Spurning
Hver er réttarstaða samkynhneigðra í staðfestri samvist eða sambúð og í hverju er hún frábrugðin réttarstöðu gagnkynhneigðra?
Spyrjandi
Ritstjórn
Svar
Samkvæmt 1 gr. laga nr. 87/1996, sem sett voru árið 1996, geta tveir einstaklingar af sama kyni stofnað til svokallaðrar staðfestrar samvistar. Hugtakið staðfest samvist hafði ekki verið notað áður í lögum og var það tekið upp til aðgreiningar frá óvígðri sambúð og hjúskap. Í 5. gr. laganna kemur fram að aðilar í staðfestri samvist hafi, með þeim undantekningum sem fram koma í 6. gr., sömu réttarstöðu og fólk í hjúskap. Ákvæði hjúskaparlaga, gilda því einnig um staðfesta samvist.Meginmunur á réttarstöðu einstaklinga í hjúskap annars vegar og staðfestri samvist hins vegar felst í ákvæum um ættleiðingar og tæknifrjóvgun. Í 6 gr. laga nr. 87/1996 segir:
Ákvæði ættleiðingarlaga um hjón gilda ekki um staðfesta samvist. Þó getur einstaklingur í staðfestri samvist ættleitt barn hins sem hann hefur forsjá fyrir, nema um sé að ræða kjörbarn frá öðru landi. Lög um tæknifrjóvgun gilda heldur ekki um staðfesta samvist.Nánari upplýsingar um réttarstöðu samkynhneigðra gagnvart ættleiðingum má finna í svari Árna Helgasonar við spurningunni: Mega samkynhneigðir á Íslandi ekki ættleiða börn?

Réttarstaða tveggja einstaklinga af sama kyni sem velja sambúð í stað staðfestrar samvistar er hins vegar öllu snúnari. Lagaákvæði sem gilda um óvígða sambúð karls og konu ná ekki yfir einstaklinga af sama kyni sem skrá sig í sambúð. Samkynhneigt par í óvígðri sambúð nýtur til dæmis ekki sama skattalega hagræðis og gagnkynhneigt par í sömu stöðu. Samkynhneigðir njóta heldur ekki sömu réttinda og gagnkynhneigðir hvað varðar lög um félagslega aðstoð og almannatryggingar, til dæmis rétt til makalífeyris og makabóta, séu þeir ekki í staðfestri samvist.
Í lögum um erfðafjárskatt nr. 14/2004 er tiltekið að ekki skal borga erfðafjárskatt af arfi sem rennur til sambýlisaðila samkvæmt erfðaskrá. Þetta á hins vegar ekki við um samkynhneigða í óvígðri sambúð þar sem hugtakið sambýlisaðili er þarna einskorðað við einstakling af gagnstæðu kyni. Af þessu leiðir að eftirlifandi samkynhneigður sambýlisaðili þarf að greiða erfðafjárskatt af arfi sem honum hlotnast samkvæmt erfðaskrá.
Það má með mjög sannfærandi rökum halda því fram að þessi mismunun í lögum á stöðu samkynhneigðra og gagnkynhneigðra í óvígðri sambúð sé brot á jafnræðisákvæði 65. gr. stjórnarskrárinnar, um jafnrétti fyrir lögum án tillits til meðal annars kynferðis.
Gagnlegir tenglar um skyld efni
- Hver er lagaleg skilgreining á orðinu hjúskapur?
- Lög um ættleiðingar nr. 130/1999
- Lög um tæknifrjóvgun nr. 55/1996
- Samtökin '78
- Lagasafn Alþingis
- Ingibjörg Ólafsdóttir. 2000. Staðfest samvist. Áfangaritgerð við Háskóla Íslands.
- Myndin er af Free gay and lesbian e-cards. GreetingCards.com.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur25.10.2005
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Freyr Björnsson. „Hver er réttarstaða samkynhneigðra í staðfestri samvist eða sambúð og í hverju er hún frábrugðin réttarstöðu gagnkynhneigðra?“. Vísindavefurinn 25.10.2005. http://visindavefur.is/?id=5352. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
Freyr Björnssonlaganemi við HÍ





