Í heild sinni hljóðar spurningin svona:Af hverju er orðið "ort" (þ.t) komið? Ef það kemur af því að "yrkja" (n.t) af hverju er þá k-ið dottið út?
Orðmyndin ort er lýsingarháttur þátíðar af sögninni að yrkja. Hún beygist í kennimyndum yrkja – orti – ort. Í gotnesku, eina austurgermanska málinu, má sjá að þátíðin v...
Með orðinu sletta er átt við orð eða samband orða sem borist hefur inn í tungumál úr öðru máli en er ekki viðurkennt þar sem það hefur ekki aðlagast hljóð- eða beygingarkerfinu. Í íslensku er helst talað um dönsku- eða enskuslettur. Enska orðið sjeik 'mjólkurhristingur' er til dæmis merkt ?? í nýju orðabókinni frá...
Nafnorðið steypir „sá sem steypir, veltir um koll; barnsburður; heljarþröm“ er leitt af sögninni steypa „fella; hafa endaskipti á; varpa (sér), svipta völdum“. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Haskólans er frá síðari hluta 16. aldar:
Verøllden [ [...]] anar framm [ [...]] og giæter ecke ad fyrr enn hun er k...
Apollóníos frá Perga (um 262 – 190 f.Kr.) er oft talinn síðastur í röð mestu stærðfræðinga Forngrikkja, en meðal fyrirrennara hans á fyrra blómaskeiði forngrískrar stærðfræði voru Pýþagóras (um 570 – 490 f.Kr.), Evklíð (um 325 – 275 f.Kr.) og Arkímedes (287 – 212 f.Kr.). Marga fleiri mætti þó nefna og enn áttu Ptó...
Ívan Petrovitsj Pavlov var fæddur í borginni Rjazanj árið 1849. Faðir hans var prestur í rétttrúnaðarkirkjunni, móðir hans var dóttir prests. Faðirinn hóf störf í fátækri sókn í útjaðri borgarinnar, en lauk ævinni sem höfuðprestur aðalkirkjunnar í Rjazanj. Á æskuárum sótti Pavlov nám í skóla sóknarinnar og hafði æ...
Eldra nafn Faxaflóa var Faxaós, sem fyrir kemur í Fjarðatali, sem talið er frá því um 1200 (Íslenskt fornbréfasafn III:13-17) og í Landnámabók (Íslenzk fornrit I: 38, 39, 55).
Í Lýsingu Útskálaprestakalls 1839 eftir sr. Sigurð B. Sívertsen er nefnd Faxabugt (Gullbringu- og Kjósarsýsla, bls. 72). Á korti Björns...
Samkvæmt íslenskum ritreglum á að rita -j- á eftir ý, æ og ey ef a eða u fara á eftir. Þannig beygist nafnið Freyja:
Nf. Freyja
Þf. Freyju
Þgf. Freyju
Ef. Freyju
Þessi regla sést vel ef skoðað er beygingardæmið fyrir lýsingarorðið nýr í karlkyni:
Nf. nýr - nýir
Þf. nýjan - nýja
Þgf. nýjum - nýjum
...
Elstu dæmi í ritmálssafni Orðabókar Háskólans um orðið grikkur eru frá miðri 18. öld og er merkingin ‘hrekkur, bragð’ en einnig ‘sérstakt bragð í glímu’. Að gera einhverjum grikk merkir þá að ‘hrekkja einhvern, leika á einhvern’.
Í Íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blöndal (I 272) er lýsing á glímubragðinu grik...
Í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar (1989:1187), sem nú er aðgengileg á málið.is á heimasíðu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, er sagt um orðið þorpari:
þorpari k. ‘⊙þorpsbúi; þrjótur, illmenni’; sbr. fær. torpari ‘fátækur sveitabúi’. Vísast (ummyndað) to. úr mlþ. dorper ‘...
Nýjustu tölur Hagstofu Sviss sem birtar voru í lok árs 2012 sýna að launamunur kynjanna í Sviss mældist 18,4% að meðaltali árið 2010. Þrátt fyrir að reglan um sömu laun fyrir sömu störf hafi verið stjórnarskrárbundin í Sviss síðan árið 1981 og jafnréttislög í gildi frá 1996 minnkar launamunur kynjanna einungis lít...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Hvort er gull eða sifur betri leiðari? Er eðlisviðnám gulls minna en silfurs? Hver er svo samanburður við hinn ódýra kopar?
Ég geri ráð fyrir að hér sé átt við rafleiðni en ekki varmaleiðni.
Ef spenna er sett á leiðara þannig að annar endinn (skautið) er plús og hinn...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hver, ef einhver, er helsti munurinn á atómljóðum annars vegar og prósaljóðum hins vegar?
Í stuttu máli er helsti munurinn sá að prósaljóð er alþjóðlegt hugtak en atómljóð séríslenskt.
Hugtakið prósaljóð er alþjóðlegt hugtak um skáldlegan texta sem ekki er á bundnu ...
Hinar risavöxnu Steller-sækýr (Hydrodamalis gigas) sem einnig nefnast barkardýr, lifðu í grunnum og köldum sjó við Kommandorskye- og Blizhnie-eyjar í Beringshafi. Þær voru stærstar allra sækúa (Sirenia), vógu á bilinu 5-11 tonn og gátu orðið tæpir 8 metrar á lengd.
Teikning af Steller-sækú (Hydrodamalis gigas...
Eldkeilur, en svo kallast mikil keilulaga eldfjöll, myndast þar sem síendurtekin eldgos verða um sömu gosrás og kvikan kemur úr sama kvikukerfi. Eldkeilur geta verið virkar svo hundruðum þúsunda ára skiptir. Þar sem kvikan verður til á sama stað undir eldfjallinu og kemur upp um sama gosop, hleðst hún upp yfir þv...
Orðið felmtur kemur þegar fyrir í fornu máli í merkingunni ‘ótti’. Það er með stofnlægu r-i, sem merkir að r helst í gegnum alla beyginguna (þf. felmtur, þgf. felmtri, ef. felmturs), til dæmis að vera felmtri sleginn, eða að ‘verða mjög hræddur’.
Nafnorðið er leitt af sögninni felmta, ‘óttast, verða hræddur’, ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!