Ég heyri svo vel, ég heyri grasið gróa. Ég heyri svo vel, ég heyri snjóinn snjóa. Ég heyri svo vel, ég heyri orminn mjóa, heyri hárið vaxa, heyri neglurnar lengjast, heyri hjartað slá.En þá er spurningin, er þetta hægt í alvörunni? Hljóðáreiti verður til þegar hreyfingar eða titringur veldur breytingum á þrýstingi í andrúmslofti, vatni eða öðru efni sem umlykur hlutinn (Goldstein, 2002). Það eru þessar þrýstingsbreytingar sem eyrað nemur og heilinn túlkar sem hljóð. Forsendur þess að maður geti heyrt í hári og neglum vaxa er því að vöxturinn hafi áhrif á þrýsting, að þessar þrýstingsbreytingar berist eyranu og að skynfærin séu nógu næm til að nema þær. Ekkert af þessu er tiltölulega líklegt. Hár og neglur vaxa á afskaplega löngum tíma þannig að hæpið er að vöxturinn valdi titringi í andrúmsloftinu svo nokkru nemi. Skynkerfi okkar er heldur ekki vel til þess fallið að greina hægfara breytingar á áreiti. Þetta kemur yfirleitt ekki að sök þar sem að jafnaði er mikilvægast að geta brugðist strax við snöggum breytingum í umhverfinu. Svarið er því: Nei, það er hvorki hægt að heyra hár né neglur vaxa þar sem hvort tveggja veldur bæði litlum og hægfara breytingum á umhverfi. Skynkerfi mannsins er ekki til þess fallið að greina slíkar breytingar. Heimildir og mynd
- Goldstein, E. B. (2002). Sensation and perception. Pacific Grove, CA: Wadsworth.
- Sönglög. Leikskólinn Flúðir.
- Myndin er fengin af síðunni Hair, oh my!. Flickr.com. Höfundur myndar er Jen Chan. Myndin er birt undir Creative Commons leyfi.