Titill

Vísindavefurinn hlýtur styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar

Frétt

Vísindavefurinn hlaut hæsta styrkinn úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar í ár, alls 1,2 milljónir. Styrkurinn nýtist til miðlunar fróðleiks um vísindi til almennings og aukinnar fræðslu um orkumál. Auk Vísindavefsins hlutu 8 önnur verkefni styrk úr sjóðinum en heildarúthlutun nam 4 milljónum króna. Sjá enn fremur: Níu verkefni hljóta styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar.

Vísindavefur Háskóla Íslands hefur starfað frá árinu 2000 og notið mikilla vinsælda. Á vefnum er að finna þúsundir svara við spurningum almennings um allt milli himins og jarðar, allt frá stjörnufræði til handrita og frá sameindalíffræði til sálarfræði. Duglegustu spyrjendurnir eru yfirleitt á aldrinum 10-20 ára.


Landsvirkjun er stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi en á myndinni má sjá Búrfellsstöð.

Vísindavefurinn hefur reynslu af fjölbreyttu starfi sem tengist vísindamiðlun, til dæmis námskeiðahaldi um vísindi fyrir fjölskyldur, bókaútgáfu um vísindi, en þar mætti nefna bókina Af hverju gjósa fjöll?, og gerð vísindadagatals, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli og jarðvarma. Landsvirkjun vinnur 73% allrar raforku í landinu og er stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi. Landsvirkjun er leiðandi í sjálfbærri nýtingu orkugjafa og leggur áherslu á að stuðla að aukinni þekkingu, nýsköpun og tækniþróun.

Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur28.6.2012

Flokkur:

Vísindafréttir

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Vísindavefurinn hlýtur styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar“. Vísindavefurinn 28.6.2012. http://visindavefur.is/article.php?id=182. (Skoðað 24.5.2013).

Höfundur

Ritstjórn Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Næsti )

Pólskur barnalæknir, kennslufræðingur og barnabókahöfundur. Rak munaðarleysingjahæli fyrir gyðingabörn í Varsjá og sýndi þeim virðingu, en lét svo lífið ásamt þeim.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013