Hlutur sem er í laginu eins og rétthyrndur kassi nefnist einnig rétthyrndur samhliðungur á fræðimáli (e. rectangular parallelepiped). Hann hefur tiltölulega reglulega lögun og við þurfum aðeins þrjár tölur til að lýsa honum, lengd, breidd og hæð (l, b og h). Rúmmálið er einfaldlega margfeldi þessara talna:R = l &...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:Hverslags ull er urmull?
Orðið urmull þekkist frá 17. öld í merkingunni ‘ögn, smábrot, smáleif af einhverju, aragrúi, sægur’. Upphafleg merking mun vera ‘mylsna, smábrot, smælki’. Merkingin ‘aragrúi’ er leidd af nafnorðinu mor ‘smáagnir, grugg, grúi, sægur’ (Ásgeir Blöndal ...
Hitastig á yfirborði Strokks er mjög breytilegt og skiptir þá vindur og hitastig umhverfisins miklu. Á 1 m dýpi er hitastig um 90-95°C og hitnar hverinn niður pípuna. Við mælingu í Strokki 9. júní 2000 var unnt að mæla niður á 23 m dýpi. Þegar vatnið í hvernum kólnar verður það eðlisþyngra og sekkur, við þetta myn...
Hámarksfjöldi rafeinda á atómhvolfum (e. shell) er fundinn samkvæmt reikniaðgerðinni 2n2, þar sem n er númer hvolfs.
Rafeindir á sveimi umhverfis atómkjarna fyrirfinnast á afmörkuðum líkindasvæðum sem nefnast svigrúm en hægt er að lesa meira um þau í svari við spurningunni Hvað er lotukerfið?
Í hverju svig...
Einn hektari (ha) er 10.000 fermetrar (m2).
Stundum þarf að breyta á milli mælieininga, úr hektara í fermetra eða öfugt og er það einfaldur útreikningur. Ef upphaflega stærðin er í hekturum en áhugi á að vita hversu margir fermetrar það eru þá er einfaldlega margfaldað með 10.000 en deilt með sömu tölu ef brey...
Krabbamein og ekki síður meðferð þess veldur eðlilega miklum breytingum á lífi einstaklings. Hann upplifir ýmiss konar líkamleg og andleg einkenni sem geta haft mikil áhrif á líf hans svo og áhrif á getu hans til að stunda kynlíf. Eitt af því sem ekki síst verður fyrir áhrifum þessa er kynheilbrigði (e. sexual- a...
Tog vélar ræðst fyrst og fremst af því hve miklu eldsneyti er hægt að brenna í hverri sprengingu. Þannig ræðst togið fyrst og fremst af slagrúmtaki vélarinnar. Þjapphlutfall vélarinnar er næststærsti áhrifavaldurinn, vegna áhrifa þess á varmafræðilega nýtni vélarinnar.
Rita má jöfnu um tog fjórgengisvélar vélar...
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) skilgreinir loftmengun sem eitt helsta umhverfisvandamál nútímans. Samkvæmt mati stofnunarinnar er hægt að rekja allt að sjö milljón dauðsföll á ári til loftmengunar og talið er að flest þeirra orsakist af fínu svifryki (IARC, 2013; WHO, 2016, 2017; HEI, 2017).
Svifryk, sem...
Þegar talað er um áfengisprósentu í drykk er yfirleitt átt við hlutfall etanóls af rúmmáli hans. Einnig er stundum átt við hlutfall etanóls af massa drykkjarins, en slíkt er þó sjaldgæfara. Þegar þeirri aðferð er beitt er því ástæða til að taka það sérstaklega fram.
Mólmassi etanóls er um það bil 46 g/mól og e...
Svarið við þessari spurningu fer eftir því hvort átt er við villifé eða tamið sauðfé. Ef verið er að spyrja um hversu margar gerðir af villifé séu til þá er svarið eftirfarandi:
Í Asíu voru til fjórar gerðir af villifé í árdaga. Ein þeirra var Bighorn eða stórhyrningur (Ovis canadensis) sem líklega lifði í au...
Letidýr lifa í Suður-Ameríku og þeir sem nenna geta lesið um um þau í svörum við eftirfarandi spurningum:
Hvar finnast letidýr?Hvaða spendýr fer hægast í heiminum?
Sígild eðlisfræði segir okkur að þyngdarhröðun allra hluta sé sú sama á tilteknum stað, um það bil 9,8 m/s2 við yfirborð jarðar. Þetta þýðir að fallh...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:Hvað er rúmmálið á gullstöng og þyngd?
Gull er frumefni með sætistöluna 79 og efnatáknið Au. Gull er mjúkur málmur og einkar eftirsóknarverður, meðal annars vegna stöðuleika hans en gull tærist ekki í lofti eða vatni eins og margir aðrir málmar. Gull er algengt í skartgripum...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Bandvefslosun er vinsæl núna á líkamsræktarstöðvum. Er þetta alvöru fyrirbæri sem er gagnlegt?
Bandvefur er mjög víða í líkamanum, í raun og veru alls staðar. Sá bandvefur sem oftast er talað um í samhengi við bandvefslosun er bandvefsslíður (e. fascia) sem umvefur að...
Lítri (l) og rúmsentímetri (cm3) eru hvor tveggja einingar um rúmmál (e. volume), byggðar á sömu undirstöðum. Að því leyti er þetta "það sama". Þó að rúmmálið í lítranum sé þúsund sinnum meira en í rúmsentímetranum þá er hlutfallið alltaf hið sama og auk þess raunar einföld tala í talnakerfi okkar (1000).
Rúmmá...
Bleikja (Salvelinus alpinus) er ferskvatnsfiskur sem finnst helst í stöðuvötnum og lækjum á norðurslóðum og er talin vera sú tegund ferskvatnsfiska sem finnst nyrst í heiminum (Klemetsen o.fl., 2003). Bleikjan tilheyrir ætt laxfiska eins og urriðinn (Salmo trutta) og laxinn (Salmo salar) sem einnig finnast hérlend...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!