Víkur með þessu nafni eru kenndar við svera trjáboli, bolunga, sem rekið hefur á land. Eðlilegra þætti ef til vill að kenna þær við marga bolunga og hafa þá nafnið án –r-, Bolungavík. En í Landnámabók er Bolungarvík við Ísafjarðardjúp nefnd svo og þykir því rétt að hafa þá nafnmynd. Eðlilegt er að rita Bolungarví...
Nafnið Þykkvibær merkir 'þétt byggð'. Til samanburðar má nefna bæjarnafnið Thickbigging í Firth á Orkneyjum (Hugh Marwick, Orkney Farm Names, bls. 118).
Þykkvibær eða 'þétt byggð'.
Saurbær merkir ‚bær í blautlendi‘ en saur gat merkt ‚votlendi, mýri‘ til forna. Bæjarnafnið Saurar bendir til þess sama en um það e...
Ekki er alveg ljóst hvaðan nafnið á fjallinu Tindastól í Skagafirði (995 m) norðan við Sauðárkrók er komið. Hár strýtumyndaður klettur í landi Alviðru í Ölfusi heitir líka Tindastóll. Orðið stóll er í öðrum fjallsnöfnum eins og Stóll sem er á milli Svarfaðardals og Skíðadals í Eyjafirði.
Sauðárkrókur og Tind...
Upphaflega hljóðaði spurningin svo:
Hvað merkir orðið soga í t.d. Sogavegur, Sogablettur, Sogið o.s.frv.?
Sog er skylt sagnorðinu sjúga og fleiri orðum af þeim toga, til dæmis soga (sogast upp), súgur (dragsúgur), suga (blóðsuga). Í náttúrunni geta orð af þessu tagi bæði vísað til vinds og vatns. Í örnefnum ví...
Nafnið Selsund er væntanlega dregið af Sundinu sem nefnt er í örnefnalýsingu Selsunds: "Beint á móti bænum er Ból. Stendur það fremst í Sundinu, en svo er nefnt votlent flatlendi milli Selsundsfjalls og Suðurhrauns. Í því er svonefndur Bólhellir". Gera má ráð fyrir að sel hafi staðið í sundinu þar sem Bólið er og ...
Trékyllisvík í Strandasýslu kemur fyrir í Landnámabók og er kennt þar við skip sem smíðað var úr skipsbrotum (Íslenzk fornrit I:198).
Trékyllisvík frá Reykjahyrnu.
Úti á víkinni er Trékyllisey (= Árnesey) og gæti hún hafa heitið *Trékyllir ef menn vilja ekki trúa sögninni í Landnámabók.
Trékyllir var for...
Fossinn heitir Dynjandi og dregur nafn af hljóði sínu. Nöfn á fossum og ám eru oft mynduð með –andi, samanber Rjúkandi, Mígandi.
Nafnið Fjallfoss á fossinum er rangnefni, en sagt er um bæinn Dynjanda í sóknarlýsingu Rafnseyrarkirkjusóknar 1839 eftir sr. Sigurð Jónsson, að hann taki „nafn af stórum fjallfossi á...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona: Svartfoss er foss í Kollafirði á Ströndum. Hvað eru margir fossar á landinu með þetta nafn?Svartfoss er skammt frá Felli í Kollafirði í Strandasýslu. Hann sést langt að og notuðu sjófarendur hann fyrir mið (Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson: Landið þitt Ísland I...
Fjallið eina er ekki aðeins nafn á einu fjalli eins og ætla mætti, heldur þremur, ef fjöll skyldi kalla. Þau eru þessi:
Móbergshnjúkur (223 m) skammt vestan við Krýsuvíkurveg, norður af Sveifluhálsi í Gullbringusýslu, fyrir sunnan eða suðvestan Óbrinnishólabruna (Landið þitt I:200). (Mynd í Ólafur Þorvaldsson,...
Þorsteinn Helgason er dósent emeritus í sagnfræði og sögukennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hans hafa beinst að kennslufræði sögu, námsgagnagerð (einkum í sögu), gagnrýninni hugsun í kennslu, minningafræði og munnlegri sögu. Viðamestu verkefnin hafa þó fjallað um Tyrkjaránið á Íslandi 1627 o...
Hvammstangi.
Hvammstangi er kauptún við austanverðan Miðfjörð í V-Húnavatnssýslu. Það er byggt við samnefndan tanga úr Hvammslandi, landi jarðanna Kirkjuhvamms og Syðsta-Hvamms, en stórir hvammar eru í hlíðum Vatnsnesfjalls ofan kaupstaðarins.
Tanginn er rétt norðan við Hvammsána og er eini eiginlegi tanginn...
Nafnið Keflavík er vafalítið dregið af orðinu kefli í merkingunni ‚rekaviðarbútur‘.
Allir kannast við Keflavík sem nafn á þéttbýli á Reykjanesi en Keflavíkur eru víðar á landinu, ein á Hellissandi á Snæfellsnesi, önnur vestan við Rauðasand í Vestur-Barðastrandarsýslu, þriðja við Galtarvita í Vestur-Ísafjarðars...
Þórsmörk í Rangárvallasýslu er kennd við guðinn Þór, því að sem mannsnafn er það ekki þekkt fyrr en á 19. öld.
Landnámsmaðurinn Ásbjörn Reyrketilsson helgaði landnám sitt Þór og kallaði Þórsmörk.
Þórsmörk séð til austurs, Krossá og Mýrdalsjökull.
Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
Hvar er Goðaland í nágre...
Enginn fótur er fyrir þeirri skýringu að nafnið sé komið úr gelísku. Orðið kjölur er víða í örnefnum og merkir kjalarlaga fell eða fjall eða annað sem líkist kili á skipi sem hvolfir. Sjá um þetta nánar grein eftir undirritaðan, ,,Kjalarnes och andra isländska kjölur-namn", í bókinni Nefningar (Rvk. 2009), bls. 29...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!