Talið er að vitinn sem stóð á eyjunni Faros hafi verið að minnsta kosti 110 metra hár en heimildir gefa þó upp mismunandi tölur um það. Vitinn sem einnig er kallaður vitinn í Alexandríu var 20 ár í byggingu og lauk verkinu árið 279 f. Kr.
Vitinn var þrískiptur eins og fram kemur á myndinni hér á eftir. Hann var...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvað getið þið sagt mér um sverðfiska? Til hvers nota þeir skoltinn (sverðið)?
Sverðfiskur (Xiphias gladius) er all sérstakur fiskur og auðþekktur á langri trjónu, sem gengur fram úr hausnum. Trjóna þessi er efri skolturinn sem teygist svona langt fram.
Sverðfiskur er annars ...
1 hnútur er 0,514 m/s og það telst vera logn.Hnútur er mælieining um hraða skips eða vinds. Einn hnútur samsvarar einni sjómílu á klukkustund, en sjómíla er upphaflega skilgreind sem ein mínúta á lengdarbaug og er samkvæmt því 111,1 km/60 = 1852 m.
Vegna þess að jörðin er svolítið flatari við pólana er breiddar...
Við höfum áður skrifað um stærsta núlifandi liðdýr (Arthropoda) jarðar, en það er japanski köngulóarkrabbinn (Macrocheira kaempferi) sem finnst á grunnsævi umhverfis Japanseyjar.
Á fyrri skeiðum jarðstögunnar voru hins vegar til mun stærri liðdýr en þau sem lifa í dag. Það sýnir steingervingasagan okkur. Eitt s...
Á vefsíðu Skógræktar ríkisins er frétt um að hæstu tré landsins sé hugsanlega að finna í skógarreit á Kirkjubæjarklaustri.
Hæsta sitkagrenitréð í skóginum mældist nýverið um 22 metrar á hæð. Það var gróðursett árið 1950 ásamt fleiri grenitrjám og hækka þau um rúmlega 50 cm á ári.
Mynd: Birkihlíð...
Hálendi er skilgreint sem sá hluti lands sem er hærri en 200 metrar yfir sjávarmáli. Þrír fjórðu hlutar Íslands teljast vera hálendi.
Heimild: Íslenska alfræðiorðabókin, Örn og Örlygur, Reykjavík 1990....
Vogmær (Trachipterus arcticus) er af vogmeyjarætt (Trachipteridae). Ættin telur tíu tegundir og finnst ein af þeim hér við land, vogmærin. Fiskar af þessari ætt eru mjög langvaxnir og þunnvaxnir og hafa langan bakugga. Aðrir uggar eru annað hvort afar litlir eða ekki til staðar.
Vogmær sem skipverjar á Báru SH v...
Aðalfæða hnúfubaks (Megaptera novaeangliae) er ljósáta og ýmsir smáfiskar eins og síld og loðna. Hann er 12 til 19 metrar á lengd og 25 til 48 tonn. Hnúfubakur er skíðishvalur sem þýðir að í staðin fyrir tennur hefur hann nokkurs konar skíði í kjaftinum sem verka eins og sía þegar hann aflar sér fæðu. Hnúfubakur h...
Rostungum norðurhjarans er skipt upp í tvær landfræðilega aðskildar deilitegundir: atlantshafsrostunginn (Odobenus rosmarus rosmarus) og kyrrahafsrostunginn (Odobenus rosmarus divergens). Sáralítill munur er á þeim í útliti en kyrrahafsrostungurinn er örlítið þyngri að meðaltali.
Karldýr rostunga verða um 3...
Steypireyðurin (Balaenoptera musculus), stærsta dýr jarðar, getur fullvaxin orðið allt að 30 metra löng og vegið 100-190 tonn. Þessi tröllvaxni hvalur er þó hvorki langur né þungur í samanburði við risafuruna (Sequoiadendron giganteum) sem er þyngsta lífvera jarðarinnar.
Risafurur geta orðið allt að 95 metrar...
Ef spyrjandi hefði viljað vita hve margar tommur væru í kílómetra eða hve margar mínútur væru í viku hefðum við ekki átt í neinum vandræðum með að svara honum. En þar sem mílan er misjafnlega löng eftir því hvort maður er staddur á sjó eða landi, og jafnvel mislöng eftir því í hvaða landi maður er, reynist svarið ...
Þyngd Vatnajökuls er um 3.000 milljarðar tonna og þessi þungi er slíkur að jarðskorpan hefur gefið eftir og sigið. Ef jökullinn bráðnar og hverfur þá rís landið. Slík svörun jarðskorpunnar er vel þekkt meðal annars út frá rannsóknum á áhrifum ísaldarjökla á landhæð. Fornar strandlínur sem finnast víða á láglend...
Á hringveginum er yfirleitt akrein í sitt hvora áttina. Önnur þeirra er nær miðpunkti landsins en hin, svo lengd hennar ætti að vera styttri en lengd hinnar. Spurningin er hvort við vitum hversu mikið styttri hún sé og hvort við getum reiknað það.
Okkur ætti að vera ljóst að hægt væri að svara spurningunni ef v...
Ein af heimsins stærstu flugvélum er herflutningaflugvélin C-5 Galaxy og er hún svipað löng og einn fótboltavöllur. Hún vegur 226.346 kg og getur borið að hámarki 122.472 kg. Vélin getur komist upp í 828 kílómetra hraða. Flugvélin er 19,84 metra há eða eins og 6 hæða hús, 75,3 metra löng og hefur 67,89 metra...
Þrepapíramídinn í Sakkara.
Fyrsti píramídinn er talinn hafa verið reistur í Egyptalandi á árunum kringum 2650-2575 f.Kr. Þá ríkti faraóinn Djoser sem var af 3. konungsættinni. Arkitektinn var Imhotep, maður svo þekktur af fróðleik, vísdómi og stjórnvisku að síðar var hann dýrkaður sem lækningaguð bæði í Egyptalan...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!