Spurning

Hver er skilgreiningin á því "að vera"?

Spyrjandi

Sólveig Sigurðardóttir, f. 1985

Svar

Sögnin “að vera” getur haft þrjár mismunandi merkingar sem hljóta mismunandi meðhöndlun í rökfræði. "Að vera" má ýmist nota til að mynda umsögn, tilvistarstaðhæfingu eða staðhæfingu um samsemd. Þessu er best lýst með dæmum:
  1. Umsögn:
  2. "Snælda er köttur."

    Hér er sagnorðið notað til að mynda umsögnina “að vera köttur” sem tengd er við frumlagið “Snælda” í þessari setningu. Í setningunni er það sagt um Snældu að hún sé köttur.

  3. Tilvist:
  4. "Kettir eru til."

    Hér er mynduð staðhæfing um tilvist katta. Staðhæft er að til sé að minnsta kosti einn einstaklingur sem uppfylli það skilyrði að vera köttur.

  5. Samsemd:
  6. "Snælda er Snotra."

    Hér er fullyrt að Snælda og Snotra séu sami einstaklingurinn. Hugsum okkur til dæmis að við rekumst á flækingskött sem við tökum að okkur og nefnum Snældu. Stuttu seinna fer fólk að auglýsa eftir kettinum Snotru sem það hefur týnt. Í ljós kemur að Snælda er í raun og veru Snotra; Snælda og Snotra eru sami kötturinn.
Skilgreiningin á "að vera" er því ekki ein, heldur er um þrjár ólíkar skilgreiningar að ræða sem ráðast af notkun sagnarinnar hverju sinni.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur25.10.2000

Flokkun:

Hugvísindi > Heimspeki

Tilvísun

Eyja Margrét Brynjarsdóttir. „Hver er skilgreiningin á því "að vera"?“. Vísindavefurinn 25.10.2000. http://visindavefur.is/?id=1038. (Skoðað 24.5.2013).

Höfundur

Eyja Margrét Brynjarsdóttirnýdoktor við Heimspekistofnun HÍ



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Næsti )

Pólskur barnalæknir, kennslufræðingur og barnabókahöfundur. Rak munaðarleysingjahæli fyrir gyðingabörn í Varsjá og sýndi þeim virðingu, en lét svo lífið ásamt þeim.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013