Ef ég skil spurninguna rétt á spyrjandi við af hverju okkur finnst oft að ský séu í laginu eins og manneskjur, sérstaklega andlit. Líklegasta ástæðan er að aðrar manneskjur skipta okkur miklu máli. Það er til dæmis mikilvægt að við getum hratt og vel lesið í andlitsdrætti fólks til að vita hvernig því liður og hva...
Manneskjur urðu til við þróun rétt eins og allar aðrar lífverur á jörðinni. Yfirlit yfir spurningar og svör um þróun, þá sérstaklega þróun mannsins, má finna í svari Páls Emils Emilssonar við spurningunni Hvar á netinu get ég nálgast upplýsingar um þróun manna?
Það er samt eiginlega ekki hægt að segja að neinn ...
Helsta einkenni hræsnara er uppgerð eða blekking. Hræsnari þykist vera eitthvað annað en hann er eða þykist hafa skoðun eða trú sem hann hefur ekki í raun. Þetta gerir hann í því skyni að líta betur út í augum annarra. Hræsnari er sem sagt sá sem þykist betri en hann er.
Ef maður fordæmir aðra fyrir hegðun sem...
Upprunalega spurningin var:
Hvers vegna erum við eina lífveran á jörðinni sem þarf að borga fyrir að búa/lifa hér?
Þessi spurning felur í raun í sér margar mikilvægar spurningar og vert er að huga að þeim nánar. Spurningin hvílir á ýmsum forsendum. Þarna er gengið út frá því að við manneskjurnar þurfum að bo...
Fólk greinir mjög á um hvort til sé manneðli og ef svo er hvað það sé. Sömuleiðis er mikill ágreiningur um hvort eðlismunur sé á milli kynjanna og ef svo er í hverju hann felist. Ástæðan fyrir þessum ágreiningi er sú að spurningin um manneðlið (og svo kyneðlið) er oftast ekki aðeins spurning um það hvort það séu e...
Nei.
Orðið himnaríki merkir yfirleitt stað utan þess heims eða þess hluta heimsins sem við þekkjum, þar sem allir menn eða einhver hópur manna hafnar eftir jarðlífið, og verður eilíflega hamingjusamur. Spyrjandi hefur væntanlega þessa merkingu í huga.
Himnaríki er þannig sett fram sem eins konar andstæða...
Að meðaltali fæðast rúmlega 4 börn á sekúndu einhvers staðar í heiminum. Mestar líkur eru á að þessi börn séu í Asíu þar sem meira en þriðjungur allra barna fæðist þar. Á sama tíma deyja að meðaltali tæplega 2 manneskjur. Það þýðir að á hverjum sólarhring fjölgar mannkyninu um rúmlega 200.000.
Til samanburða...
William James (11. janúar 1842 − 26. ágúst 1910) er meðal áhrifamestu hugsuða Bandaríkjanna og er þá einkum horft til skrifa hans um sálfræði, trúarbragðafræði og heimspeki. Merkustu rit hans á þeim fræðasviðum eru The Principles of Psychology, tvö bindi (1890), The Will to Believe (1897), The Varieties of R...
Áður en lengra er haldið þarf að gera greinarmun á tvenns konar tilgangi með einræktun, læknisfræðilegum tilgangi og æxlunartilgangi, og skoða síðan kosti og galla hvors um sig.
Einræktun í æxlunartilgangi gæti gefið fleirum kost á að eignast börn sem væru líffræðilega tengd þeim sjálfum. Enga sæðisfrumu þarf í...
Í stuttu máli er svarið “já, sumir hlutir eru lifandi” en það ræðst reyndar af því hvaða skilningur er lagður í orðið hlutur.
Orðið hlutur notum við yfir hitt og þetta sem er til í kringum okkur. Þótt nákvæm skilgreining þessa orðs sé á reiki má kannski segja að hlutur sé eitthvað sem við getum talað um, bent á...
Á yfirborði marglyttna eru sérhæfðar frumur sem nefnast brennifrumur eða stingfrumur (cnidocytes). Eins og myndin sýnir eru þær nokkurs konar hylki utan um frumulíffæri sem á latínu nefnist cnidae. Inni í þessu tiltekna líffæri er svokallað stinghylki (nematocyst) og þegar fruman er látin óáreitt er það samanv...
Í stuttu máli er svarið við þessari spurningu það að holdarfar fólks ræðst bæði af erfðum og lifnaðarháttum, svo sem hvað og hversu mikið við borðum og hversu miklu við brennum.
Í svari við spurningunni Af hverju fær maður spik af nammi og óhollum mat? er fjallað stuttlega um hvers vegna við fitnum og bent á ön...
Öll spurningin var:
Hvað hefur heimspekin að segja um hugtakið óvinur? Geta veirur verið óvinir manna?
Innan heimspeki er að finna aldalanga hefð fyrir umfjöllun um vináttu, til að mynda hafa meira en tveggja árþúsunda gamlar hugmyndir Aristótelesar (384–322 f.Kr.) um vináttu orðið mörgum að viðfangsefni. M...
Þó ekki séu til staðfest dæmi um líf á öðrum hnöttum þá útiloka vísindamenn ekki að líf sé að finna utan jarðarinnar. Nánar má lesa um þetta í svari Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Eru til staðfest dæmi þess að geimverur séu til?
Þorsteinn hefur einnig svarað spurningunni Búa grænar geimverur á Mars?...
Eins og kemur fram í þessu svari eru núlifandi jarðarbúar rúmlega 6 milljarðar. Í svari Gísla Gunnarssonar við spurningunni Hvað hafa margir fæðst á jörðinni? kemur hins vegar fram að alls hafi um 27,5 milljarðar manna fæðst hingað til. Af þessu má draga þá ályktun að 21,5 milljarður hafi dáið.
Svarið við spurn...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!