Nafnorðið glor er notað um gulgráan litarhátt sem stafar til dæmis af megurð eða hungri. Lýsingarorðið glorulegur er að sama skapi notað um fölleitan mann en einnig um dauft ljós. Enski tónlistarmaðurinn David Bowie er oft fölleitur að sjá. Hann er þess vegna glorulegur.Í orðunum glorhungraður, glorsoltinn og glor...
Orðið stallari er notað þegar í fornu máli. Átt var við einn af tignustu hirðmönnum konungs sem hafði meðal annars það hlutverk að tilkynna boðskap konungsins. Stallarinn var fulltrúi konungs gagnvart þjóðinni og sá um vígbúnað hans og manna hans. Orðið er talið tökuorð úr fornensku steallare sem aftur er fengið ú...
Orðin "The Big Apple" eða "stóra eplið" voru upphaflega notuð um veðhlaupabrautina í New Orleans í Louisiana í Bandaríkjunum en hún var mesta veðhlaupabraut Bandaríkjanna snemma á 3. áratug aldarinnar. Jazztónlistarmenn sem áttu margir rætur að rekja til borgarinnar tóku orðin upp og létu þau vísa til Harlem-hverf...
Orðið kaldaljós þekkist í fornu máli aðeins sem viðurnefni Kolbeins Arnórssonar kaldaljóss. Viðurnefnið kaldaljós kemur fyrir í Íslendinga sögu og Þórðar sögu kakala en í báðum er hann einnig nefndur Staðar-Kolbeinn. Hans er einnig getið í biskupa sögum.
Hvergi kemur fram hvernig Kolbeinn fékk viðurnefni sitt. ...
Kvenkynsorðið íð eitt og sér merkir 'verk, iðn, starf'. Það hefur einkum verið notað í skáldskap og kemur þegar fyrir í fornu máli. Nokkur dæmi eru um það í Lexicon poeticum Sveinbjarnar Egilssonar, orðabók yfir forna skáldamálið (1916:323, útgáfa Finns Jónssonar).
Í nútímamáli er íð einkum notað í samsetningu...
Robbie Coltrane sem Hagrid
Mörg nöfn og hugmyndir í Harry Potter-bókunum eftir J.K. Rowling eru upprunnar í grískri og rómverskri goðafræði. Þar má nefna Hermione, ugluna Hermes, húsvörðinn Argus Filch, Alastor Moody og Sibyll Trelawney sem bera nöfn úr grískri goðafræði auk þess sem hinn þríhöfða hundur Fluff...
Í 38. grein laga um kosningar til Alþingis segir meðal annars:Dómsmálaráðuneytið skal þegar tilkynna stjórnmálasamtökum, sem eru á skrá, um ný stjórnmálasamtök sem tilkynnt eru og um ósk þeirra um listabókstaf. Ákveður ráðuneytið bókstaf nýrra samtaka að fengnum óskum þeirra og með hliðsjón af listabókstöfum annar...
Bananalýðveldi eða banana republic eins og það kallast á ensku er orð sem oft er notað í niðrandi merkingu til að lýsa ástandi í tilteknum smáríkjum.
Oftast er verið að vísa til smáríkja í Rómönsku Ameríku sem búa við spilltar og óstöðugar ríkisstjórnir og þá oft herstjórnir. Efnahagur þessara landa er oft mjö...
Það lagaumhverfi sem aðstandendur útihátíða búa við er á víð og dreif samkvæmt niðurstöðu skýrslu sem starfshópur á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytis vann að. Þær reglur sem eiga við um útihátíðir eru meðal annars reglugerð um löggæslu á skemmtunum og um slit á skemmtunum og öðrum samkvæmum. Um eðlilega starfshæ...
Ýmsar ástæður geta legið að baki nafngiftum dýra hvort sem er á íslensku eða í erlendum málum.
Sum dýrsheiti eru forn og hafa borist hingað í gegnum fjölmörg tungumál. Dæmi um það er heitið ljón sem hljómar nokkuð líkt á flestum indóevrópskum tungum. Á latínu er það leo. Á ensku og frönsku kallast dýrið 'lion'...
Ánamaðkar fjölga sér með tvíkynja æxlun eins og mörg dýr gera. Hitt er merkilegra að hvert dýr er tvíkynja þannig að egg og sæði myndast í sama dýrinu. Yfirleitt makast ánamaðkar niðri í moldinni þannig að mökunarferlið er sjaldnast sýnilegt mönnum. Ein algeng tegund hérlendis, stóráni, heldur sig þó við yfirborði...
Í stuttu máli má segja að annað sé að hafa göngulag sem líkist göngulagi kiðlings og hitt að ganga eins og kúreki.
Sá sem er kiðfættur eða refbeinóttur gengur með hnén þéttar saman en ökklana, ökklarnir vísa út miðað við hnén. Það að vera hjólbeinóttur, hjólfættur eða kringilklofa er öfugt við það að vera kiðfæ...
Rita má hvort heldur sem er ítarlega eða ýtarlega og hvort heldur sem er ítarlegur eða ýtarlegur, samkvæmt Stafsetningarorðabókinni (2006).
Ritháttur með í byggist á hugmynd um tengsl við íslenska lýsingarorðið ítur sem frá gamalli tíð merkir ‘ágætur, göfugur, fríður, glæsilegur’. Ritháttur með ý samsvarar dön...
Áður en bók Charles Darwins (1809-1882) Uppruni tegundanna kom út árið 1859 voru flestir Vesturlandabúar á þeirri skoðun að tegundir lífs á jörðinni hefðu orðið til við sköpun. Darwin ber kenningu sína saman við þessa hugmynd allvíða í bókinni. Hana má kalla sköpunarhyggju á íslensku en á ensku er hún oft nefnd cr...
Þeim sem borða harðfisk með ánægju finnst yfirleitt líka lyktin af honum góð. Ef fólki líkar ekki lyktin af harðfiski borðar það hann yfirleitt ekki heldur. Sama á við um hákarl og margar aðrar fæðutegundir, einkum ef við skoðum allan þann mat sem hinar ýmsu þjóðir heimsins leggja sér til munns.
Það sem við kö...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!