Þessi mynd var tekin um tíuleytið.Til að takast á við þessa spurningu má spyrja hvort orðin „tíu“ og „leytið“ hefðu skýrt setningafræðilegt hlutverk sem tvö aðskilin orð.
Dæmið kann að skýrast sé „tvö“ sett í stað „tíu“ svo út fengist setning á borð við „Jón horfði frá tvö leytinu.“ „Leytinu“ tekur hér þágufall...
Orðið misseri merkir einfaldlega hálft ár eða sex mánuðir en er stundum notað um skemmri tímabil sem markast af árstíðunum. Kennsluári í háskóla er til dæmis skipt í tvö misseri, haustmisseri og vormisseri.
Víða erlendis skiptist háskólaárið í tvö semester. Það orð er dregið af latneska orðinu 'semestris' sem e...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Er til regla til að vita hvort orð er í eintölu eða fleirtölu? Til dæmis orð eins og: Dyr, fólk, hús og fleiri?
Flest nafnorð eru þess eðlis að þau eru bæði notuð í eintölu og fleirtölu. Eintala táknar yfirleitt að um sé að ræða einn einstakling, eitt stykki af einh...
Það er út af fyrir sig hægt að setja þetta orð í fleirtölu og beygja mat eins og orðið gat. En það er meiri spurning hvort einhver þörf er á því -- og þar að auki má telja nokkuð víst að margir fella sig afar illa við það.
Rétt er að hafa í huga að orðið mat hefur tvær aðalmerkingar, það er að segja "það að ...
Í íslensku er hægt að mynda samsetningar á þrjá vegu:Fast samsett orð
Laust samsett orð
Bandstafssamsetning
Með fast samsettu orði er átt við að notaður sé stofn fyrri liðar án beygingarendingar. Sem dæmi mætti nefna: snjó-bretti, hest-vagn, sól-bruni, borð-fótur.
Í laust samsettu orði stendur fyrri liður ...
Íslenska orðið prósenta eða prósent er tökuorð úr dönsku, procent, sem er aftur tekið eftir þýska orðinu prozent. Þessi orð eru komin með nokkurri ummyndun af latneska orðasambandinu per centum sem þýðir af hundraði, samanber í ensku percent.
Við notum þessi orð til að lýsa hlutföllum og tölum þá til dæmis um "...
Latneska orðið et 'og' er vissulega sameiginlegt báðum skammstöfununum etc. og et al. Hin fyrri stendur fyrir et cetera og er notuð í merkingunni 'og svo framvegis' (eiginleg merking 'og aðrir (hlutir)'). Að baki liggur latneska orðið caeterus sem oftast er notað í fleirtölu í merkingunni 'aðrir'. Hvorugkyn fleir...
Þetta er einfaldlega málfræðilegt atriði. Við skrifum 'stór strákur' eða 'lítill strákur' í tveimur orðum. Eins er það með 'heilagan anda' – lýsingarorð og nafnorð standa saman. 'Föður' eða 'sonar' væri ekki jafn auðveldlega hægt að skipta upp í tvö mörk við signinguna, en við þurfum fjögur orð eða mörk svo að úr ...
Fiðrildi er viðskeytt orð, þar sem seinni liðurinn er viðskeytið -ildi. Orðið er notað um ættbálk skordýra sem nefnist á latínu Lepidoptera en það þýðir hreisturvængjur og vísar til þess að hár á vængjum hafa umbreyst í hreistur. Elsta norræna mynd orðsins er líklega fifildri.
Í Íslenskri orðsifjabók segir að o...
Um uppruna orðsins hinsegin er fjallað sérstaklega í svari við spurningunni Hvaðan kemur orðið hinsegin? og er lesendum bent á að kynna sér það svar einnig.
Elsta dæmi sem höfundur þessa svars hefur fundið á prenti um vísun orðsins hinsegin í samkynhneigð er í Alþýðuhelginni 1949 þar sem segir: „Hvað, er hann n...
Orðið boar eða ‘villigöltur’ er aðeins varðveitt í vesturgermönskum málum. Það þýðir að skyld orð finnast ekki í norður- og austurgermönskum málum.
Í fornensku var orðmyndin bár, í fornsaxnesku bêr og í nútímahollensku beer. Í fornháþýsku var til myndin bêr, sem í dag er rituð Bär á háþýsku.
Orðið boar eða ...
Svarið er nei; slíkt orð mun ekki vera til. Raunar er jurta- og dýraríkið ekki nákvæmlega sama og flóra og fána, því síðarnefndu orðin merkja jurta- eða dýrasamfélag sem einkenna tiltekið svæði eða jarðsögutímabil (til dæmis tertíera flóran eða fuglafána Mývatnssveitar), ekki jurta- og dýraríkið á breiðum grundvel...
Upphafleg spurning var sem hér segir: Er orðið fyrirfram/fyrir fram skrifað í einu eða tveimur orðum? Íslenskukennarar í MR og Orðabók Háskólans virðast ekki vera sammála um það. Í auglýsingu um íslenska stafsetningu, sem birt var í Stjórnartíðindum B, nr. 132/1974, stendur í 37. grein: Þegar atviksorð er til orði...
Barrnál og laufblað eru tvö orð yfir sama fyrirbærið. Orðin vísa til mismunandi lögunar en á innri byggingu, starfsemi og hlutverki er lítill sem enginn munur á barrnálum og laufblöðum.
Í svörum Kesara Anamthawat-Jónsson við spurningunum Hvers vegna eru plöntur grænar en ekki fjólubláar eða svartar? og Hvern...
Hér er hlaupið fram og til baka.Atviksorðsliðurinn til baka er tvö orð. Við skrifum 'farðu til baka' alveg eins og ritað er 'farðu til vinstri' eða 'farðu til hægri'. Eins er skrifað að eitthvað sé 'baka til'.
Í svari Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Er rétt að Darwin hafi dregið kenningu sína til baka...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!