Í Öldinni okkar sem Gils Guðmundsson og Björn Vignir Sigurpálsson tóku saman segir frá því að sumarið 1965 hafi bandarísk geimfaraefni komið til Íslands og verið við rannsóknir við Öskju. Geimfaraefnin voru tíu talsins og dvöldust hér á landi í nokkra daga ásamt fulltrúum frá bandarísku geimferðastofnuninni NASA o...
Skólakerfið í Bandaríkjunum er ólíkt því sem við þekkjum á Íslandi og uppbyggingin önnur.
Til að komast inn í læknaskóla (e. medical school) í Bandaríkjunum þarf fyrst að ljúka fjögurra ára grunnháskólanámi (e. undergraduate study). Á þessu stigi mega nemar velja hvaða aðalfag sem er, en best er að læra eitthv...
Félagsráðgjöf er heilbrigðisstétt og félagsráðgjafar sækja því um starfsleyfi til Landlæknisembættisins. Til þess að geta sótt um starfsleyfi þarf að ljúka fimm ára námi, sem felur í sér þriggja ára nám til BA-prófs auk tveggja ára MA-náms til starfsréttinda í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Nemendur sem ljúka ...
Íslenska hestakynið er ekki það eina sem býr yfir fimm gangtegundum. Nokkur hestakyn í Suður-Ameríku hafa líka þessa gangeiginleika.
Það sem er hins vegar sérstakt fyrir íslenska hestinn er að allar gangtegundirnar eru þjálfaðar í einum og sama hestinum. Og það er þess vegna svarið við spurningunni: Íslenski he...
Hér er einnig að finna svör við spurningunum:Hvað er hjartað stórt?
Slær hjartað öðuvísi þegar maður sefur heldur en þegar maður er vakandi og slakar alveg á?
Hver er eðlilegur hjartsláttur á mínútu og hver er hentugur hjartsláttur við æfingar ef maður vill léttast?
Hjartað er vöðvi sem sér um að dæla blóði u...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Í hvaða menntaskóla þarf ég að fara í til að geta lært um geiminn og farið á tunglið. Mig langar svo mikið að fara útaf ég ætla að vera fyrsti Íslendingurinn að lenda á tunglinu til að gera mömmu og pabba stolt af mér.
Stutta svarið er að framhaldsskólar búa fólk ek...
Anna-Lind Pétursdóttir er prófessor í sálfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar hafa einkum beinst að úrræðum fyrir börn með sérþarfir ásamt þjálfun skólastarfsfólks og foreldra í beitingu þeirra. Rannsóknirnar hafa sérstaklega falið í sér þróun og mat á áhrifum aðferða til að stuðla að fra...
Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á fjölskyldustofnuninni. Gerð hennar, samsetning, stærð, verkefni og hlutverk hafa gjörbreyst. Þannig er ekki lengur hægt að tala um fjölskylduna. Til eru svokallaðar kjarnafjölskyldur, einforeldris- og stjúpfjölskyldur og svo framvegis. Sambúð/hjónabönd eru ýmist st...
Þegar „skipt er um hnélið" þá eru „settar nýjar fóðringar". Þannig stjórnast hreyfingar hnésins áfram af manni sjálfum eins og áður.
Nánar tiltekið felst þetta í því að hnéliðurinn er opnaður með skurði yfir framanvert hnéð og innanvert við hnéskelina. Hnéskelinni er síðan velt til hliðar og þá blasa við þrír ...
Stafafura og bergfura eru báðar svokallaðar tveggja nála furur, sem þýðir að nálarnar eru tvær og tvær saman í knippum. Auk þess skarast ýmis augljós einkenni og mælanlegar stærðir milli þeirra. Nálar stafafuru eru til dæmis 3-5 cm langar en 3-6 cm langar á bergfuru, könglar eru svipaðir að stærð og svo framvegis....
Fullmenntaður læknir á Íslandi hefur að baki 12-14 ára menntun og þjálfun, en jafnvel meira hafi hann lokið doktorsnámi.
Formleg kennsla í læknisfræði hófst á Íslandi með stofnun Læknaskólans árið 1876. Læknadeild Háskóla Íslands var stofnuð um leið og skólinn sjálfur árið 1911 og síðan þá hafa yfir 2000 lækna...
Hvíldarpúls er fjöldi hjartslátta á mínútu í hvíld. Eðlilegur hvíldarpúls er einstaklingsbundinn og breytilegur eftir aldri. Nýfædd börn hafa hraðann hvíldarpúls, um 100-160 slög á mínútu, en þegar þau stækka hægist á púlsinum. Eðlilegur hvíldarpúls fullorðinna er á bilinu 35-100 slög á mínútu, að meðaltali er han...
Eins og lesa má um í svari Magnúsar Jóhannssonar við spurningunni Hvers vegna verða sumir feitir þótt þeir borði alveg eins mat og þeir grönnu? ákvarðast holdafar af jafnvæginu milli neyslu og bruna. Við innbyrðum daglega fæðu sem inniheldur ákveðinn fjölda hitaeininga og þessi orka er notuð til að reka áfram ýmis...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvað er vélrænt nám (e. machine learning) og er það rétt hjá syni mínum að það muni leysa lækna af hólmi?
Á öðrum áratugi þessarar aldar var þróuð aðferðafræði, svokallað djúptauganet (e. deep neural network) sem hentar vel til sjálfvirkrar greiningar og flokkunar á fl...
Í áhöfn Kólumbíu sem fórst 1. febrúar síðastliðinn voru sjö menn; tvær konur og fimm karlar. Önnur konan var indversk og einn karlinn ísraelskur. Geimferðin, STS-107 Kólumbía, stóð frá 16. janúar til 1. febrúar. Þessi 16 daga ferð var farin í rannsóknarskyni. Unnið var allan sólarhringinn á tvískiptum vöktum og þa...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!