Örlaganornirnar þrjár, eða skapanornirnar, heita Urður, Verðandi og Skuld. Urður er norn fortíðar og elst af þeim öllum. Nafn hennar merkir "það sem orðið er". Verðandi, "hin líðandi stund", er norn nútímans og Skuld, "það sem skal gerast" (samstofna sögninni "að skulu"), er norn framtíðar.
Samkvæmt norrænn...
Eitt yuan
Gjaldmiðill Kína heitir renminbi og er yuan algengasta eining hans. Renminbi er skammstafað RMB og tákn yuansins á alþjóðamarköðum er CNY. Nánar er fjallað um gjaldmiðil Kína í svari Gylfa Magnússonar við spurningunni Eru renminbi og yuan sami gjaldmiðillinn?
1000 yen
Gjaldmiðill Japans heitir y...
Orðið ninja merkir sá sem iðkar ninjutsu en það er heiti á austurlenskri bardaglist sem hægt er að þýða sem 'list hins ósýnilega'. Ninjur voru félagar í japönskum leynisamtökum sem stofnuð voru fyrir árið 1500. Þær voru aðallega njósnarar, en líklega voru þær einnig fengnar til að ráða menn af dögum og vinna ýmis ...
Tatarar, einnig kallaðir tartarar, eru hópur fólks sem talar tungumál af tyrkneska málastofninum, en til þessa stofns má telja um 30 tungumál. Á síðari hluta 20. aldar voru tatarar yfir 10 milljónir. Þeir búa flestir í Austur-Evrópu og Mið-Asíu, þar á meðal í Rússlandi, Úkraínu, Póllandi, Búlgaríu, Kína, Rúmeníu o...
Kanínum er eðlislægt að verja hreiður sitt í náttúrunni. Þar er þeirra uppeldisaðferð að láta ungana sem mest í friði og halda þær sig helst í ákveðinni fjarlægð frá hreiðrinu, koma þar við einu sinni á sólarhring, að nóttu til og gefa ungunum af spena. Það tekur aðeins 3-4 mínútur og síðan hverfa kanínurnar aftur...
Eoin Colfer, rithöfundur og fyrrum grunnskólakennari, fæddist árið 1965 í Wexford sem er bær við suðausturströnd Írlands. Hann er annar í röð fimm bræðra sem heita Paul, Eamon, Donal og Niall. Alls hefur Colfer skrifað 12 bækur, en er þekktastur fyrir að skrifa bækurnar um Artemis Fowl, 12 ára gáfnaljós og glæpam...
Í þýska fánanum eru þrír litir, svartur, rauður og gylltur. Til eru tvær kenningar um uppruna þeirra. Önnur þeirra segir að litirnir séu komnir frá búningum Lützow Free Corps, sem var hreyfing stúdenta og menntamanna sem hafði það markmið að frelsa Þýskaland undan oki Napóleóns.
Hin kenningin segir að litirnir...
Egg eru mjög prótínrík, en magn prótína er breytilegt eftir því hvort eggin eru hrá, soðin eða steikt. Hér fyrir neðan er næringartafla fyrir meðalhænuegg, en meðaleggið er 58,8 grömm:
Orka
Prótín
Fita
Kolvetni
Vatn
Hrátt hænuegg
339 kJ/81 kcal
7,8 g
6,0 g
0,0 g
45,0 g
Soðið hænuegg...
Artemis var ein af gyðjum Ólymposfjalls, dóttir Seifs og Letó og tvíburasystir Apollons. Artemis var gyðja veiða, náttúru og frjósemi og verndari villtra dýra, barna og kvenna við barnsburð. Artemis og Apollon voru bæði goð lækningar, en Artemis gat þó einnig breitt út sjúkdóma eins og holdsveiki og hundaæði.
...
Aborri (Perca fluviatilis, e. European perch) er ferskvatnsfiskur sem lifir í vötnum og ám í Evrópu. Útbreiðsla hans af mannavöldum nær þó til fleiri landa, svo sem Ástralíu og Nýja-Sjálands, þar sem hann er vinsæll til sportveiða. Þess háttar ónáttúruleg útbreiðsla getur þó verið varhugaverð þar sem aborrinn er r...
Í flestum ríkjum heims er hægriumferð og flestir bílar aka því hægra megin á veginum. Áætlað er að um 66% allra ökumanna í heiminum aki hægra megin.
Vinstriumferð er á Bretlandseyjum og á Írlandi. Einnig er keyrt vinstra megin í nær allri Eyjaálfu, svo sem í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. Í sumum löndum Asíu, þar...
Eiffelturninn er eitt þekktasta tákn Parísarborgar og hefur verið sóttur heim af yfir 200 milljón manns.
Forsaga turnsins er að halda átti heimssýningu í París árið 1889 í tilefni af því að 100 ár voru liðin frá frönsku byltingunni, en byltingin gjörbreytti á sínum tíma stjórnkerfi Frakklands. Haldin var samke...
Hrafninn (Corvus corax) er staðfugl á Íslandi og hefur varp venjulega snemma á vorin, oftast í apríl, eða níu nóttum fyrir sumarmál eins og kemur fram í íslenskri þjóðtrú.
Hrafninn tímasetur varp sitt fyrr en aðrir spörfuglar og mófuglar og er það aðlögun að því mikla fæðuframboði sem verður á vorin þegar aðra...
Strútar (Struthio camelus) eru stærstu núlifandi fuglar heims og egg þeirra stærstu egg sem þekkt eru meðal núlifandi fugla. Þau eru um 15 cm á lengd, 12,5 cm að þvermáli og geta vegið allt að 1.350 g. Eftir að eggjunum hefur verið verpt tekur útungun um 40 daga. Helsta fæða strúta er gróður og halda þeir sig ofta...
Í venjulegum greindarprófum fær fólk spurningar sem það svarar með því að krossa við þann svarmöguleika sem það telur réttastan. Þegar búið er að svara öllum spurningum í prófinu er greindarvísitala reiknuð út. Flestir fá eitthvað í kringum 80-120, en 100 er meðalgreind. Meira um þetta er hægt að lesa í svari Heið...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!