Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Finnast albínóar meðal allra dýrategunda?

Jón Már Halldórsson

Albínismi er þekkt erfðafræðilegt ástand hjá öllum hryggdýrum. Albínóar finnast einnig meðal skordýra, til að mynda eru til hvítingjar af fiðrildategundinni Erebia epiphron silesiana.

Orsökin fyrir albínisma liggur í stökkbreytingu í geni sem tjáir ensímið týrósínasa en það leikur mikilvægt hlutverk í myndun melaníns, sem er litarefnið sem gefur húð okkar dökkan lit. Talið er að einn af hverjum 20.000 sé hvítingi og er það algjörlega óháð kynþætti.

Kengúra með albínisma.

Einkenni albínisma eru mjólkurhvít húð, sem getur orðið bleikkennd vegna undirliggjandi æða. Ýmsir sjóngallar hrjá oft albínóa, svo sem astigmatisma og ljósfælni, sem er ofurviðkvæmni gagnvart ljósi. Albínóum er afar hætt við sólbruna og þeir eru þess vegna í áhættuhóp gagnvart húðkrabbameini.

Tíðni albínisma er ekki þekkt meðal annarra dýrategunda en manninum. Miklar líkur eru á því, meðal annars vegna sjóngalla sem fylgja albínísma, að lífslíkur villtra hvítingja séu mun lægri en einstaklinga sem hafa ekki kvillann.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

12.8.2002

Spyrjandi

Elma Rún Benediktsdóttir, f. 1986

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Finnast albínóar meðal allra dýrategunda?“ Vísindavefurinn, 12. ágúst 2002. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2640.

Jón Már Halldórsson. (2002, 12. ágúst). Finnast albínóar meðal allra dýrategunda? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2640

Jón Már Halldórsson. „Finnast albínóar meðal allra dýrategunda?“ Vísindavefurinn. 12. ágú. 2002. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2640>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Finnast albínóar meðal allra dýrategunda?
Albínismi er þekkt erfðafræðilegt ástand hjá öllum hryggdýrum. Albínóar finnast einnig meðal skordýra, til að mynda eru til hvítingjar af fiðrildategundinni Erebia epiphron silesiana.

Orsökin fyrir albínisma liggur í stökkbreytingu í geni sem tjáir ensímið týrósínasa en það leikur mikilvægt hlutverk í myndun melaníns, sem er litarefnið sem gefur húð okkar dökkan lit. Talið er að einn af hverjum 20.000 sé hvítingi og er það algjörlega óháð kynþætti.

Kengúra með albínisma.

Einkenni albínisma eru mjólkurhvít húð, sem getur orðið bleikkennd vegna undirliggjandi æða. Ýmsir sjóngallar hrjá oft albínóa, svo sem astigmatisma og ljósfælni, sem er ofurviðkvæmni gagnvart ljósi. Albínóum er afar hætt við sólbruna og þeir eru þess vegna í áhættuhóp gagnvart húðkrabbameini.

Tíðni albínisma er ekki þekkt meðal annarra dýrategunda en manninum. Miklar líkur eru á því, meðal annars vegna sjóngalla sem fylgja albínísma, að lífslíkur villtra hvítingja séu mun lægri en einstaklinga sem hafa ekki kvillann.

Heimildir og mynd:...