Galenos frá Pergamon var forngrískur læknir og rithöfundur sem bar höfuð og herðar yfir aðra forna lækna. Líklega er einungis Hippókrates, sem nefndur er faðir læknisfræðinnar, frægari en Galenos meðal lækna fornaldar en þó hefur Galenos ef til vill reynst Hippókratesi áhrifameiri.
Galenos fæddist árið 129 e.Kr...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Getið þið sagt mér frá Brandenborgarkonsertum Bachs; hvar þeir voru samdir, í hvernig stíl eru þeir samdir o.s.frv.?
Á árunum 1717-1723 var Johann Sebastian Bach (1685–1750) í Köthen við hirð Leópolds prins af Anhalt-Köthen. Meðal helstu verka Bachs frá árunum í Köthen er safn ...
Nobunaga Oda (1534-1582) var einn af valdamestu lénsherrum (daimyo) í Japan á sextándu öld. Það tímabil hefur verið nefnt sengoku-öldin (戦国時代) í japanskri sögu. Hugtakið daimyo hefur gjarnan verið þýtt sem barón á íslensku en hér verður notast við orðið lénsherra sem er meira lýsandi. ...
Hannes Finnsson (1739-1796) fæddist í Reykholti í Borgarfirði. Hann var sonur Guðríðar Gísladóttur (1707-1766) og Finns Jónssonar (1704-1789). Guðríður var sonardóttir Jóns Vigfússonar (Bauka-Jóns, 1643-1690) sem varð biskup á Hólum eftir nokkuð ævintýralegan feril sem sýslumaður. Finnur var af prestaætt sem lengi...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvað er sinfónía og er til eitthvað íslenskt orð yfir sinfóníur?
Orðið sinfónía getur haft ýmsar merkingar. Það er dregið af gríska orðinu σύμφωνος (symphōnos) sem merkir samhljómur, það sem hljómar vel saman. Orðið symphoni...
Fimmta öldin eftir Krist hefur lengi verið þyrnir í augum margra kínverskra sagnfræðinga. Ein helsta ástæða þess er sú að á fimmtu öld líktist Kína mjög Evrópu með öllum sínum landamærum og þjóðum. Einna helst hefur farið fyrir brjóstið á mönnum að á þessum tíma var erlend stjórn í Norður-Kína. Slíkir umbrotatímar...
Brúnó fæddist árið 1548 í Nola, nálægt Napólí á Ítalíu, sonur atvinnuhermanns sem hét Giovanni Brúnó, og konu hans Savolinnu. Hann var skírður Filippo og var síðar kallaður „il Nolano" eftir fæðingarstað sínum. Árið 1562 fór Brúnó, þá 14 ára í skóla til Napólí og lærði þar húmanísk fræði, rökfræði og rökræðulist. ...
Flestir hafa heyrt um menn eins og Charles Darwin og þróunarkenningu hans, Sir Isaac Newton og lögmálin hans, sólmiðjukenningu Aristarkosar og síðar Kópernikusar eða Galíleó og tungl Júpíters. Færri hafa þó heyrt um Andreas Vesalius og aðferðir hans, en hann er einn þeirra manna sem lögðu grunn að nútímalæknavísi...
Hugo Grotius var einn þeirra andans manna á sautjándu öldinni sem stuðluðu að grundvallarbreytingum á vestrænni menningu. Í dag er hans helst minnst sem lögspekings og þá sérstaklega vegna hugmynda hans um alþjóðalög eða þjóðarétt, en hann skrifaði einnig verk um guðfræði og flestar greinar heimspekinnar. Hann þót...
Í Snöru má finna skilgreiningu á hirðfífli:
trúður, maður sem skemmtir hirðfólki með skrípalátum.
Hægt er að rekja sögu hirðfífla allt aftur til Forn-Egypta, eða til fimmtu keisaraættar Egyptalands sem var við völd frá 2494-2345 f.Kr. Á þeim tíma voru Pygmýar frá Afríku vinsælir sem hirðfífl. Þá voru hirðfífl vi...
Hér er einnig svarað spurningunni: Hvað var Bach gamall þegar hann dó og hvar dó hann?
Á ferli sínum gegndi Johann Sebastian Bach (1685-1750) fimm störfum í jafn mörgum bæjum, ýmist sem kirkjumúsíkant eða hirðtónlistarmaður: í Arnstadt (1703-7), Mühlhausen (1707-8), í Weimar (1708-17), Köthen (1717-23) og Leipz...
Jesús var veislumaður, en hvers konar mat borðaði hann? Hvernig voru veislur Ísaks eða kónganna Davíðs, Salómons og Heródesar? Vitum við eitthvað um mat Biblíunnar? Já, í öllum ritum hennar er eitthvað vikið að borðhaldi eða fæðutengdum efnum. Rannsóknir á Biblíunni, fornleifum og heimildum þessa tíma hefur fært o...
Émilie du Châtelet (17. desember 1706 - 10. september 1749) var franskur eðlis- og stærðfræðingur. Innan vísindaheimsins er Émilie einna helst þekkt fyrir franska þýðingu sína á bók Newtons (1642-1727), Stærðfræðilögmál náttúruspekinnar (Philosophiæ Naturalis Principia Mathematica, almennt kölluð Principia) og lei...
Hér er einnig svarað spurningunum:
Hver var Marcus Quintilianus? (Svana)
Hverjar voru hugmyndir Marcusar Quintilianusar í uppeldis- og menntamálum? (Ruth)
Marcus Fabius Quintilianus var mælskulistarkennari í Róm á 1. öld. Hann fæddist einhvern tímann á milli áranna 35 og 40 á Spáni og lést skömmu fyrir aldamó...
Fyrsta hnattsiglingin er venjulega kennd við portúgalska sæfarann Magellan. Rétt er að hann fór fyrir fyrsta leiðangrinum sem sigldi umhverfis jörðina, en sjálfur náði Magellan þó ekki að ljúka ferðinni þar sem hann lést áður en hringnum var lokað.
Ferdinand Magellan fæddist í norðurhluta Portúgals um 1480. Ung...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!