Miðtaugakerfið samanstendur af heila og mænu. Helstu vefir þessara mikilvægu líffæra kallast grátt efni og hvítt efni. Heilagráni er á yfirborði hvelaheilans en heilahvítan er þar fyrir innan. Þessu er öfugt farið í mænunni, mænugráni er utan um mænugöngin, sem eru innst, og mænuhvítan utan um hann.
Í gráa efn...
Jóna Freysdóttir er prófessor í ónæmisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands (HÍ) og sérfræðingur við Ónæmisfræðideild Landspítala. Rannsóknir Jónu hafa einkum snúist um bólgu og bólguhjöðnun. Bólga er mikilvægt svar líkamans við áreiti, svo sem sýkingum og ýmsum frumuskemmdum. Það er hins vegar ekki síður mikilvægt...
Það kallast fasta þegar valið er að sneiða hjá mat í lengri eða skemmri tíma. Áhrif föstu á mannslíkamann fara eftir því hve lengi samfelld fasta varir. Átta klukkutímum frá því að síðustu máltíðar er neytt hefur líkaminn lokið meltingu fæðunnar og upptöku næringarefna úr henni. Þá er hann kominn í föstuástand.
...
Lyktar- og bragðskyn eru nátengd. Bragðlaukarnir sem skynja bragð eru á tungunni og lyktarsvæðið sem skynjar lykt er efst í nefholi. Bragð eins og súrt eða sætt getum við skynjað án lyktarskyns en flóknari tegundir bragðs getum við aðeins skynjað rétt með samspili bragðs og lyktar. Lykt og bragð veitir okkur ý...
Til eru yfir 200 mismunandi gerðir af arfgengum taugasjúkdómum og því er ómögulegt að gera þeim öllum skil í grein sem þessari. Umfjöllunin hér á eftir er því almenns eðlis þar sem bæði er komið inn á taugasjúkdóma og erfðir.
Arfgengir taugasjúkdómar lýsa sér í breytingum í gerð sameinda taugakerfisins sem lei...
Þegar áhrif öldrunar eru rannsökuð er mikilvægt að greina raunveruleg öldrunaráhrif frá þeim áhrifum sem umhverfi og sjúkdómar hafa á líffæri og líkamsstarfsemi. Sumar breytingar koma fram hjá flestum öldruðum án þess að hægt sé að skýra þær með þekktum sjúkdómi. Sennilega stafa þær eingöngu af öldruninni sjál...
Náttúrleg klónun er vel þekkt,til dæmis við knappskot eða þegar ný tré vaxa upp af brotnum greinum eða föllnu tré (samanber stiklinga). Í marga áratugi hafa vísindamenn unnið að því að klóna dýr á tilraunastofum. Breski líffræðingurinn John Gurdon (f. 1933) var fyrstur til að klóna hryggdýr þegar hann klónaði fros...
Ef svara á spurningunni hvort persónuleikinn geti tekið stakkaskiptum þarf fyrst að skilgreina hugtakið persónuleiki. Almennt er með persónuleika átt við stöðugleika eða ef til vill öllu fremur samkvæmni í hegðun manna í tíma og rúmi. Hvaða viðmiðum ættum við þá að beita um það hvenær persónuleiki einhvers hefur b...
Príon (e. proteinacious infectuous particles), einnig nefnd prótínsýklar, eru sérstök prótín sem finnast í eðlilegum frumum en geta í vissum tilfellum valdið sjúkdómum. Til eru mörg gen í spendýrum og sveppum sem tjá eða innihalda forskrift að príonprótínum. Í spendýrum má finna príon í mestum styrk í frumum miðta...
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) skilgreinir loftmengun sem eitt helsta umhverfisvandamál nútímans. Samkvæmt mati stofnunarinnar er hægt að rekja allt að sjö milljón dauðsföll á ári til loftmengunar og talið er að flest þeirra orsakist af fínu svifryki (IARC, 2013; WHO, 2016, 2017; HEI, 2017).
Svifryk, sem...
Spurning Atla var því sem næst eins og hér er tilgreint en spurning Hannesar og Margrétar var þessi: Hvað veldur því að líkaminn hrörnar, er ekki hægt að gera neitt til að breyta því? Hvers vegna getum við ekki lifað endalaust?Sami höfundur hefur áður svarað spurningunni Af hverju eldumst við? hér á Vísindavefnum....
Hér er einnig svarað spurningunni:Benda nýjustu rannsóknir til þess að tauga- og heilafrumur geti endurnýjað sig, öfugt við það sem áður var talið?
Ef vefir líkamans verða fyrir skemmdum búa flestir þeirra yfir þeim eiginleika alla ævi að geta gert við sig. Þennan eiginleika má að mestu þakka svokölluðum stofnfru...
Með hugtakinu öldrunarsjúkdómar er átt við sjúkdóma sem fyrst og fremst gera vart við sig á efstu árum og leiða til andlegrar eða líkamlegrar hrörnunar.
Annað hugtak sem vert er að gefa gaum í þessu sambandi er aldurstengdar breytingar. Þá er átt við að allir vefir líkamans sýna einhvers konar breytingar sem te...
Spurningin í fullri lengd hljóðar svona:
Hvaða vísindamenn hlutu nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði árið 2014 og fyrir hvað voru verðlaunin veitt?
Nóbelsverðlaunin í lífeðlisfræði eða læknisfræði árið 2014 voru veitt þeim John O´Keefe, prófessor við University College London, sem fékk helming verðl...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!