Sólin Sólin Rís 04:41 • sest 22:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 04:35 • Sest 19:58 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:48 • Síðdegis: 17:13 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:05 • Síðdegis: 23:29 í Reykjavík

Hvernig býr maður til olíu?

ÞV

Olían sem við notum er unnin úr hráolíu sem finnst í náttúrunni. Þessi vinnsla fer fram í svokölluðum olíuhreinsunarstöðvum. Þegar hráolían er hreinsuð fæst úr henni bæði bensín, dísilolía, steinolía, flugvélabensín, aðrar olíur, jarðgas og tjara sem er til dæmis notuð í malbik.

Hægt er að búa til einföld olíuefni eins og bensín með aðferðum efnafræðinnar, til dæmis úr frumefnum sínum sem eru einkum kolefni og vetni. Hins vegar er það ekki endilega áhugavert verkefni í orkumálum af því að til þess þarf oft jafnmikla orku og þá sem losnar síðan þegar bensínið brennur.

Höfundur

Þorsteinn Vilhjálmsson

prófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011

Útgáfudagur

16.4.2004

Spyrjandi

Benedikt Örn

Tilvísun

ÞV. „Hvernig býr maður til olíu?“ Vísindavefurinn, 16. apríl 2004. Sótt 6. maí 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4148.

ÞV. (2004, 16. apríl). Hvernig býr maður til olíu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4148

ÞV. „Hvernig býr maður til olíu?“ Vísindavefurinn. 16. apr. 2004. Vefsíða. 6. maí. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4148>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvernig býr maður til olíu?
Olían sem við notum er unnin úr hráolíu sem finnst í náttúrunni. Þessi vinnsla fer fram í svokölluðum olíuhreinsunarstöðvum. Þegar hráolían er hreinsuð fæst úr henni bæði bensín, dísilolía, steinolía, flugvélabensín, aðrar olíur, jarðgas og tjara sem er til dæmis notuð í malbik.

Hægt er að búa til einföld olíuefni eins og bensín með aðferðum efnafræðinnar, til dæmis úr frumefnum sínum sem eru einkum kolefni og vetni. Hins vegar er það ekki endilega áhugavert verkefni í orkumálum af því að til þess þarf oft jafnmikla orku og þá sem losnar síðan þegar bensínið brennur....