Spurning
Hvað er meiósa og mítósa?
Spyrjandi
Sylvía Sigurðardóttir, f. 1984
Svar
Við mítósu (einnig kölluð jafnskipting) skiptir tvílitna fruma sér í tvær frumur sem eru erfðafræðilega nákvæmlega eins og upphaflega fruman. Frumurnar tvær hafa nákvæmlega sömu gen og fruman sem skipti sér.Í meiósu-skiptingu (einnig kölluð rýriskipting) skiptir tvílitna fruma sér tvisvar og útkoman verður fjórar einlitna frumur sem hafa hver um sig eitt litningapar og eru því erfðafræðilega ólíkar upprunalegu frumunni.

Meiósu-frumuskipti verða við myndun kynfruma en mítósuskipting við eðlilega nýmyndun líkamsfruma. Kynfrumur (sæðis- og eggfrumur) okkar eru einlitna og hafa 23 litninga. Við frjóvgun eggs verður samruni litninga. Allar aðrar frumur hafa 46 litninga.
Myndin er fengin af vefsetrinu Meiosis Primer. Þeir sem vilja fræðast nánar um frumuskiptingar geta skoðað vefsetur Estrella Mountain Community College.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur2.10.2002
Flokkun:
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Hvað er meiósa og mítósa?“. Vísindavefurinn 2.10.2002. http://visindavefur.is/?id=2749. (Skoðað 20.6.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur





