Hér verður rakið það sem Tölvuorðasafn frá 1998 segir um orð eða orðasambönd sem byrja á "cyber-":
cybercommunity, samheiti wired community, netsamfélag
cyberethics, sh. Internet ethics, siðareglur á Lýðnetinu
cybernaut, sh. cyber surfer, internaut, internetter, Internet surfer, Net surfer, netizen, net...
Orðið róða hefur fleiri en eina merkingu. Í eldra máli var það notað sem samheiti yfir róðukross en það var einnig notað um kross almennt. Orðið merkir einnig ‘dýrlingsmynd’. Karlkynsmyndin róði merkti í eldra máli annars vegar ‘kross’ og hins vegar ‘dýrlingsmynd’.
Róðukross hefur einnig fleiri en eina merking...
Svo virðist sem orðið Gaflari sé bundið Hafnarfirði og að Gaflari sé þá samheiti við Hafnfirðingur. Orðið má rekja aftur til kreppuáranna á milli stríða þegar litla vinnu var að fá og menn í Hafnarfirði biðu við gafla tveggja húsa eftir því hvort einhvern eða einhverja þyrfti til vinnu þann daginn. Orðið gafl merk...
Orðið faraó merkir ‘húsið mikla’ (e. the great house). Egyptar trúðu að faraóar væru guðir og jafnvel eftir dauða þeirra voru þeir taldir guðdómlegir.
Menes er talinn hafa verið fyrsti konungur sameinaðs Egyptalands og hann ríkti á árunum 3100-2850 fyrir Krist, en á þeim tíma voru þjóðhöfðingjar Egyptalands ek...
Sagnirnar rita og skrifa eru nánast samheiti þótt rita sé oft notuð í hátíðlegra samhengi. Sagnirnar innskrifa og útskrifa eru gamlar í málinu. Innskrifa merkir ?færa inn (í bók), skrifa (í skjal)? og að minnsta kosti frá 18. öld ?skrá í skóla?.
Útskrifa merkti í eldra máli ?lýsa einhverju? (til dæmis ?hver ge...
Jaði er samheiti steinefnis sem er eftirsótt ýmist sem skrautsteinn eða til útskurðar. Um er að ræða tvær fölgrænar steindir, jaðeít og nefrít. Fyrrnefnda steindin er af flokki pýroxena, samsetning NaAlSi2O6, en hin síðarnefnda er sérlega hart og massíft afbrigði af aktinólíti, af flokki amfibóla (samsetning Ca2(M...
Ástæða þess að Suðurskautslandið er talið heimsálfa en norðurskautið ekki, er sú að hið fyrrnefnda er meginland en hið síðarnefnda hafsvæði.
Eins og fram kemur í svari sama höfundar við spurningunni Hvernig eru nöfn heimsálfanna til komin? hefur gengið erfiðlega að finna skilgreiningu á hugtakinu heimsálfa. Þa...
Orðið Serki er eiginlega samheiti orðsins Mári en það var notað um íbúa Norður-Afríku. Einnig kölluðu menn múslíma í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs Serki.
Serkland var þá land Serkja í Norður-Afríku, Marokkó og Alsír og Serkland hið mikla er Afríka. Orðið Serkland kemur nokkrum sinnum fyrir í Heimskringlu, ...
Ekki er mikið um að karl- og kvenfuglar séu greindir að með mismunandi heitum. Undirritaðri er ekki kunnugt um að kvenhrafninn eigi sérstakt heiti. Það á aftur á móti við um kvenörninn sem kölluð er assa. Æðarkollan er nefnd æður en karlfuglinn bliki og æðarbliki. Meðal annarra andfugla ber karlinn heitið steggur ...
Rétt er að byrja á því að benda á að mjólkurofnæmi og mjólkuróþol er ekki sami hluturinn. Mjólkurofnæmi er þegar um staðfest ofnæmi gegn mjólk er að ræða. Þeir sem hafa mjólkurofnæmi gætu sumir verið í lífshættu við það að fá mjólk. Mjólkuróþol er hins vegar samheiti fyrir nokkra þætti eins og mjólkursykuróþol, m...
Hugtakið hellenismi er notað sem samheiti yfir menningu þeirra ríkja sem urðu til úr heimsveldi Alexanders mikla. Helleníski tíminn nær frá dauða Alexanders fram að innlimum Egyptalands í Rómveldi eða frá 323 f. Kr. til ársins 30. f. Kr. Hellenismi var samruni margskonar menningarhefða þar á meðal frá Grikklandi o...
Orðið Tjalli er notað um Breta, sérstakleg breska sjómenn. Það er einfaldlega dregið af Charley sem er gælunafn þeirra sem heita Charles.
Íslenska orðið tjalli er þess vegna myndað með hljóðlíkingu.
Breska nafnið Charles er það sama og Karl í germönskum málum. Þeir sem kalla Karl Bretaprins 'Kalla Bretaprins...
Erkitýpa er samheiti yfir frumgerð og fullkomna ímynd. Gríska orðið archetypos er í beinni þýðingu: "frummynstur."
Í bókmenntagagnrýni er erkitýpa ævaforn ímynd, manngerð eða aðstæður sem endurtaka sig sífellt í bókmenntum. Þessi sífellda endurtekning gefur í skyn að um hugtak eða aðstæður er að ræða sem eru ö...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona: Hver eru rökin fyrir að rétt sé að eignarfallsending orðins/nafnsins Nótt sé til Nóttar eins og kemur fram á vefnum ordabok.com?
Samheitið nótt beygist ævinlega:
nf. et.nóttnf. ft.næturþf.nóttþf.nætur
þgf.nóttþgf.nóttum
ef.næturef.nótta
Þegar orðið er notað sem sérnaf...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Hvað eiga allir gigtsjúkdómar sameiginlegt sem réttlætir að orðið gigt sé notað yfir þá alla? Það er að segja, hvað er gigt?
Á heimasíðu Gigtarfélags Íslands er að finna eftirfarandi skilgreiningu á gigt: Samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunarinnar (WHO) vís...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!