Spurning
Hvert er hraðskreiðasta dýr í heimi?
Spyrjandi
Kristján Bragason 12 ára
Svar
Fuglar komast öðrum dýrum hraðar yfir. Svölungur hefur mælst á 170 km hraða í láréttu flugi. Fálkar í steypiflugi komast enn hraðar. Förufálki steypir sér á bráð með hraða samsvarandi 360 km á klukkustund.Ferfætlingar á jörðu niðri fara ekki svona hratt yfir. Sítan eða blettatígurinn, kattardýr í Afríku, kemst sem svarar um eða yfir 100 kílómetrum á klukkustund á stuttum sprettum en úthaldið er takmarkað. Á lengri sprettum er kvíslhyrnan, norður-amerískt klaufdýr, líklega fljótust. Hjarðir hafa mælst hlaupa á 65-72 km hraða og hámarkshraðinn reyndist 86,5 km. Heimildir eru um að kvíslhyrna hafi hlaupið skamman spöl á undan bíl meðan hraðamælirinn sýndi liðlega 60 mílur (96 km).
Fljótustu lagardýr standa landdýrunum ekki langt að baki. Túnfiskar eru meðal hraðsyntustu fiska og ná um 70-80 km hraða. Sumir telja að einhverjir háfiskar komist enn hraðar en ég hef ekki séð neinar tölur því til staðfestu.
Höfrungar geta synt alllengi á 26-33 km hraða
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur16.2.2000
Flokkun:
Efnisorð
dýrafræði hraði dýra hraði dýr svölungur blettatígur kvíslhyrna túnfiskur túnfiskar höfrungar
Tilvísun
Örnólfur Thorlacius. „Hvert er hraðskreiðasta dýr í heimi?“. Vísindavefurinn 16.2.2000. http://visindavefur.is/?id=106. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
Örnólfur Thorlaciuslíffræðingur, fyrrv. rektor Menntaskólans við Hamrahlíð





