Taugafrumur eða taugungar eru mjög sérhæfðar frumur. Hlutverk þeirra er að flytja taugaboð frá einum stað til annars í líkamanum. Taugaboð eru dauf raf- og efnaboð. Rafboð myndast þegar taugungur verður fyrir áreiti, til dæmis þegar ljós fellur á taugung í sjónu augans eða heitur hlutur áreitir sársaukaskynfrumu í...
Lifrin er stærsti kirtill líkamans og vegur um 1,4 kg í meðalmanni. Hún gegnir hundruðum starfa og tengjast mörg þeirra efnaskiptum. Helstu störf lifrar eru eftirfarandi:
Sykruefnaskipti. Lifrin er sérstaklega mikilvæg í að viðhalda eðlilegu blóðsykurmagni eða glúkósamagni blóðs. Hún breytir glúkósa í fjölsykr...
Til eru yfir 200 mismunandi gerðir af arfgengum taugasjúkdómum og því er ómögulegt að gera þeim öllum skil í grein sem þessari. Umfjöllunin hér á eftir er því almenns eðlis þar sem bæði er komið inn á taugasjúkdóma og erfðir.
Arfgengir taugasjúkdómar lýsa sér í breytingum í gerð sameinda taugakerfisins sem lei...
Svokallaðir nornabaugar eða sveppabaugar verða til vegna áhrifa frá þráðum svepps sem liggur í jarðvegi undir mosanum og verður til þess að mosinn yfir sveppnum vex illa eða jafnvel drepst. Þá sést hringur af dauðum eða veikluðum mosa í mosabreiðunni. Á baugnum eða við hann ber sveppurinn síðan aldin sín og eru þ...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:Er það satt að þegar maður fitnar þá myndi líkaminn nýjar fitufrumur sem eyðast aldrei og því sé auðveldara að fitna aftur?
Heildarmagn fitu í líkamanum, það er hversu feitur einstaklingur er, fer eftir tvennu - annars vegar fjölda fitufrumna og hins vegar stærð þeirra eða hve...
Lifrin er stærsti kirtill líkamans og vegur um eitt og hálft kíló. Hún skiptist í tvö lifrarblöð og er hægra megin ofarlega í kviðarholinu þar sem hún er varin af rifbeinum. Í lifrinni eru unnin um 500 mikilvæg störf. Meðal helstu starfa er framleiðsla blóðprótína sem eru nauðsynleg fyrir til dæmis blóðstorknun, s...
Stutta svarið við spurningunni er þetta: Svonefnt 12 mínútna hlaupapróf nefnist líka Cooper-hlaupapróf og leggur á einfaldan hátt mat á hámarks súrefnisupptöku fólks. Prófið getur gagnast unglingum og ungu fólki ágætlega en hentar verr eldri borgurum, ýmsum sjúklingahópum og þeim sem hafa skerta hlaupagetu.
All...
Galaktósíalídósis er einn af sjö þekktum sjúkdómum sem tengjast geymslu sykurprótína. Þetta eru arfgengir sjúkdómar í flokki kvilla sem kallast leysibólugeymslusjúkdómar. Leysibólur eru frumulíffæri sem innihalda ensím sem sundra margs konar smásykrum (e. oligosaccharides) sem er sífellt verið að mynda og brjóta n...
Hér er einnig svarað spurningunum:Hvernig verða prótín til?Hvert er ferli prótínnýmyndunar í frumu í stuttu máli?
Prótínmyndun er mjög flókið efnafræðilegt ferli sem byrjar í erfðaefninu DNA en DNA er er efni genanna í litningunum. Hvert gen geymir upplýsingar um gerð tiltekins fjölpeptíðs en prótín eru gerð úr e...
Tvær gerðir fituvefs er að finna í spendýrum. Önnur er betur þekkt enda mun fyrirferðarmeiri, hún nefnist ljós fita. Ljósa fitan kemur við sögu í orkuefnaskiptum líkamans og er bæði notuð sem orkuefni og geymd sem orkuforði líkamans. Enn fremur veitir hún hitaeinangrun og er höggdeyfir.
Hin fitugerðin er svokö...
Miðtaugakerfið samanstendur af heila og mænu. Helstu vefir þessara mikilvægu líffæra kallast grátt efni og hvítt efni. Heilagráni er á yfirborði hvelaheilans en heilahvítan er þar fyrir innan. Þessu er öfugt farið í mænunni, mænugráni er utan um mænugöngin, sem eru innst, og mænuhvítan utan um hann.
Í gráa efn...
Tay-Sachs-sjúkdómur er víkjandi erfðasjúkdómur. Hann orsakast af galla sem veldur skorti á ensími sem kallast β-hexoaminídasi A. Þetta ensím finnst í leysikornum (e. lysosomes) en leysikorn eru frumulíffæri sem gegna því hlutverki að brjóta niður sameindir til endurvinnslu fyrir frumuna. Venjulega stuðlar ens...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!