Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hvernig er hægt að lofa að minnsta kosti 10% ávöxtun á mánuði? - Myndband

Gylfi Magnússon

Það er út af fyrir sig ekkert mál að lofa 10% ávöxtun á mánuði. Vandinn er að standa við loforðið!

Það er auðvelt að leika sér með dæmi til að sjá hversu fjarstæðukennt það er að einhver geti boðið fjárfestum örugga 10% ávöxtun á mánuði yfir langan tíma. Ef ein milljón króna skilar til dæmis þessari ávöxtun í hverjum mánuði þá ríflega þrefaldast höfuðstóllinn á ári hverju. Milljónin yrði þá orðin að rúmum níu milljörðum eftir átta ár og að nær níu þúsund milljörðum eftir tuttugu ár, en það er margföld landsframleiðsla Íslands, svo að dæmi sé tekið. Það er ómögulegt að slík ávöxtun náist. Það er hugsanlegt að ná 10% ávöxtun á mánuði, jafnvel nokkra mánuði í röð, með því að taka verulega áhættu, en óhugsandi að það takist árum saman.

Hægt er að lesa meira um mögulega ávöxtun í svari Gylfa Magnússonar við spurningunni Hvernig er hægt að lofa að minnsta kosti 10% ávöxtun á mánuði?

Myndbandið er einnig aðgengilegt á YouTube-síðu Vísindavefsins og á Vimeo. Myndbandið er unnið í samstarfi við Áttavitann.

Höfundur

Gylfi Magnússon

prófessor í hagfræði við HÍ

Útgáfudagur

6.7.2012

Spyrjandi

Ólafur Þórisson

Tilvísun

Gylfi Magnússon. „Hvernig er hægt að lofa að minnsta kosti 10% ávöxtun á mánuði? - Myndband.“ Vísindavefurinn, 6. júlí 2012. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=62895.

Gylfi Magnússon. (2012, 6. júlí). Hvernig er hægt að lofa að minnsta kosti 10% ávöxtun á mánuði? - Myndband. Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=62895

Gylfi Magnússon. „Hvernig er hægt að lofa að minnsta kosti 10% ávöxtun á mánuði? - Myndband.“ Vísindavefurinn. 6. júl. 2012. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=62895>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...