Eldsalamöndrur (Salamander salamander, e. Fire Salamanders) eru svartar og skærgular að lit og meðal litskrúðugustu salamandra heims. Þær eru einnig meðal þeirra stærstu en fullvaxnar geta eldsalamöndrur orðið allt að 25 cm langar. Þær eru yfirleitt langlífar og lifa venjulega í 12-20 ár en dæmi eru um dýr sem haf...
Jöklar eru myndaðir úr ís og er eitt megineinkenni þeirra að þeir skríða undan eigin þunga. Jöklar myndast þar sem meiri snjór safnast fyrir að vetri en sumarhlýindi ná að bræða þegar til lengdar lætur.
Mörkin milli svæða þar sem snjór safnast og auðra svæða þar sem hann bráðnar og hverfur eru kölluð jöklunarm...
Sjónvarpspersónan Dr. House segir eitthvað á þessa leið í einum þætti: „Ef DNA okkar breytist um 1% þá verðum við höfrungar.“ Þessi setning felur í sér þá hugmynd að menn og höfrungar séu eins að upplagi. Það er rétt, menn (homo sapiens) og höfrungar eru bæði spendýr með áþekka grunnbyggingu og líkamsstarfsemi.
...
Margrét Þorsteinsdóttir er dósent í lyfjagreiningu við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum rannsóknaverkefnum á sviði efnagreininga á lífvísum, umbrotsefnum og fituefnum með háhraða vökvagreini tengdum tvöföldum massagreini.
Margrét hefur lagt mikla áherslu á uppbyggingu á klínís...
Sporðdrekinn (lat. Scorpius) er tiltölulega stórt en mjög áberandi stjörnumerki á suðurhveli himins. Merkið var eitt hinna 48 stjörnumerkja sem gríski stjörnufræðingurinn Ptólemaíos lýsti í riti sínu Almagest frá 2. öld e.Kr. Sporðdrekinn sést ekki nema að örlitlu leyti frá Íslandi.
Sólin gengur leið sína eftir...
Nei, Íranar hafa ekki smíðað tímavél en sagt er frá því í ýmsum fréttamiðlum að Íraninn Ali Razeghi hafi nýlega búið til eins konar spádómsvél.
Fram kemur í fréttunum að Razeghi sé vísindamaður í Íran, hann stundi einnig viðskipti og sé uppfinningamaður. Vísindavefurinn hefur ekki fundið heimildir um menntun Ra...
Ársreikningur er árlegt reikningsuppgjör fyrirtækis eða stofnunar. Um ársreikninga hér á landi gilda lög nr. 3/2006 og þar er hugtakið glögg mynd útskýrt á eftirfarandi hátt:
Glögg mynd felst í áreiðanlegri framsetningu á áhrifum viðskipta, öðrum atburðum og skilyrðum í samræmi við skilgreiningar og reglur um ...
Williamsheilkenni er sjaldgæfur erfðasjúkdómur sem áætlað er að 1 af hverjum 20.000 lifandi fæddum börnum hafi. Williamsheilkenni var fyrst viðurkennt sem sérstakur sjúkdómur árið 1961. Það kemur fram strax við fæðingu, jafnt hjá stúlku- og sveinbörnum. Heilkennið hefur verið greint um allan heim og kemur fyrir hj...
Fjöldi mismunandi sudokumynstra (e. Sudoku grids) á borði af stærðinni 9×9 er 6.670.903.752.021.072.936.960. Þessi tala er gefin upp í grein eftir Þjóðverjann Felgenhauer og breska stærðfræðinginn Jarvis sem kallast Enumerating possible Sudoku grids (Talning mögulegra sudokumynstra). Til þess að reikna þessa tölu ...
Ljónið er eitt hinna 88 stjörnumerkja sem þekja himinhvelfinguna. Það er stórt um sig og lendir í 12. sæti þegar stjörnumerkjunum er raðað eftir stærð. Ljónið er áberandi á himninum á vorin og auðþekkjanlegt. Stjörnurnar í höfði Ljónsins mynda eins konar sigð á himninum sem tiltölulega auðvelt er að finna á himnin...
Breski líffræðingurinn Richard Dawkins kom fram með hugtakið meme í bók sinni The Selfish Gene sem kom út árið 1976 og fjallar um hópa, erfðir og náttúruval.
Dawkins myndaði orðið meme með því að fella saman enska orðið gene og gríska orðið mimeme (μίμημα „það sem hermt er eftir“)....
Margir telja að bandaríska reiknivélin ENIAC hafi verið sú fyrsta sem stóð undir nafninu tölva. Hún var smíðuð við Pennsylvaníuháskóla í Bandaríkjunum og var tekin í notkun árið 1946. Vinnslugeta hennar var á við lítinn vasareikni.
Að baki því sem í dag heitir tölva liggur aldalöng þróun og ótal uppfinninga...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvað er vélrænt nám (e. machine learning) og er það rétt hjá syni mínum að það muni leysa lækna af hólmi?
Á öðrum áratugi þessarar aldar var þróuð aðferðafræði, svokallað djúptauganet (e. deep neural network) sem hentar vel til sjálfvirkrar greiningar og flokkunar á fl...
Daoismi (eldri umritun: taoismi) á rætur sínar að rekja til hinna svonefndu „hundrað heimspekiskóla“ sem spruttu upp í Kína á 6.-3. öld f.Kr. sem viðbragð við upplausnarástandi og vaxandi ófriði í landinu. Þessir „hundrað“ skólar voru væntanlega ekki alveg svona margir en talan hundrað er oft notuð í kínversku til...
Loðfílar (Mammuthus primigenius) eru eitt frægasta dæmið um útdauða tegund. Þeir eru skyldir afríkufílnum (Loxodonta africana africana) og áttu tegundirnar sameiginlegan forföður fyrir um 6,2–17,4 milljón árum*. Vísindamenn hafa náð heillegu erfðaefni úr loðfílshræjum sem varðveist hafa í sífreranum. Með nútímatæk...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!