Upphafleg spurning var sem hér segir:Stöðvast hreyfingar í sameindum (til dæmis hreyfingar rafeinda) ef efni er kælt niður í alkul? Ef ekki, hvað myndi þá koma fyrir efni ef þessar hreyfingar stöðvuðust alveg?Rétt er að hafa í huga að alkuli er ekki hægt að ná í tilraunum, en hægt er að nálgast það betur og betur....
Spurningin í heild hljóðaði svona:
Hver er besta leiðin til að byrja hreyfa sig og viðhalda hreyfingu? Núna dynja á okkur ýmiss konar gylliboð um einkaþjálfun og ótrúlegan árangur hjá millistjórnendum sem byrjuðu á einhverju hreyfingar- og/eða mataræðiprógrammi. En hvað segja vísindin, er einhver leið betri enn ö...
Áður en lengra er haldið er lesendum bent á að kynna sér svar sama höfundar við spurningunni Hvað eru pólskipti? en þar er fjallað um hreyfingar innan jarðkjarnans og myndun jarðsegulsviðs.
Öðru hvoru virðast hreyfingar innan jarðkjarnans verða of hægfara, of óreglulegar, eða jafnvel of reglulegar, til þess að ...
Það kemur engum á óvart að bakaraofn sem kveikt er á hitar herbergið sem hann stendur í um leið og maturinn bakast. Hins vegar kann að virðast einkennilegt að ísskápur geti hitað upp eldhúsið, og það jafnvel þótt skápurinn standi opinn!
Til að skilja ástæðuna fyrir þessu þarf að hugsa um varma sem orku og kuld...
Það eru ekki til nein efri mörk fyrir hitastig, en hafa verður í huga að það kostar orku að hita efni og eins getur verið erfitt að halda varmaorkunni í einhverju kerfi án þess að hún leiti út úr kerfinu með geislun eða leiðni.
Allt efni sem hitað er mjög mikið tekur hamskiptum, einum eða fleirum. Þannig breyti...
Flóðbylgjur geta orðið til vegna jarðskjálfta en einnig vegna eldgosa og skriðufalla eða blöndu af þessu þrennu. Þegar flóðbylgja verður til vegna jarðskjálfta er það sökum lóðréttra hreyfinga á hafsbotninum. Við það kemst hreyfing á sjóinn og flóðbylgja fer af stað. Þegar jarðskjálfti á sér stað verða ekki alltaf...
Mannsheilinn er geysilega flókið líffæri og ekki þekkt fullkomlega. Hins vegar hafa menn í aldanna rás lært mikið um starfsemi þessarar stjórnstöðvar mannslíkamans. Heilabörkurinn er sá hluti heilans sem er þróunarlega yngstur og þar liggja meðal annars stjórnstöðvar fyrir hreyfingar og skynjun. Heilabörkurinn lig...
Stjórnmálaflokkar eru ólíkir öðrum samtökum að því leyti að þeir bjóða fram í almennum kosningum. Þeir hafa líka oftast nær það yfirlýsta markmið að vilja stjórna ríkisvaldinu. Í þessari merkingu eru hugtökin stjórnmálaflokkur og stjórnmálahreyfing notuð á víxl yfir það sama. Þegar talað er um stjórnmálahreyfingar...
Táknmál eru tungumál sem heyrnarlausir nota yfirleitt sín á milli og við aðra sem þeir umgangast í daglegu lífi, þrátt fyrir að þeir viðmælendur hafi fulla heyrn. Forsenda fyrir því að einstaklingur noti táknmál þegar tal er farið að versna, er að einhver í umhverfinu kunni táknmál og skilji hvað hann er að segja....
Kettir lenda ekki alltaf á löppunum þegar þeir falla úr einhverri hæð, en þeir eru reyndar afar færir í því að snúa sér í loftinu og lenda á fjórum fótum.
Það er alls ekki augljóst hvernig kettir geta snúið sér í loftinu ef þeim er sleppt á hvolfi. Þeir hafa nefnilega ekkert til að spyrna í. Til þess að lenda á...
Jarðskorpan er ysta lag jarðarinnar. Margir flekar mynda hana og þeir hreyfast hver miðað við annan. Flekarnir geta nuddast saman á hliðunum, þeir geta ýst hvor frá öðrum og þeir geta líka farið hver undir annan.
Allar þessar hreyfingar flekanna byggja upp spennu sem síðan losnar og þá verða jarðskjálftar.
...
Sinadráttur er kröftugur, sársaukafullur samdráttur í vöðva eða vöðvum. Algeng tegund sinadráttar verður í kálfanum í svefni en sinadráttur getur einnig orðið vegna mikillar vinnu, meiðsla eða við það að vera lengi í sömu stellingum. Vökvatap eykur einnig hættu á sinadrætti. Sinadráttur er algengur hjá íþróttamönn...
Hraði minks hefur verið mældur frá 1,7 km/klst., þegar hann gengur, upp í 9,4 km/klst., þegar hann hleypur, en það er um það bil fimm til sex líkamslengdir minks á sekúndu. Þegar minkur syndir á yfirborði vatns er hraði hans um 1,5 km/klst. en þegar hann eltir bráð undir vatnsyfirborði þá syndir hann oft á upp í 2...
Einhver forvitnilegasta spurningin sem saga Kópernikusar vekur er um það hvað honum gekk til að vilja setja fram nýja heimsmynd. Hefðbundin söguskoðun gefur vitaskuld það einfalda svar að þarna hafi blátt áfram verið um að ræða einarða sannleiksást og vísindalega snilli. Ýmsir fræðimenn síðari ára hafa þó viljað s...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!