Spurning
Vinna sálfræðingar eingöngu við meðferð?
Spyrjandi
Katrín Sól
Svar
Sálfræði er fjölmennust þeirra greina sem kenndar eru innan Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands. Sálfræði er sívaxandi grein sem meðal annars má sjá á stöðugri fjölgun nemenda milli ára og sífellt aukinni eftirspurn í atvinnulífinu eftir starfsfólki með sálfræðimenntun.Algengur misskilningur er að sálfræði snúist fyrst og síðast um að veita þeim meðferð sem eiga í einhvers konar erfiðleikum. Þetta er að sjálfsögðu hluti af sálfræði og margir sálfræðingar vinna við að meðhöndla geðraskanir, veita hjónabandsráðgjöf eða annars konar klíníska þjónustu. Þeir eru þó aðeins hluti af heildinni, sálfræði fjallar aðeins að litlu leyti um að leysa vandamál fólks. Viðfangsefni greinarinnar er öll hugsun og öll hegðun mannfólksins. Sálfræði fæst við nám, skynjun, minni, félagsskilning, heilastarfsemi, tilfinningar, greind, geðheilbrigði, þroska, persónuleika og þannig mætti endalaust áfram telja. Viðfangsefni sálfræðinnar eru því mörg og margbreytileg og liggja á mörkum raunvísinda og félagsvísinda.

Algengur misskilningur er að allir sálfræðingar veiti fólki einhvers konar meðferð.
Sálfræðimenntað fólk starfar á ýmsum vettvangi, þar á meðal við stjórnun fyrirtækja, ráðgjöf, starfsmannastjórnun, markaðssetningu, hönnun tækja og mannvirkja, á rannsóknarstofum, við ýmiss konar meðferð, í fjölmiðlum, í skólum, í líftæknifyrirtækjum, á auglýsingastofum og meira að segja á Vísindavefnum. Sálfræðimenntað fólk er sífellt að hasla sér breiðari völl í atvinnulífinu og atvinnutækifæri eru mörg. Þessi hagnýting sálfræði byggist á öflugu vísinda- og rannsóknarstarfi sem er grundvöllur greinarinnar.
Mynd: Richard Kerbaj. Therapy the new religion. The Age.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur25.10.2005
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Heiða María Sigurðardóttir, Andri Fannar Guðmundsson og Kjartan Smári Höskuldsson. „Vinna sálfræðingar eingöngu við meðferð?“. Vísindavefurinn 25.10.2005. http://visindavefur.is/?id=5354. (Skoðað 18.6.2013).
Höfundar
Heiða María SigurðardóttirB.A. í sálfræði og doktorsnemi í taugavísindum við Brown UniversityAndri Fannar GuðmundssonB.A. í sálfræðiKjartan Smári HöskuldssonB.A. í sálfræði





