Spurning
Í hverju bjuggu víkingar?
Spyrjandi
Þór Jensen
Svar
Í húsagerð notuðu víkingar þann efnivið sem var í boði á hverjum stað. Á Íslandi voru hús byggð úr mold, torfi, grjóti og rekaviði. Sá viður sem þurfti í burðargrind húsa var innfluttur. Annars staðar þar sem skógar voru miklir, eins og í Noregi, voru húsin úr timbri en einnig voru byggð steinhús.Elstu híbýli víkinga eru kölluð langhús. Það var eitt stórt rými sem síðan var oft hólfað niður í tvö eða fleiri herbergi. Á Norðurlöndunum og víðar voru sums staðar byggð önnur minni hús umhverfis aðalbygginguna sem voru þó aðskilin, það er ekki tengd öðrum húsum. Á Íslandi þróaðist húsagerðin þannig að á 11. öld urðu húsin stærri og samsett úr nokkrum smærri húsum, svo sem eldhúsi eða skála, stofu, salerni og búri, sem tengd voru saman gegnum skálann. Slíkir bæir hafa einnig fundist í Noregi.

Dæmi um slíkan bæ er Stöng í Þjórsárdal. Árið 1974, á 1100 ára afmæli byggðar á Íslandi, var reistur þjóðveldisbær í Þjórsárdal, með Stöng sem fyrirmynd, rétt hjá þeim stað þar sem upphaflegi bærinn stóð. Þar er hægt að sjá hvernig var umhorfs á heimilum víkinga.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hver voru algeng nöfn víkinga? eftir Guðrúnu Kvaran
- Iðan - fræðslusetur. Skoðað 26.5.2004.
- P. G. Foote og D. M. Wilson. The Viking Achievement. Sidgwick & Jackson, London 1984.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur26.5.2004
Flokkun:
Tilvísun
Hildur Guðmundsdóttir. „Í hverju bjuggu víkingar?“. Vísindavefurinn 26.5.2004. http://visindavefur.is/?id=4278. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
Hildur Guðmundsdóttireðlisfræðinemi




