleg og á þeirri sveiflutíðni titrar hluturinn. Eigintíðni hlutar ákvarðast af efnaeiginleikum hlutarins ásamt lögun hans, mass...
Svarið er já. Ef náttúrleg tala r er þáttuð (skrifuð sem margfeldi) og vitað er að tiltekin frumtala s gengur upp í henni, þá gildir almennt að s gengur upp í einhverjum þættinum. Ef frumtalan s gengur upp í r í þessu dæmi vitum við samkvæmt þessu að hún gengur annaðhvort upp í p eða q. Þar sem þær eru báðar frumt...
Trapisa er ferhyrningur sem hefur tvær hliðar sem eru samsíða. Fjarlægðin á milli samsíða hliðanna tveggja er kölluð hæð trapisunnar. Ef við vitum hæð trapisu og lengd samsíða hliðanna getum við reiknað út flatarmál hennar með einfaldri formúlu: trapisa með hæð h og samsíða hliðar af lengd a og c hefur flatarmálið...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Fær maður pening ef maður finnur fornmun og lætur Fornleifastofnun vita af fundinum?
Þeir sem finna forngripi á víðavangi eiga að hafa samband við Minjastofnun Íslands sem hefur yfirumsjón með verndun fornleifa- og byggingararfs á Íslandi. Stofnunin er með skrifstofu á...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Einn er lítið, milljón er mikið, en hvenær byrjar mikið?
Þessari spurningu er hægt að svara á nokkra vegu. Ef við gefum okkur fyrst að forsenda spyrjanda sé rétt, það er að einn sé lítil tala og milljón stór tala, þá finnst engu að síður engin ein tala á bilinu einn ti...
Í heild var spurningin svona:Hvers vegna krumpast lokaða plastflaskan saman (líkist lofttæmingu) ef hún stendur tóm í ísskápnum en ekki ef ég set þó ekki væri nema smávegis vökva í hana (né heldur ef smá op er á henni)?
Svarið hefur með þéttingu lofts að gera þegar það er kælt niður. Loftið í kringum okkur er a...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!