Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hvar eru Katlar sem Jóhannes úr Kötlum kenndi sig við?

EDS

Skáldið Jóhannes Jónasson, betur þekktur sem Jóhannes úr Kötlum (1899-1972), átti sín uppvaxtarár á bænum Miðseli, sem einnig var nefndur Ljárskógasel. Bærinn var á neðanverðri Gaflfellsheiði sem er forn leið á milli Hvammsfjarðar í Dölum og Bitrufjarðar á Ströndum.

Skammt frá Ljárskógaseli rennur áin Fáskrúð. Í ánni eru skemmtilegar klettamyndanir með fossum á milli og kallast Katlar. Á vefnum johannes.is er að finna eftirfarandi texta:
Þegar Jóhannes gaf út sína fyrstu bók „Bí, bí og blaka” tók hann sér skáldanafnið Jóhannes úr Kötlum eftir þessu örnefni við ána Fáskrúð. Einnig var sú skýring sögð af þessari nafnbreytingu að annað skáld hefði komið fram á þessum tíma með mjög áþekku nafni og hefði Jóhannes viljað auðkenna sig greinilega frá öðrum með þessum hætti.

Katlafossar í Fáskrúð Dölum.

Heimildir og mynd:
  • johannes.is
  • Árni Björnsson, 2011. Í Dali vestur. Árbók 2011. Reykjavík; Ferðafélag Íslands.
  • Mynd: Sigurþór Hólm Tryggvason. Sótt á Panoramio 30. 6. 2011.

Upprunalega spurningin hljóðaði svo:
Jóhannes skáld kallaði sig „úr Kötlum”. Hvar í Dölum eru Katlar og hvaða fyrirbæri er það?

Höfundur

Útgáfudagur

15.8.2011

Spyrjandi

Guðmundur Hafsteinn Sigurðsson

Tilvísun

EDS. „Hvar eru Katlar sem Jóhannes úr Kötlum kenndi sig við?“ Vísindavefurinn, 15. ágúst 2011. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59918.

EDS. (2011, 15. ágúst). Hvar eru Katlar sem Jóhannes úr Kötlum kenndi sig við? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59918

EDS. „Hvar eru Katlar sem Jóhannes úr Kötlum kenndi sig við?“ Vísindavefurinn. 15. ágú. 2011. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59918>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...