Fyrsti barnahópurinn var leiddur af frönskum hirðingjapilti að nafni Stephen, frá Cloyes-sur-le-Loir, bæ nálægt Vendôme. Pilturinn sá sýn þar sem Jesús birtist honum, dulbúinn sem pílagrími, og lét hann hafa bréf til Frakkakonungs. Á leið sinni til að afhenda bréfið dró Stephen að sér fjölda fylgjenda sem sumir hverjir ákváðu að fara til landsins helga. Talið er að 30.000 hafi komist til Marseille, þar sem börnin voru tekin höndum af þrælasölum og seld til Norður-Afríku. 10 ára piltur að nafni Nicholas, frá Cologne, leiddi annan hóp. Hann predikaði um Barnakrossferðina í Rínarhéruðum og dró að sér, að talið er, 20.000 barna hóp. Eftir að börnin fóru yfir Alpana til Ítalíu sundraðist hópurinn í aðra minni -- ýmsir urðu eftir í smábæjum, aðrir héldu áfram til Genúa þar sem börnunum var neitað um far yfir Miðjarðarhafið. Fáein héldu þá til Rómar þar sem Innósentíus III (páfi frá 1198 til 1216) sá aumur á þeim og leysti þau undan krossferðarheitum sínum. Örlög leiðtogans, Nicholas, eru ókunn en mörg þessara barna voru seld í þrældóm til Austurlanda. Heimild og mynd:
- Britannica.com
- Wikipedia.com - The Children's Crusade eftir Gustave Doré. Sótt 22.6.2010.