Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Hvernig varð fyrsti maðurinn til?

JGÞ

Einfalt svar við þessari spurningu er að það var aldrei til neinn fyrsti maður!

Tegundir þróast mjög hægt og þess vegna hefði aldrei verið hægt að benda á einhvern tiltekinn mann og segja að hann hefði verið fyrsti maðurinn.


Hér má bera saman höfuðkúpur simpansa (lengst til vinstri), hins upprétta manns (Homo erectus) sem var kominn fram fyrir um 1,8 milljónum ára og nútímamannsins (Homo sapiens) sem talinn er hafa orðið til fyrir rúmlega 100.000 árum.

Það er algengur misskilningur að maðurinn sé kominn af apategundum. Maðurinn þróaðist hins vegar samhliða mannöpum um milljónir ára. Langt aftur í fyrndinni eiga hins vegar menn og apar sér sameiginlegan forföður, eða öllu heldur, sameiginlega formóður.

Heimildir og frekara lesefni á Vísindavefnum:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Útgáfudagur

11.4.2011

Spyrjandi

Sigurjón Elí Eiríksson, f. 1995

Tilvísun

JGÞ. „Hvernig varð fyrsti maðurinn til?“ Vísindavefurinn, 11. apríl 2011. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59382.

JGÞ. (2011, 11. apríl). Hvernig varð fyrsti maðurinn til? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59382

JGÞ. „Hvernig varð fyrsti maðurinn til?“ Vísindavefurinn. 11. apr. 2011. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59382>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvernig varð fyrsti maðurinn til?
Einfalt svar við þessari spurningu er að það var aldrei til neinn fyrsti maður!

Tegundir þróast mjög hægt og þess vegna hefði aldrei verið hægt að benda á einhvern tiltekinn mann og segja að hann hefði verið fyrsti maðurinn.


Hér má bera saman höfuðkúpur simpansa (lengst til vinstri), hins upprétta manns (Homo erectus) sem var kominn fram fyrir um 1,8 milljónum ára og nútímamannsins (Homo sapiens) sem talinn er hafa orðið til fyrir rúmlega 100.000 árum.

Það er algengur misskilningur að maðurinn sé kominn af apategundum. Maðurinn þróaðist hins vegar samhliða mannöpum um milljónir ára. Langt aftur í fyrndinni eiga hins vegar menn og apar sér sameiginlegan forföður, eða öllu heldur, sameiginlega formóður.

Heimildir og frekara lesefni á Vísindavefnum:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur. ...